Senda inn efni

Eldri fréttir

9. april kl.10:59 | eyjar.net

Formaður ÍBV íþróttafélags hættir í stjórn félagsins

Ekki eining innan stjórnar ÍBV Íþróttafélags

Yfirlýsing frá Guðnýju Einarsdóttur og Jóhanni Péturssyni

Ágætu félagar í ÍBV Íþróttafélagi
Við undirrituð höfum starfað lengi fyrir ÍBV Íþróttafélag og komið að margs konar verkefnum fyrir félagið í gegnum tíðina.
Við höfum bæði starfað um langa hríð í aðalstjórn félagsins, Guðný frá 2003, lengst af sem gjaldkeri og Jóhann frá árinu 2005 sem formaður. Leiðarljós okkar í því starfi hefur verið að gæta að heildarhagsmunum félagsins, hlúa að starfinu og öllum deildum jafnt, án þess að gengið sé á hlut annarra. Við höfum, í gegnum tíðina, starfað með mörgu góðu fólki í aðalstjórn sem hefur deilt þessum markmiðum með okkur. Margar ákvarðanir hafa verið teknar og fordæmi sett í góðri samvinnu allra aðalstjórnarmanna með málefnalegri umræðu og aðalstjórn því notið trausts og viðurkenningar alls félagsins.
 
9. april kl.05:37 | mbl.is

Gunnar skoraði aftur fyrir Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrra mark Norrköping í gærkvöldi þegar lið hans lagði Gefle að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
 
8. april kl.08:02 | fotbolti.net

Töluvert breitt lið meistaraflokks kvenna mætir til leiks í sumar

Svara Tara og Kristín Erna missa af tímabilinu vegna meiðsla

ÍBV var að styrkja kvennalið sitt með leikmanni frá Wales en á sama tíma hefur félagið tilkynnt að Svava Tara Ólafsdóttir missir af komandi tímabili vegna meiðsla.
7. april kl.08:22 | mbl.is

David James og Di Canio - hálfviti og svindlari

David James, nýráðinn markvörður og aðstoðarþjálfari ÍBV og fyrrum landsliðsmarkvörður Englands í knattspyrnu, hefur ekki jákvæða sögu að segja af kynnum sínum af Paolo Di Canio, nýráðnum knattspyrnustjóra Sunderland.
5. april kl.15:24 | mbl.is

Mæti til vinnu á þriðjudaginn

segi Kári Kristján Kristjánsson

„Maður þarf að sýna ákveðinn klassa og reyna láta þetta ekki ná tökum á sér. Það er leikur á sunnudaginn sem þarf að klára,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, sem var rekinn frá félagi sínu Wetzlar fyrir að spila - að því liðið telur án leyfis - með Íslandi gegn Slóveníu á miðvikudaginn var.
5. april kl.08:16 | eyjar.net

Gunnar Þorsteinsson búinn að semja við ÍBV

Hinn ungi knattspyrnumaður Gunnar Þorsteinsson sem hefur síðastliðinn tvö ár verið á samningi hjá knattspyrnuliðinu Ipswich hefur skrifað undir tveggja samning við ÍBV:
5. april kl.07:57 | eyjar.net

AF ÞVÍ AÐ…….

Stjórn Eyverja, félags ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum skrifa

Ungir sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fundu sig knúna til að svara greinarhöfundi einum sem lét birta nýverið mikla áróðursgrein til höfuðs Sjálfstæðisflokknum.
4. april kl.12:35 | eyjar.net

Hvers vegna?

Ragnar Óskarsson skrifar

Nú er stutt til kosninga. Í öllum könnunum vekur mesta athygli að fylgi Sjálfstæðisflokksins er á hraðri niðurleið svo annað eins hefur ekki gerst fyrr í sögunni. Þegar svo er komið veltir maður fyrir sér hvað þessu veldur. Ég held reyndar að skýringarnar séu tiltölulega einfaldar. Ég held að þjóðin sé loks búin að sjá í gegn um Sjálfstæðisflokkinn. Þegar almenningur í landinu spyr sig spurningarinnar: „Hvers vegna kýs ég ekki Sjálfstæðisflokkinn” ? láta svörin ekki á sér stada því þau blasa hvarvetna við.
4. april kl.11:28 | eyjar.net

Lögreglan hantók þrjá aðila sem grunaðir voru um innbrot í Cornero

Í gærdag var tilkynnt til lögreglunnar í Vestmannaeyjum um innbrot í veitingahúsið Cornero. Farið var inná staðinn um nóttina og stolið þaðan töluverðu magni af áfengi. Þetta var í annað sinn á nokkrum dögum sem brotist hefur verið inná þennan stað. Síðdegis í gær handtók lögreglan þrjá aðila sem grunaðir voru um innbrotið og við leit í húsnæði hjá einum þeirra fannst mest af því áfengi sem tekið var í innbrotinu.
4. april kl.10:41 | Morgunblaðið

Bjarni Benediktsson er hæfastur til að rífa Ísland upp til árangurs

Árni Johnsen skrifar

Við Íslendingar erum undarleg þjóð, svo gjörn á að festast í vangaveltum sem engu skipta. Nú ríður á fyrir Ísland að ryðjast upp úr doða og vonleysi.
4. april kl.08:03 | eyjar.net

Hver er þessi David James?

Í fyrradag skrifaði undir samning við ÍBV eitt af stóru nöfnunum í enska boltanum en David James hefur verið atvinnumaður í boltanum frá árinu 1988 er hann byrjaði að leika með Watford.
 
4. april kl.07:57 | eyjar.net

Herjólfur stefnir á siglingar til Landeyjahafnar í dag

 
Ath breyttur brottfarartími vegna dýpis í Landeyjahöfn og sjávarfalla.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 08:30, 11:30, 14:30 og 20:30.
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:00, 13:00, 16:00 og 21:30.
 
Farþegar mæti 30 min fyrir brottför.
 
3. april kl.14:23 | visir.is

Von á fleiri stórstjörnum til Eyja?

„Það verða athyglisverðar fréttir af ÍBV á næstu 7-10 dögum," segir Óskar Örn Ólafsson, formaður meistaraflokksráðs ÍBV.
ÍBV samdi í gær við markvörðinn David James sem mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. James er næstleikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi og margreyndur landsliðsmaður.
 
3. april kl.07:57 | eyjar.net

Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar í dag

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í dag miðvikudag amk fyrri ferð.
Ástæðan er ölduhæði í Landeyjahöfn, núna 2,6m og ónógt dýpi í og við höfnina.
 
2. april kl.15:15 | eyjar.net

David James skrifar undir hjá ÍBV í dag

David James, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, mun skrifa undir samning við ÍBV í dag.
 
Hann verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins, en hann staðfesti þetta á Twitter síðu sinni fyrir skömmu.
2. april kl.15:01 | eyjar.net

Dagbók lögreglunnar

Þrjú innbrot voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið og var í tvígang brotist inn í húsnæði

Helstu verkefni frá 24. mars til 1. apríl 2013

Töluverður erill var hjá lögreglu í páskavikunni enda töluvert af fólki í bænum. Meðal þeirra verkefna sem lögreglan þurfti að sinna voru líkamsárásir, innbrot, þjófnaðir ofl. Nokkuð var um útköll á skemmtistaði bæjarins og eitthvað um pústra en einungis ein líkamsárás hefur verið kærð, enn sem komið er.
2. april kl.07:18 | eyjar.net

Herjólfur siglir skv. áætlun til Landeyjahafnar

Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 08:00, 11:30, 17:30 og 20:30.
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:00, 13:00, 19:00 og 21:30.
Vegna dýpis í Landeyjahöfn gæti þurft að gera breytingar á tímasetningum einstaka brottfaratíma þegar fjara er í Landeyjahöfn á meðan unnið er að dýpkun. Ef svo verður munu tilkynningar verða sendar út.
1. april kl.09:54 | eyjar.net

Sigurrós á Þjóðhátíðinni í ár

 Þó svo að langt sé í að Þjóðhátíðin 2013 verður sett í Herjólfsdal þá er undirbúningurinn byrjaður enda margt sem þarf að klára í tíma fyrir svona stóra útihátíð.
 
Ákveðið hefur verið að gera ákveðnar breytingar á þjóðhátíðinni í ár og miðast þær aðallega að því gera hátíðina að meira tónleikahátíð en fjölskylduhátíð eins og Þjóðhátíðin hefur verið hingað til. Stærsta breytingin verður sú að Húkkaraballið verður fært inn í Herjólfsdal og hefst þjóðhátíðin með stórtónleikum þar á fimmtudagskvöldið samhliða Vitavígslu VKB bræðra. 
29. mars kl.09:24 | eyjar.net

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

 Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í dag föstudaginn langa. Samkvæmt ölduspá mun áætlun skipsins verða þangað næstu daga, nú er ölduhæð í Landeyjahöfn 2,8 m og fer hækkandi. Ástæðan er einnig ónógt dýpi í og við höfnina.Farið var kl. 8:00 frá Vestmannaeyjum og 11:45 frá Þorlákshöfn. Aðeins ein ferð verður farin í dag.
 
 

Sölu- og markaðstorg

Til leigu á Pæjumotinu

24. maí kl. 12:19 | Til leigu
Er með hús til leigu yfir Pæjumótið, tekur 6+ manns í gistingu. Upplýsingar í síma 697556...

Óska eftir gistingu

22. maí kl. 20:22 | Til leigu
Eyjakona úr Reykjavík óskar eftir gistingu 5 til 7 júlí 2013 fyrir tvo uppls. í síma: 698-84...

Íbúð til leigu yfir pæjumót.

23. maí kl. 18:09 | Til leigu
Er með íbúð til leigu yfir pæjumót fyrir 5+.í hjarta bæjarins,,upplýsingar í síma.8439901...

óska eftir húsi/íbúð á þjóðhátið

22. maí kl. 02:06 | Húsnæði
Er að óska eftir húsi eða íbúð yfir þjóðhátíð ef þú ert að leigja út máttu endileg...

Óska efir húsnæði

21. maí kl. 19:42 | Til leigu
óska eftir íbúð/húsi til leigu ? Kæru eyjamenn við erum 5 manna fjölskylda og erum að leit...

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

20. maí kl. 15:52 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...

óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa

19. maí kl. 23:03 | Til leigu
óska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa upplýsingar í sima 8958582 Bergvin

sumarhús í súðavík

19. maí kl. 23:02 | Til leigu
sumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...