Senda inn efni
Hleð
Hleð
Hleð

Eldri fréttir

16. april kl.09:42 | eyjar.net

Karate á ströndinni hjá ÍBV strákunum í gær

Ferðapistill #5 frá Val Smára

Á vefsíðu stuðningsmannafélags ÍBV www.eyjamenn.com birtast ferðapistlar frá framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar. Í dag er stóri dagurinn hjá strákunum á ÍBV en þeir mæta liði Portsmouth í dag klukkan 18:45 að íslenskum tíma. Ferðapistil Vals Smára má lesa hér að neðan:
16. april kl.08:35 | eyjar.net

Lagt til að uppstillingarnefnd verði kosin til að gera tillögu að nýrri stjórn ÍBV Íþróttafélags

Samstaða um tillögu um framhaldsaðalfund

Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags, að tillögu deildanna þriggja, knattspyrnudeildar karla og kvenna og handknattleiksdeildar, hefur samþykkt að leggja það fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 18. apríl n.k. að boða til framhaldsaðalfundar að loknum aðalfundinum sjálfum.
16. april kl.08:04 | eyjar.net

Afkoma Vestmannaeyjabæjar langt yfir væntingum

Rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar var jákvæð um 530 milljónir króna í fyrra. Þetta er talvert umfram væntingar en gert var ráð fyrir 73,5 milljóna króna afgangi eftir árið.
15. april kl.16:22 | eyjar.net

Dagbók lögreglunnar

Ljósrituðum peningum stolið af Lundanum

Helstu verkefni frá 8. til 15. apríl 2013

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og ýmis mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór að mestu þokkalega fram en eitthvað var um ágreining á milli aðila sem fóru heldur ótæpilega með áfengi.
15. april kl.08:39 | eyjar.net

Lagt til að Vestmannaeyjabær semji við Axel Hallkel um hönnun á Eldheimasýningunni

Á fundi Bæjarráðs Vestmannaeyja þann 10.apríl síðastliðinn lágu fyrir niðurstöður dómnefndar sem falið var að velja bestu niðurstöðuna úr hönnunarsamkeppni um Eldheimasýningu.
12. april kl.14:19 | eyjar.net

Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyjum skora á Bjarna Benediktsson að halda áfram formennsku

Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á nýliðnum stærsta landsfundi nokkurs stjórnmálaafls í sögu lýðveldis Íslands. Í fjórgang hefur hann sótt umboð sitt flokksmanna og hvergi brugðist því trausti sem honum hefur verið falið. Hann er með óskorað umboð flokksmanna til forystu þess flokks sem að okkar mati hefur upp á að bjóða skynsamlegustu lausnir á vanda Íslendinga.
12. april kl.06:18 | visir.is

Meðlimir óþarflega spenntir.

Skálmöld á Þjóðhátíð í Eyjum

Þungarokkssveitin spilar í fyrsta sinn á Þjóðhátíð.

Rokksveitin Skálmöld er á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar. Að sögn Snæbjörns Ragnarssonar bassaleikara eru meðlimir Skálmaldar óþarflega spenntir fyrir tónleikunum.
 
"Það er svolítið síðan þetta var bókað en við máttum ekki segja neitt því þetta var svo mikið leyndó. Aðstandendur hátíðarinnar höfðu þá samband við okkur og buðu okkur að spila og við sögðum að sjálfsögðu já við því," segir Snæbjörn. Sjálfur hefur hann aðeins verið hálfan sunnudag á Þjóðhátíð fyrir margt löngu og kveðst spenntur fyrir því að upplifa stemninguna í dalnum.
11. april kl.12:22 | eyjar.net

Öryggi, stöðugleiki og störf

Unnur Brá Konráðsdóttir skrifar

Ég trúi því að framtíð Íslands sé björt. Við eigum miklar auðlindir sem okkur ber að nýta skynsamlega með það að markmiði að auka lífskjör allra landsmanna. Öflugt atvinnulíf, aukin fjárfesting og hagvöxtur er grundvöllur þess að efnahagur landsins nái sér á strik og stöðugleiki náist að nýju.
11. april kl.08:22 | eyjar.net

ÍBV sigraði varalið Bournemouth í gær 2-0

Í gær lék ÍBV æfingaleik í Englandi við varalið Bournemouth og sigraði ÍBV 2-0 og æfingarferðin byrjar vel hjá strákunum okkar.
10. april kl.11:11 | eyjar.net

Strákarnir æfa á grasi í Bournemouth

Ferðapistill #1 frá Val Smára

Á vefsíðunni eyjamenn.com er að finna ferðapistil frá framkvæmdastjóra knattspyrnuráðs en ÍBV strákarnir eru staddir í Bournemouth í Englandi við æfingar. Pistil dagsins má lesa hér að neðan:
10. april kl.08:04 | visir.is

Teljum uppsögnina ólögmæta

Viljum finna lausn á málinu segir lögfræðingur Kára og HSÍ

Ekki sér enn fyrir endann á máli landsliðsmannsins Kára Kristjáns Kristjánssonar og Wetzlar, félagsliðs hans í Þýskalandi. Kári lét á það reyna í gær að mæta á æfingu eins og hann átti upphaflega að gera en Björn Seipp, framkvæmdastjóri félagsins, vísaði honum frá. Kári vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið en vísaði á lögfræðing sinn, Stephen Pfeiffer.
9. april kl.16:50 | eyjar.net

Framkvæmdastjóri Wetzlar meinaði Kára inngöngu

Landsliðsmaðurinn og leikmaður Wetzlar í Þýskalandi, Kári Kristján Kristjánsson mætti á æfingu hjá liði sínu í morgun en komst þó ekki lengra en á bílaplanið fyrir utan æfingahöllina.
9. april kl.16:08 | eyjar.net

Gagnrýni okkar hefur fyrst og fremst beinst að þeirri stefnu sem tekin hefur verið með Þjóðhátíðina

Yfirlýsing frá Páli Magnússyni og Stefáni Jónssyni

Vegna yfirlýsingar frá Jóhanni Péturssyni og Guðnýju Hrefnu Einarsdóttur, stjórnarmönnum í ÍBV Íþróttafélagi, viljum við undirritaðir stjórnarmenn taka fram eftirfarandi:
9. april kl.14:59 | eyjar.net

David James reynir að sannfæra Phil Neville um að koma í ÍBV

David James, markvörður ÍBV, er strax farinn að reyna að sannfæra samlanda sína og fyrrum landsliðsfélaga um að koma til Eyja.
9. april kl.10:59 | eyjar.net

Formaður ÍBV íþróttafélags hættir í stjórn félagsins

Ekki eining innan stjórnar ÍBV Íþróttafélags

Yfirlýsing frá Guðnýju Einarsdóttur og Jóhanni Péturssyni

Ágætu félagar í ÍBV Íþróttafélagi
Við undirrituð höfum starfað lengi fyrir ÍBV Íþróttafélag og komið að margs konar verkefnum fyrir félagið í gegnum tíðina.
Við höfum bæði starfað um langa hríð í aðalstjórn félagsins, Guðný frá 2003, lengst af sem gjaldkeri og Jóhann frá árinu 2005 sem formaður. Leiðarljós okkar í því starfi hefur verið að gæta að heildarhagsmunum félagsins, hlúa að starfinu og öllum deildum jafnt, án þess að gengið sé á hlut annarra. Við höfum, í gegnum tíðina, starfað með mörgu góðu fólki í aðalstjórn sem hefur deilt þessum markmiðum með okkur. Margar ákvarðanir hafa verið teknar og fordæmi sett í góðri samvinnu allra aðalstjórnarmanna með málefnalegri umræðu og aðalstjórn því notið trausts og viðurkenningar alls félagsins.
 
9. april kl.05:37 | mbl.is

Gunnar skoraði aftur fyrir Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrra mark Norrköping í gærkvöldi þegar lið hans lagði Gefle að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
 
8. april kl.08:02 | fotbolti.net

Töluvert breitt lið meistaraflokks kvenna mætir til leiks í sumar

Svara Tara og Kristín Erna missa af tímabilinu vegna meiðsla

ÍBV var að styrkja kvennalið sitt með leikmanni frá Wales en á sama tíma hefur félagið tilkynnt að Svava Tara Ólafsdóttir missir af komandi tímabili vegna meiðsla.
7. april kl.08:22 | mbl.is

David James og Di Canio - hálfviti og svindlari

David James, nýráðinn markvörður og aðstoðarþjálfari ÍBV og fyrrum landsliðsmarkvörður Englands í knattspyrnu, hefur ekki jákvæða sögu að segja af kynnum sínum af Paolo Di Canio, nýráðnum knattspyrnustjóra Sunderland.
5. april kl.15:24 | mbl.is

Mæti til vinnu á þriðjudaginn

segi Kári Kristján Kristjánsson

„Maður þarf að sýna ákveðinn klassa og reyna láta þetta ekki ná tökum á sér. Það er leikur á sunnudaginn sem þarf að klára,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, sem var rekinn frá félagi sínu Wetzlar fyrir að spila - að því liðið telur án leyfis - með Íslandi gegn Slóveníu á miðvikudaginn var.

Sölu- og markaðstorg

www.philandteds.is

18. júní kl. 22:40 | Annað
www.philandteds.is s.776-0000 skjaldbaka@skjaldbaka.is Stórhöfði 15 Phil and Teds Mount...

Íbúð til leigu Goslok/Þjóðatíð 2013

17. júní kl. 22:18 | Til leigu
Hef til leigu íbuð 2-3 herbergja á besta stað í bænum.Pláss fyrir 4-6 vinsamlegast sendið em...

Íbúð til Leigu!!

15. júní kl. 17:20 | Til leigu
Er með 3 herbergja íbúð til leigu frá 20-27 Júní á Boðaslóð. Nánari upplýsingar í s...

Falleg 100 fm endaíbúð til leigu

15. júní kl. 12:52 | Til leigu
Falleg 4ra herbergja 100fm endaíbúð í Foldahrauni 40. Íbúðin getur verið laus frá laus fr...

Vantar herbergi til leigu

14. júní kl. 07:18 | Til leigu
19 ára stúlku vantar herbergi til leigu í sumar Hafið samband í síma : 857-4667

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

11. júní kl. 01:07 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...

Íbúð til leigu Pæjumót og Shellmót

11. júní kl. 00:12 | Til leigu
Er með íbúð til leigu pæjumót og Shellmót fyrir 6 eða fleiri upplýsingar í síma 694-1897....

ÓE íbúð yfir Þjóðhátíð

10. júní kl. 21:13 | Til leigu
Við erum hópur af einstaklingum á aldrinum 23-30 ára í leit að gistaaðstöðu yfir Þjóðhá...