Senda inn efni

Eldri fréttir

30. maí kl.21:35 | mbl.is

Björgvin og Valdís Þóra sigruðu í Eyjum

Björgvin Sigurbergsson úr Keili og Valdís Þóra jónsdóttir úr Leyni sigruðu á fyrsta stigamóti GSÍ í golfi um helgian, en Flugfélags Íslands mótið var haldið í Vestmannaeyjum.
 
Björgvin og Kristján Þór Einarsson úr GKj voru jafnir eftir 36 holur á tveimur höggum undir pari og fóru í bráðabana þar sem Björgvin hafði betur. Fjórir kylfingar komu síðan tveimur höggum á eftir, eða á pari vallar, Ólafur Björn Loftsson, Hlynur Geir Hjaltarson, Rúnar Arnórsson og Arnar Snær Hákonarson.
 
 
30. maí kl.18:57 | mbl.is

ÍBV og Breiðablik skildu jöfn

ÍBV og Breiðablik skildu jöfn, 1:1, í fyrsta leik 5. umferðar úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsideildarinnar, á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag. Liðin eru þar með jöfn í þriðja og fjórða sæti deildarinnar með 8 stig, jafnmörg og Fram sem er í öðru sætinu.
 
Haukur Baldvinsson kom Blikum yfir á 64. mínútu en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir Eyjamenn á 79. mínútu.
30. maí kl.14:04 | eyjar.net

Sól og blíða í Eyjum

Myndir af gólfmótinu

Sól og blíða er í Vestmannaeyjum en eins og kylfingar vita þá fer þar fram fyrsta stigamót ársins eða Flugfélags Íslandsmótið sem er hluti af Eimskipsmótaröðinni. Eftir fyrri hring var það Ólafur Björn Loftsson NK sem leiddi í karlaflokki á 65 höggum eða fimm undir pari og Valdís Þóra Jónsdóttir GL sem leiddi í kvennaflokki á 72 höggum eða tveimur yfir pari. Segir á vefnum www.golf.is
 
29. maí kl.14:25 | eyjar.net

Gunnar Heiðar stefnir á England - Æfir með ÍBV

Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikmaður Esbjerg í Danmörku stefnir á að spila á Englandi á næstu leiktíð.
 
Gunnar lék með Reading síðari hluta leiktíðarinnar en fékk lítið að spila. Áhugi er frá liðum Championship deildinni og League One.
 
,,Ég kíkti á æfingu í gær með ÍBV, mína fyrstu æfingu í langan tíma. Aðeins að sprikkla bara," sagði Gunnar Heiðar við Fótbolta.net en segist ekki á heimleið.
 
 
 
27. maí kl.00:12 | eyjar.net

Leikið verður í Vestmannaeyjum

Stjórn GSÍ ákvað nú fyrir skömmu að standa við upphaflega mótaskrá og leika fyrsta mótið á Íslensku mótaröðinni í Vestmannaeyjum eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Ólafur Þór Ágústsson, formaður SÍGÍ, fór til Eyja í dag, tók út völlinn fyrir GSÍ og taldi að hann væri leikhæfur fyrir mótið sem hefst á laugardaginn.
26. maí kl.18:00 | eyjar.net

Stuðningsmannakvöld í Týsheimilinu kl. 20:00 á föstudaginn

Allir stuðningsmenn ÍBV eru velkomnir í stuðningsmannahitting í Týsheimilinu á föstudaginn kl. 20:00.
 
Heimir fer yfir stöðu mála, stuðningsmannaklúbburinn mætir á svæðið, sala árskorta og ÍBV stemmning sem engin má missa af. Hvetjum alla til að mæta, sérstaklega er skorað á eldri leikmenn að mæta.
 
Heitt verður á könnunni.
25. maí kl.11:13 | visir.is

Eyjamenn unnu líka hitt Hafnarfjarðarliðið

Umfjöllun um leikinn frá visir.is

ÍBV er komið á beinu brautina í Pepsi-deild karla eftir tvo sigra í röð og það báða á Hafnarfjarðarliðunum tveimur - FH og Haukum.
 
ÍBV vann í dag 3-0 útisigur á Haukum og er nú komið með sjö stig eftir fyrstu fjóra leikina sem allir hafa farið fram á útivelli.
 
 
24. maí kl.19:02 | eyjar.net

Frábær sigur Eyjamanna á móti Haukum

ÍBV sigraði í dag lið Hauka á Vodafonevellinum. ÍBV komust yfir á 18 mínótu með marki frá Matt Garner. ÍBV komust svo í 2-0 en markið skoraði Andri Ólafsson. Staðan var 2-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik var sama barátta í leik ÍBV en á 68 mínótu fékk Eyþór Helgi Birgirsson sitt annað gula spjald og var rekinn af velli. Það kom ekki að sök og bætti ÍBV við 3 markinu frá Andra Ólafssyni sem fór svo meiddur af velli eftir samspil við liðsmann Hauka. Leiknum lauk með 3-0 frábærum sigri Eyjamanna.
24. maí kl.15:00 | eyjar.net

Bein lýsing af leik Hauka og ÍBV í kvöld

Minnum á leik Hauka og ÍBV í dag kl 17:00 leikurinn verður í beinni útsendingu hér á sportfrettir.is og einnig á www.ibvfan.blog.is og á facebook útsending hefst kl 16:45 og til að hlusta verður að nota foritið Winamp en línkur er undir fréttinni til að nálgast það.
21. maí kl.14:00 | fotbolti.net

Leikmaður 3. umferðar: Svona á maður að mæta meisturum

Eyþór Helgi Birgisson (ÍBV) er leikmaður 3.umferðar

Eyþór Helgi Birgisson, framherji ÍBV, skoraði eitt mark og fiskaði vítaspyrnu í 3-2 útisigri liðsins á FH í gær. Eyþór Helgi er leikmaður 3.umferðar í Pepsi-deild karla.
 
,,Ég átti góðan leik en það voru nokkrir aðrir leikmenn sem hefðu líka átt þetta skilið, Kjartan Henry (Finnbogason) og fleiri," sagði Eyþór Helgi við Fótbolta.net í dag.
 
,,Þetta flokkast klárlega sem einn besti leikur ferilsins. Ég var ákveðinn í að láta ljós mitt skína."
 
 
21. maí kl.01:34 | eyjar.net

Fimm marka fyrri hálfleikur í sigri ÍBV á FH

Umfjöllun frá fotbolta.net

 Eyjamennn heimsóttu Íslandsmeistara FH í Kaplakrika í kvöld og það má með sanni segja að úrslit kvöldsins hafi verið óvænt.
 
Ein breyting var í liði FH Frá sigrinum gegn Haukum en Jacub Nestrup kom inn fyrir meiddan Gunnar Már Guðmundsson. Hjá ÍBV voru tvær breytingar frá liðinu gegn Val, Rasmus Christansen og Eyþór Helgi komu inn fyrir Dennis Sytnik og Yngva Borþórsson.
 
 
 
20. maí kl.17:04 | eyjar.net

Bein lýsing verður á leiknum á eftir

Notið forritið winamp til að hlusta

Minnum á leik FH og ÍBV í kvöld kl 19:15 leikurinn verður í beinni útsendingu á www.sportfrettir.is og www.ibvfan.blog.is og á facebook hægt er að adda sér á msn ibvfan@hotmail.com
Veður er þokkalegt í bænum þessa stundina og er ekki annað hægt en að segja að það sé spenningur fyrir þessum leik enda er eyjamaðurinn Tryggvi Guðmunds að fara að spila við sína gömlu félaga sem hann yfirgaf í fyrra til að spila með eyjamönnum.
20. maí kl.15:00 | eyjar.net

ÍBV spilar við FH í Kaplakrikanum í kvöld

ÍBV fer í kvöld í Kaplakrikann og spilar á móti Íslandsmeisturum FH. ÍBV átti góðan leik á móti Val á þriðjudaginn var og gerði jafntefli 1-1 og voru meiri hlutann af leiknum manni færri. ÍBV bættu sinn leik síðan á móti Fram í fyrstu umferð þegar þeir töpuðu 2-0. Nýju leikmenn ÍBV virðast styrkja liðið og líta mjög vel út. ÍBV er enþá í Reykjavík og hafa æft þar síðstu daga. Leikurinn í kvöld er sá 3 í röðinni sem ÍBV spilar uppá landi og verður spennandi að sjá liðið spila í kvöld á móti Íslandsmeisturunum. ÍBV spilar svo við Hauka á Vodafonevellinum á mánudaginn 24. maí. Báðir leikirnir byrja kl 19.15. ÍBV-ARAR á höfuðborgar svæðinu mætum á völlinn og styðjum okkar lið. ÁFRAM ÍBV.
19. maí kl.14:48 | eyjar.net

Golfæfingar að hefjast hjá gólfklúbbi Vestmannaeyja

Fréttatilkynning frá Golfklúbbi Vestmanaeyja

Nú hefur Karl Haraldsson tekið til starfa hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja og mun hann sinna alli allmennri golfkennslu fyrir GV. Þar á meðal unglinga og krakkastarfi, hópkennslu og einkakennslu fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir.
Fljótlega mun verða boðið upp á hópkennslu fyrir byrjendur og konur. Er þetta frábært tækifæri fyrir fólk sem vill prufa golfíþróttina.
 
14. maí kl.06:00 | eyjar.net

ÍBV spilar sinn fyrsta heimaleik á morgun

Mætum á völlinn á morgun og styðjum liðið til sigurs

ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli á morgun kl 16.00. Síðsta sumar endaði leikur ÍBV og Vals með jafntefli 1-1 á Hásteinsvelli. Þá var það Ajay Leitch-Smith sem skoraði mark ÍBV en það er ekkert útlit fyrir endurkomu hans í lið ÍBV í sumar, en hann ásamt Christopher Clements voru í láni frá Crewe og spiluðu vel á síðsta tímabili. ÍBV hefur þó fengið við sig liðstyrk frá Portsmouth, leikmaðurinn James Hurst er kominn til Vestmannaeyja og verður eflaust í liðinu á morgun.
 
 
 
11. maí kl.23:07 | fotbolti.net

Umfjöllun: Góð byrjun Fram skóp sigurinn gegn ÍBV

Fram og ÍBV áttust við í 1. Umferð Pepsi deildar karla á Laugardalsvellinum í kvöld.
Það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi þar sem Tómas Leifsson og Ívar Björnsson skoruðu mörk liðsins.
Leikurinn var ekki gamall þegar fyrsta markið kom. Tómas Leifsson brunaði upp kantinn og ætlaði að gefa fyrir markið en boltinn fór að markinu og fór yfir Albert Sævarsson og í markið. Slysalegt hjá Alberti.
 
 
 
11. maí kl.16:30 | eyjar.net

ÍBV fær leikmann frá Portsmouth

Nær ekki að spila í kvöld

ÍBV fékk liðstyrk í dag. Leikmaðurinn James Hurst sem er fæddur 1992 og er varnarmaður. Hurst fékk keppnisleyfi með ÍBV í dag og kemur til landsins í dag. Hann verður tilbúinn í fyrsta heimaleik á móti Val á laugardaginn.James Hurst er Englendingur og kemur frá knattspyrnuliðinu Porstmouth.
11. maí kl.13:00 | eyjar.net

Stuðingsmenn ÍBV ætla að hittast á SPORTER í Kópavog

Fyrsti leikur sumarsins hjá ÍBV fer fram á Laugardalsvelli í dag kl. 20:00. Stuðningsmenn ÍBV ætla því að hittast á stað sem heitir SPORTER í Kópavogi (Engihjalla 8)húsið opnar kl. 17:00. Kaldur á krana er á 500 kr ásamt því að það verður sértilboð á burger fyrir eyjamenn. Kvetjum við alla stuðningsmenn ÍBV á fastalandinu til að mæta og halda svo í Laugardalinn og styðja liðið til sigurs.
 
 
11. maí kl.12:04 | fotbolti.net

Heimir Hallgrímsson: Það er verið að skoða tuðruferðir og allt

ÍBV redda sér á Bakka með ótrúlegum hætti núna í hádeginu

Óvíst er hvort leikur Fram og ÍBV fari fram í kvöld þar sem flug til og frá Vestmannaeyjum liggur niðri út af öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökkli.
 
,,Við erum að reyna allt sem við getum til að komast í bæinn. Það er verið að skoða tuðruferðir og allt," sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV léttur í bragði við Fótbolta.net.
 
 
 
 

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...