Eldri fréttir
Vorverkin að komast á fullt hjá ÍBV
Þá er allt að gerast í kringum félagsheimili ÍBV. Hásteinsvöllur er orðinn iðagrænn og búið að skipta um járn á varamannaskýlinum. Einnig er góður gangur í byggingu fjölnota íþróttahússins og er stálið í húsið komið á Eyjuna. Ljósmyndari ibvsport.is smellti nokkrum myndum af framkvæmdunum og má sjá þær með því að smella á "meira".
10. maí kl.11:33 | eyjar.net
Eyjamenn.is komin í loftið
Ný síða fyrir stuðingsmenn ÍBV
Nú hefur síðan loksins verið opnuð. Þessi síða er fyrir ykkur, stuðingsmenn ÍBV. Við hvetjum fólk til að skrá sig í stuðingsmannaklúbinn, styrkja liðið þitt og fá í staðinn margt skemmtilegt. Eyjamenn síðan mun bjóða uppá viðtöl, umfjallanir og stefnum að hafa lýsingu af flest öllum leikjum ÍBV í sumar. Segir á vefnum www.eyjamenn.is
9. maí kl.22:07 | eyjar.net
Kristófer Íslandsmeistari í skólaskák
Kristófer Gautason Grunnskóla Vestmannaeyja varð efstur í yngri flokki Landsmótsins í Skólaskák sem lauk nú skömmu eftir hádegið. Kristófer hlaut 10 vinninga af 11 mögulegum og hlaut því titilinn Landsmótsmeistari yngri flokks. Hann fær í verðlaun m.a. flugferð innanlands.
9. maí kl.14:30 | eyjar.net
Eyjamenninir Birkir Ívar og Gunnar Berg urðu Íslandsmeistarar með Haukum í gær
Lokahóf HSÍ, Eyjamenn með nokkra fulltrúa
Það var mikið um dýrðir á lokahófi HSÍ í gærkvöld og fjöldi verðlauna var veittur í N1-deild karla og kvenna sem og í 1. deild karla. Verðlaunaafhendingin tók líka sinn tíma líkt og síðustu ár. Segir á vefnum visir.is
8. maí kl.19:34 | eyjar.net
Grasið farið að grænka á Hásteinsvelli og nokkrir dagar í mót
Fram leikurinn í beinni á Stöð 2 sport á þirðjudag
Nú fer knattspyrnutímabilið að hefjast og mun Pepsi deidin hefja göngu sína þann 10. maí næstkomandi. ÍBV hefur hinsvegar keppni 11. maí á Laugardagsvelli gegn Fram. ÍBV byrjaði einmitt leiktíðina í fyrra einnig gegn Fram í Laugardalnum og endaði sá leikur með 2-0 tapi. ÍBV byrjaði síðustu leiktíð heldur illa en allir leikmenn voru ekki samankomnir fyrr en seint, eins og svo oft áður hjá ÍBV. Í ár hefur undirbúningur ÍBV verið sá mesti sem menn muna eftir og hafa aldrei verið spilaðir fleiri æfingarleikir fyrir mót, þó árangurinn hafi verið misjafn. Fyrsti heimaleikur ÍBV er á móti Val laugardaginn 15. maí kl 16.00 og hvetjum við alla til að mæta og styðja sitt lið.
6. maí kl.17:34 | eyjar.net
Tvær eyjastúlkur valdar í u-20 í handbolta
Búið er að velja í U-20 ára landslið kvenna í handbolta sem tekur þátt í undankeppni Em. Tvær eyjastúlkur voru fyrir valinu og eru þær Dröfn Haraldsdóttir sem leikur nú með HK og einnig Heiða Ingólfsdóttir sem leikur með Haukum. Svo skemmtilega vill til að þær eru báðar hörkugóðir Markmenn.
Óskum við þeim báðum góðs gengis. Fréttina frá hsi.is má lesa hér nánar í fréttinni.
Óskum við þeim báðum góðs gengis. Fréttina frá hsi.is má lesa hér nánar í fréttinni.
6. maí kl.16:50 | mbl.is
Ívari og Brynjari boðnir samningar - Gunnari ekki
Enska knattspyrnufélagið Reading hefur boðið bæði Ívari Ingimarssyni og Brynjari Birni Gunnarssyni nýja samninga til eins árs en Gunnar Heiðar Þorvaldsson hverfur á braut eftir að hafa verið í láni hjá félaginu frá áramótum.
6. maí kl.15:00 | eyjar.net
Ásgeir Aron í banni í fyrsta leik með ÍBV
Ásgeir Aron Ásgeirsson sem gekk til liðs við ÍBV frá Fjölni í vetur mun ekki geta leikið með sínu nýja félagi í fyrsta leik Pepsi-deildarinnar gegn Fram þar sem hann á eftir að taka út leikbann frá síðustu leiktíð.
Ásgeir Aron er eini leikmaðurinn í efstu deild sem er í leikbanni í fyrstu umferð en þó er Friðrik Ellert Jónsson sjúkraþjálfari Vals einnig í banni og Guðmundur Steinn Hafsteinsson sem var lánaður frá Val í HK á dögunum einnig.
Framkvæmd við fjölnota íþróttahús miðar vel
Hugmyndin er að knattspyrnan geti hafið æfingar inni eftir fríið í haust
Fljótlega mun hér rísa stórglæsilegt fjölnota íþróttahús við Týssheimilið. Mikill gangur hefur verið á framkvæmdinni og settum við okkur í samband við Magnús Sigurðsson hjá Steina og Olla og spurðum hvernig framkvæmdin gengi fyrir sig.
4. maí kl.13:00 | ibvsport.is
2-3.sæti niðurstaðan hjá fótboltastelpunum
Fótboltastelpurnar spiluðu tvo leiki um helgina í Lengjubikarnum. Á föstudagskvöld spiluðu þær gegn FH. Okkar stelpur voru 1-0 yfir í hálfleik með marki frá Kristínu Ernu Sigurlásdóttur eftir glæsilegan undirbúning frá Lerato. Okkar stelpur sofnuðu heldur betur á verðinun í seinni hálfleik og fengu á sig 3.mörk á 10.mínútna kafla. Lokatölur því 3-1 fyrir FH.
Denis Sytnik mættur á fyrstu gras æfinguna hjá ÍBV
Allt að vera tilbúið fyrir karlakvöld ÍBV
Denis Sytnik og Tonny Mawejje atvinnumenn ÍBV voru mættir að hjálpa til fyrir herrakvöld ÍBV í kvöld. Þeir voru svo mættir á fyrstu gras æfingu ÍBV í sumar á Helgafellsvelli. Herrakvöld ÍBV byrjar klukkan 19.00 og er stemmingin fyrir kvöldinu mjög góð. ÍBV er í fullum undirbúningi fyrir Íslandsmótiið sem hefst 11. mai en þá mætir liðið Fram á Laugardagsvelli. Við smelltum myndum af strákunum á æfingu og að undirbúningi fyrir herrakvöldið. Smelltu hér til að sjá myndirnar.
28. april kl.16:00 | fotbolti.net
Heimir Hallgrímsson: Ekkert galin spá
ÍBV spáð 10. sæti í sumar á Fótbolta.net
,,Þetta er ekkert galin spá út frá tímabilinu í fyrra, miðað við hvaða mannskap við erum búnir að missa og miðað við úrslit i æfingaleikjum," sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV en sérfræðingar Fótbolta.net spá liðinu tíunda sæti í Pepsi-deildinni í sumar.
Heimir hefur sjálfur lýst því yfir að markmiðið hjá Eyjamönnum sé sett á Evrópusæti.
,,Við stefnum hærra. Þetta er sætið sem við voru í í fyrra og það er alltaf ætlunin hjá öllum að gera betur en í fyrra."
,,Við stefnum hærra. Þetta er sætið sem við voru í í fyrra og það er alltaf ætlunin hjá öllum að gera betur en í fyrra."
27. april kl.12:00 | mbl.is
Gunnar lagði upp sigurmarkið
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét enn að sér kveða með varaliði enska 1. deildarliðsins Reading í dag. Hann lagði upp sigurmarkið gegn Plymouth, 1:0.
Þar að auki var Gunnar mjög áberandi í framlínu Reading og var óheppinn að skora ekki í tvígang en hann hafði gert þrjú mörk í næstu tveimur leikjum á undan.
26. april kl.09:10 | fotbolti.net
Ætlum að berjast um Evrópusæti og ekkert kjaftæði
Segir Heimir Hallgríms
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í fyrradag. Heimir segir að ÍBV ætli að styrkja sig meira áður en Íslandsmótið hefst en möguleiki er á að Christopher Clements og Ajay Leitch-Smith komi aftur frá Crewe.
26. april kl.06:00 | ibvsport.is
Leikmannakynning fyrstur í röðinni hinn sjóðheiti Eyþór Helgi Birgisson
Nú styttist í að Pepsídeildin hefjist, tvær vikur eru í mót.Fréttamaður ÍBV fór á stúfana og tók púlsin á einum helsta markaskorara liðsins.
Eyþór Helgi er 21 árs eyjapeyji sem er alin upp af HK, hann dvaldi lungan af æsku sinni á Eyjunni fögru. Faðir Eyþórs er Birgir Runólfur Ólafsson og móðir hans er Anna Lind Borgþórsdóttir.
Lesa má viðtalið við Eyþór Helga hér að neðan.
ÍBV tapaði á móti Aftureldingu í Eyjum
ÍBV tapaði í dag seinni leiknum á móti Aftureldinguna í Vestmannaeyjum með 7 mörkum 23-30 og hafa þar með lokið keppni í umspilinu um sæti í úrvalsdeild. ÍBV eru þá komnir í sumarfrí og muna eflaust klára verkefnið á næstu leiktíð.
24. april kl.19:13 | fotbolti.net
Hermann til sölu
Allt lið Portsmouth er til sölu
Porsmouth er búið að senda öllum liðum ensku Úrvalsdeildarinnar fax skilaboð um verðmiðann á hverjum og einum leikmanni liðsins en í heild er það metið á tæplega £30m. Frá þessu greinir í breska blaðinu The Mirror.
Fyrsta orrustan í kvöld
Sýndur í beinni á sporttv.is
Nú er komið að baráttunni um sæti í efstu deild hjá handboltastrákunum. Í fjögurra-liða úrslitum mætir ÍBV Aftureldingu og Grótta tekur á móti Víkingi.
17. april kl.16:48 | fotbolti.net
ÍBV og Keflavík skildu jöfn
Lengjubikarinn
Keflavík mistókst að taka toppsætið í 3. riðli Lengjubikarsins þegar þeir náðu aðeins jafntefli gegn ÍBV í Reykjaneshöllinni í dag.
Guðmundur Steinarsson hafði komið Keflavík yfir í fyrri hálfleiknum. Þá hafði verið brotið af honum innan vítateigs og dæmd vítaspyrna.
Guðmundur tók spyrnuna sjálfur en Albert Sævarsson varði frá honum. Guðmundur tók hinsvegar frákastið og skoraði.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


