Eldri fréttir
1. mars kl.12:16 | eyjar.net
Stefnir á útflutning
Grímur kokkur í nýtt húsnæði
Flytur starfsemina í gamla NET húsið
Grímur Þór Gíslason matreiðslumeistari eða Grímur kokkur eins og við þekkjum hann, hefur verið að leita af nýju húsnæði undir fyrirtæki hans Grímsa kokk sem staðsett hefur verið að Eiði 14 í Vestmannaeyjum.
1. mars kl.08:40 | eyjar.net
ÍBV Íþróttafélag og Flugfélagið Ernir halda samstarfi áfram
Í síðustu viku var undirritaður samningur milli ÍBV Íþróttafélags og Flugfélagsins Ernis. Félögin hafa átt í góðu samstarfi síðastliðið ár og því lá beint við að framlengja samstarfssamninginn.
1. mars kl.07:30 | eyjar.net
Ný ferja hvílir á herðum ríkisins
Smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju stendur og fellur með samningum við ríkið. Samgöngur eru á ábyrgð ríkisins. En með þessu erum við að sýna ábyrgð í verki,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Greint var frá því fyrr í dag að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi í hádeginu samþykkt að stofna hlutafélag um smíði og eignarhald á nýrri Vestmannaeyjaferju. Áætlaður kostnaður við smíðina nemur á bilinu 4 til 5 milljarðar króna. Ríkinu, sveitarfélögum í nágrenni Landeyjahafnar, lífeyrissjóðum á svæðinu og áhugasömum fjárfestingum verður boðin aðkoma að félaginu.
29. febrúar kl.20:37 | eyjar.net
Aukaflug til Eyja
Eins og svo oft áður hefur Flugfélagið Ernir brugðist við eftirspurn á flugi til Eyja. Sett hefur verið upp aukaflug á morgun fimmtudag kl 14:15 til Eyja og frá kl 15:00. Einnig er nú þegar búið að setja aukaflug upp á sama tíma á föstudaginn 2. mars.
29. febrúar kl.13:28 | eyjar.net
Eyjamenn stofna sjálfir félag um smíði og eignarhald á nýrri Vestmannaeyjaferju
Bæjarstjórn samþykkir að stofna hlutafélag um smíði og eignarhald á nýrri Vestmannaeyjaferju. Auk Vestmannaeyjabæjar verður ríkinu, öðrum sveitarfélögum á áhrifasvæði Landeyjahafnar, lífeyrissjóðum og áhugasömum fjárfestum boðin aðkoma að félaginu.
Siglt verði allt árið í höfnina eftir tvö ár
Árni Johnsen alþingismaður segir að Siglingastofnun stefni að því að árið 2014 verði búið að gera breytingar á Landeyjahöfn sem dugi til að hægt verði að nota höfnina allt árið. Samhliða vonast hann eftir að þá verði ný ferja að koma til landsins.
29. febrúar kl.10:04 | eyjar.net
Gísli Mattías á leiðinni í keppnina Matreiðslumaður Norðurlanda 2012
Gísli Mattías Auðunsson mun keppa fyrir hönd Íslands um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda 2012 sem haldin verður í Herning í Danmörku þriðjudaginn 20. mars.
Fyrirkomulag á keppninni er að 5 matreiðslumenn frá öllum norðurlöndunum taka þátt auk þess sem hvert land sendir svokallað "wildcard" en það er nemi eða sveinn sem ekki er orðin 23 ára á keppnisdag.
29. febrúar kl.08:33 | ibvsport.is
Stúkubygging í fullum gangi
Nú er unnið hörðum höndum að stúkubyggingunni enda ærin ástæða til þar sem stutt er í að Íslandsmótið hefjist. Fyrsti leikur karlaliðs ÍBV verður 10.mai gegn Breiðablik og þann 13.mai leika stúlkurnar gegn Val.
28. febrúar kl.11:12 | visir.is
Eyjamaður opnar nýjan veitingastað í borginni
Nýverið opnaði veitingastaðurinn Roadhouse en staðurinn og matseðillinn er í anda alvöru amerískra veitingastaða þar sem að boðið er upp á hamborgara, rif, samlokur og margt margt fleira.
Kertin á Heimakletti
Sighvatur Jónsson fréttaritari RÚV í eyjum er naskur á gott fréttaefni og eru innslög hans af mannlífinu í eyjum skemmtileg og fræðandi. Eitt slíkt var í þættinum Landanum síðastliðið sunnudagskvöld.
27. febrúar kl.14:44 | eyjar.net
Dagbók lögreglunnar
Þrír ökumenn sektaðir fyrir að aka án þess að vera með öryggisbeltin
Helstu verkefni frá 20. til 27. febrúar 2012
Að vanda var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en þó fór allt áfallalaust fram. Skemmtanahald helgarinanr fór þokalega fram en eitthvað var þó um óspektir sökum ölvunarástands gesta skemmtistaðanna. Þá var eitthvað um kvartanir til lögreglu vegna hávaða í heimahúsum.
27. febrúar kl.11:50 | mbl.is
Framkvæmdir á lóðinni stöðvaðar
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur stöðvað stækkun lóðar og viðbyggingu Ísfélagsins í Vestmannaeyjum meðan nefndin er með málið til meðferðar. Krafa um stöðvun var sett fram af Vinnslustöðinni.
27. febrúar kl.08:37 | eyjar.net
Bann við veiðum á lunda mun ekki auka fæðuna í hafinu við Vestmannaeyjar
Þann 22.febrúar síðastliðinn fundaði Bæjarstjórn Vestmannaeyja og m.a. þess sem að bæjarstjórnin samþykkti á fundi sínum var ályktun vegna frumvarps umhverfisráðherra um algjör bann á svartfuglaveiðum. Ályktun bæjarstjórnar má lesa hér að neðan:
25. febrúar kl.15:31 | eyjar.net
ÍBV töpuðu úrslitaleiknum á móti Val 18-27
Valsstúlkur tryggðu sér í dag Eimskipsbikarmeistaratitilinn í handknattleik kvenna með öruggum og sannfærandi sigri á ÍBV í úrslitaleik í Laugardalshöll 27-18. Valsstúlkur höfðu sjö marka forystu í hálfleik, 13-6, og höfðu í raun yfirburði á öllum sviðum íþróttarinnar. Þetta er þriðja árið í röð sem Valur leikur til úrslita í Eimskipsbikarkeppni kvenna en fyrsti titill stúlknanna síðan árið 2000
25. febrúar kl.08:37 | visir.is
Nánast landsliðið á móti ÍBV í bikarúrslitunum í dag
Hið spræka lið ÍBV fær það verðuga verkefni að takast á við hið ógnarsterka lið Vals í úrslitum Eimskipsbikars kvenna en leikurinn hefst klukkan 13.30.
24. febrúar kl.16:13 | eyjar.net
Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal á opnum stjórnmálafundi í eyjum á morgun
Á morgun, laugardag kl. 15 verður opinn stjórnmálafundur í Ásgarði með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, Ólöfu Nordal varaformanni og þingmönnunum Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Árna Johnsen. Allir velkomnir, en um er að ræða kjörið tækifæri til að hitta forystu Sjálfstæðisflokksins.
24. febrúar kl.13:35 | eyjar.net
Tónleikum Valgeirs frestað
Tónleikar Valgeirs Guðjónssonar sem áttu að fara fram í kvöld í Höllinni frestast um óákveðinn tíma. Þar sem að Herjólfur sigldi ekki í morgun þá komust listamennirnir ekki yfir til eyja á réttum tíma.
24. febrúar kl.11:08 | eyjar.net
Hagmunaaðilar í eyjum senda bréf á Ögmund Jónasson vegna útboðs á rekstri Herjólfs
Á miðvikudaginn var póstlagt bréf stílað á Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra sem að nokkrir hagsmunaaðilar í Vestmannaeyjum skrifuðu undir vegna væntanlegt útboðs á rekstri Herjólfs.
Valur er ekki ósigrandi
segir Svavar Vignissonar þjálfari ÍBV
Svavar Vignisson, þjálfari kvennaliðs ÍBV sem mætir Val í úrslitum Eimskipsbikars kvenna í handknattleik í Laugardalshöll á morgun, laugardag, segir ljóst að það verði við ramman reipa að draga að mæta Val í úrslitaleiknum.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


