Senda inn efni

Eldri fréttir

7. mars kl.13:36 | eyjar.net

Seinni ferð Herjólfs miðvikudag fellur niður vegna öldhæðar og sjólag

Seinni ferð Herjólfs miðvikudaginn 7. mars fellur niður vegna ölduhæðar og sjólags.
 
Ákvörðun um siglingar Herjólfs fimmtudag verða gefnar út þegar nær líður en skv. öldspá er útlitið því miður ekki gott eins og áður hefur komið fram.
7. mars kl.11:23 | Morgunblaðið

Vestmannaeyjabær fékk tilnefningu fyrir mjög metnaðarfulla umhverfisáætlun

Vestmannaeyjabær og Akureyri hafa hlotið tilnefninguna Norrænt orkusveitarfélag 2011 í samkeppni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Eru sveitarfélögin tvö sögð til fyrirmyndar hvað varðar sjálfbærar orkulausnir.
7. mars kl.09:02 | Morgunblaðið

Ögmundur styður Eyjamennina

„Samþykkt þeirra er mjög mikilvæg að mínu mati og ég tek undir þeirra málflutning,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um ákvörðun bæjarstjórnar Vestmannaeyja að beita sér fyrir stofnun félags um smíði á nýrri Vestmannaeyjaferju.
 
Bæjarstjórnin leitar til ríkisins, sveitarfélaga á áhrifasvæði Landeyjahafnar, lífeyrissjóða og annarra fjárfesta um þátttöku í ferjufélaginu.
7. mars kl.07:57 | Fréttablaðið

Stolt af litlu systur sinni

segir Margrét Lára Viðardóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir spilar ekki með íslenska kvennalandsliðinu í dag á móti Dönum í leiknum um 5. sætið í Algarve-bikarnum en gat byrjað inn á með litlu systur í sigrinum á Kína. Margrét Lára hefur áhyggjur af meiðslunum.
6. mars kl.15:34 | eyjar.net

Fyrri ferð Herjólfs miðvikudag fellur niður vegna öldspár

Fyrri ferð Herjólfs miðvikudaginn 7. mars fellur niður vegna mjög óhagstæðar ölduspár sem gerir ráð fyrir allt að 9,9 metra ölduhæð og er það í samræmi við áður útgefna viðvörun.
6. mars kl.15:24 | eyjar.net

Stoppdagar Herjólfs vor 2012

Árlegir stoppdagar Herjólfs vegna viðhaldsverkefna verða sem hér segir: 
Mánudaginn 26.mars siglir Herjólfur fyrri ferð en seinniferð fellur niður.
Þriðjudaginn 27.mars siglir Herjólfur seinniferð en fyrri ferð fellur niður.
Ekki er gert ráð fyrir frekari töfum á áætlun Herjólfs vegna þessa að þessu sinni. Nánari upplýsingar eru á herjolfur.is og í síma 481-2800.
 
6. mars kl.08:57 | visir.is

Sigurður Ragnar ánægður með Elísu

Elísa Viðarsdóttir, fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði kvennalandsliðsins í 1-0 sigri á Kína í gær. Elísa og systir hennar Margrét Lára Viðarsdóttir voru því saman í byrjunarliði í fyrsta sinn en Elísa lék við hlið fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur í miðri vörninni.
6. mars kl.08:44 | eyjar.net

Styrkir til eflingar nýsköpunar og samkeppnishæfni atvinnulífsins á Suðurlandi

Umsóknafrestur er til og með 12. apríl

Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrk til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi.
5. mars kl.13:42 | visir.is

Tryggvi fékk blóðtappa í fótinn

Það varð ljóst í dag að markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson mun missa af upphafi Íslandsmótsins og alls óvíst hvenær hann getur snúið aftur inn á fótboltavöllinn.
5. mars kl.12:53 | eyjar.net

Kynningarfundur í eyjum fyrir atvinnurekendur

Nú stendur yfir sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins sem ætlað er að fjölga störfum fyrir atvinnuleitendur í landinu. Átaksverkefnið nefnist "Vinnandi vegur" og stendur yfir á tímabilinu 15. febrúar - 31. maí 2012.
5. mars kl.11:59 | eyjar.net

Einn aðili þurfti aðstoða við að komast undir læknishendur

Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku og frekar fámennt á skemmtistöðum bæjarins enda mikil vinna í í Eyjum til sjós og lands. Eitthvað þurfti þó lögreglan að aðstoða fólk vegna ölvunarástands.
5. mars kl.09:58 | eyjar.net

ÍBV og Kaupás gera samstarfssamning

Á dögunum skrifuðu forsvarsmenn ÍBV-Íþróttafélags og Kaupáss undir samstarfssamning til tveggja ára. Kaupás kemur með samningi þessum myndarlega að starfi knattspyrnudeildar ÍBV auk þess sem að fyrirtækið styrkir barna og unglingastarf félagsins.
5. mars kl.08:47 | Morgunblaðið

Heimaey VE1 til eyja í maímánuði

Fyrsta nýsmíðin í rúman áratug að bætast við uppsjávarflotann

Nýtt uppsjávarskip Ísfélags Vestmannaeyja, Heimaey VE 1, er væntanlegt til Eyja fyrri hluta maímánaðar. Skipið er smíðað hjá ASMAR-skipasmíðastöðinni í Síle og verður afhent Ísfélaginu í lok apríl, samkvæmt upplýsingum Stefáns Friðrikssonar framkvæmdastjóra.
5. mars kl.07:53 | fotbolti.net

Stjarnan lagði ÍBV

Stjarnan sigraði ÍBV 1-0 í fyrsta leik dagsins í Lengjubikar karla en liðin áttust við í Reykjaneshöllinni.
 
Hinn 17 ára gamli Aron Heiðdal Rúnarsson skoraði eina markið eftir hornspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
2. mars kl.16:45 | fotbolti.net

Markahrókurinn Steingrímur Jóhannesson fallinn frá

Í gær lést Steingrímur Jóhannesson á 39. aldursári eftir harða baráttu við krabbamein. Þessi mikli markahrókur frá Vestmannaeyjum skoraði 72 mörk í 189 leikjum í efstu deild.
2. mars kl.15:42 | eyjar.net

Herjólfur leggur af stað í seinni ferð sína klukkan 16:00

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er á leið til Vestmannaeyja en vegna veðurs hefur siglingin tekið lengri tíma en til stóð.
2. mars kl.10:00 | eyjar.net

Alþjóðlegur bænadagur kvenna í dag

Samverustund í Stafkirkjunni kl 18:00

Föstudaginn 2. mars er Alþjóðlegur bænadagur kvenna, þá sameinast allar kristnar kirkjudeildir í að biðja fyrir ákveðnu landi. Þessi dagur er alltaf fyrsta föstudag í mars og 170 þjóðir taka þátt
2. mars kl.08:38 | visir.is

Langar að komast lengra í boltanum

segir Kári Kristján

„Þetta er búið að vera lengi í vinnslu. Ég var með mjög skemmtilegt dæmi í gangi varðandi annað lið sem er reyndar enn á lífi en það gengur ekki upp fyrir næsta tímabil," sagði landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson sem er búinn að framlengja samning sinn við Wetzlar til eins árs. Hann fékk betri samning en hann var með.
1. mars kl.16:07 | mbl.is

Kári Kristján áfram hjá Wetzlar

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við þýska 1. deildarliðið Wetzlar um að leik með því fram á mitt næsta ár. Kári hefur verið í herbúðum liðsins síðustu tvö árin.

 

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...