Eldri fréttir
19. nóvember kl.13:15 | eyjar.net
Fyrsta ferð á morgun, laugardag, í Þorlákshöfn og staðan svo skoðuð
Fyrsta ferð á morgun, laugardag, verður í Þorlákshöfn klukkan 07:30 og til Vestmannaeyja klukkan 11:15. Tekin verður ákvörðun í fyrramálið um framhaldið. Spáð batnandi veðri síðdegis á morgun og næstu daga. Segir í fréttatilkynningu frá Eimskip.
18. nóvember kl.10:25 | eyjar.net
Herjólfur siglir á Þorlákshöfn á morgun, föstudag
Herjólfur mun sigla á Þorlákshöfn á föstudag. Spáð er batnandi veðri þegar liður inn í helgina. Herjólfur siglir því frá Vestmannaeyjum 07:30 og 15:15 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15 og 18:45.
17. nóvember kl.18:31 | eyjar.net
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á morgun
Fimmtudaginn 18. nóvember verður siglt til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum klukkan 07:30 og klukkan 15:15. Ferðir frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja verða klukkan 11:15 og 18:45.
17. nóvember kl.11:15 | eyjar.net
Herjólfur á Facebook
Upplýsingar aðgengilegar á síðunni
Í vikunni ákvað Eimskip að setja upp Facebook síðu fyrir Herjólf til að mæta auknum kröfum um aðgengi upplýsinga. Allar fréttir sem fara á www.herjolfur.is og eru sendar á fjölmiðla eru einning settar um leið inn á nýju Facebook síðuna.
16. nóvember kl.12:07 | eyjar.net
Siglt til Þorlákshafnar seinni partinn í dag
Þar sem óvissa er um að Landeyjahöfn verði far síðdegis, þá hefur verið ákveðið að hætta við áform um að sigla þangað í dag, en sigla í þess stað til Þorlákshafnar kl. 15:15 og til baka frá Þorlákshöfn kl. 18:45
12. nóvember kl.16:45 | eyjar.net
UNIFEM kemur til Vestmannaeyja!
Viltu hafa fiðrildaáhrif? Vissir þú að þitt framlag, hversu lítið sem það er, skiptir máli? Saman getum við breytt lífi kvenna og barna um allan heim til hins betra og stuðlað að auknu jafnrétti um heim allan.
UNIFEM er vettvangurinn sem hjálpar þér að leggja hönd á plóg.
9. nóvember kl.14:14 | eyjar.net
Bergvin Oddsson vill heyra í sunnlendingum
Bergvin Oddsson 24 ára Vestmannaeyjingur, búsettur nú á Akureyri hefur gefið kost á sér til Stjórnlagaþings sem kosið verður til þann 27. nóvember nk.
Bergvin ætlar að þeysast um Suðurlandið nú í lok vikunnar og ræða við Sunnlendinga um sitt framboð og ekki síst að hlusta á fólk og heyra þeirra skoðanir á stjórnarskránni.
8. nóvember kl.19:48 | eyjar.net
Herjólfur siglir ekki kl:20.00 frá Vestmannaeyjum
Herjólfur siglir ekki kl:20.00 frá Vestmannaeyjum og ekki kl:21.30 frá Landeyjahöfn, vegna mikillar hreyfingu í innsiglingu Landeyjarhafnar.
4. nóvember kl.16:03 | eyjar.net
Herjólfur siglar að nýju í Landeyjahöfn seinni partinn á morgun
Dýpkun Landeyjahafnar gengur ágætlega enda eru aðstæður góðar. Komi ekkert óvænt upp, þá verður áætlun föstudagsins 5. nóvember eftirfarandi.
25. október kl.15:40 | eyjar.net
Herjólfur siglir ekki seinni ferðina í dag vegna veðurs
Í fréttatilkynningu frá Eimskip þá hefur verið ákveðið að seinni ferð Herjólfs mánudaginn 25. október falli niður vegna veðurs. Á stórhöfða eru vindkviður upp á 40. metra á sekúndu. Veður á að lægja í kvöld og ætti því Herjólfur að geta siglt til Þorlákshafnar í fyrramálið.
20. október kl.15:38 | eyjar.net
Saga Útvegsbænda í Eyjum
Útvegsbændafélagið í Eyjum 90 ára í dag
Út er komin bókin „Saga Útvegsbændafélags Vestmannaeyja 1920 – 2010“. Eins og nafnið bendir til er þetta saga Útvegsbændafélagsins í Eyjum en það var stofnað 20. október 1920 og fagnar félagið því 90 ára afmæli um þessar mundir.
12. október kl.10:34 | eyjar.net
Kynning á Lærum og leikum með hljóðin
Fimmtudaginn 14.október verður Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur með opið hús fyrir foreldra, kennara og aðra áhugasama á ,,Lærum og leikum með hljóðin" og fræðsla veitt um framburð og málþroska barna. Kynningin fer fram í sal Hamarsskóla kl.17-18. Allir velkomnir; gott að hittast og ræða málin eftir kynninguna.
30. september kl.13:54 | eyjar.net
Vetrarstarfið að hefjast
Frjálslyndir leita eftir flokks meðlimum
Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins í Vestmannaeyjum byrjar vetrarstarfið nk. laugardag með fundi. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í starfinu eða gefa kost á sér í stjórn bæjarmálafélagsins eru beðnir að hafa samband í síma 869-3499 eða 698-1957.
27. september kl.19:17 | eyjar.net
Ferðir Herjólfs falla niður á morgun
Vegna óhagstæðra sjávarfalla mun ferð Herjólfs sem á að fara frá Vestmannaeyjum á morgun 28.september kl. 10:30 og frá Landeyjahöfn kl.12:30 falla niður.
10. september kl.21:00 | eyjar.net
ÍBV - KR!!
Nú gerum við allt vitlaust á Hásteinsvelli
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Topplið ÍBV tekur á móti KR á sunnudaginn kl.
17:30. ÍBV hefur spilað tvívegis við KR í sumar og tapað báðum leikjunum 1-0. Væntanlega situr leikurinn í Frostaskjóli eitthvað í mönnum og höfum við harm að hefna síðan þá. Áhorfendur eru hvattir að skilja bílinn eftir heima, eða leggja honum við Íþróttamiðstöðina.
Loftbrú milli lands og Eyja
Flugfélagið Ernir hefur síðustu daga haft í nógu að snúast við að koma fólki til og frá Eyjum. Samkvæmt áætlun eru tvær ferðir á dag alla daga vikunnar en til að bregðast við mikilli eftirspurn síðustu daga hefur félagið sett upp eina til tvær aukaferðir á dag. Á morgun fimmtudag verður aukaflug frá Reykjavík til Eyja kl 15:00 og frá Eyjum 15:45. Það eru því þrjú flug til og frá Eyjum uppsett á morgun.
Flugfélagið Ernir með auka flug í dag
Flugfélagið Ernir er búið að bæta við flugi 15:00 frá Reykjavík og 15:40 frá Vestmannaeyjum enn laus sæti. Nánari upplýsingar í síma 562-2640 / 481-3300 og á www.ernir.is
19. ágúst kl.18:48 | eyjar.net
900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag
ÍBV tekur á móti Grindavík í PEPSI-deild karla á sunnudaginn kl 18:00. Af því tilefni ætlar ÍBV ásamt Geira og hans fólk að gefa pylsur og pepsí á planinu við hlið 900 Grillhús(gamla Axel Ó) fyrir leikinn. Sérstök ÍBV tilboð verða á mat og drykk. Fjörið byrjar klukkan 16:00.
28. júlí kl.10:00 | eyjar.net
þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2010 komið út
“Upplifi Þjóðhátið eins og eitt stórt ættarmót”
Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2010 er komið. Blaðið 72 síður og fullt af lesmáli sem og skemmtilegum myndum frá Þjóðhátíðum í gegnum árin. Í blaðinu í ár er skemmtileg grein um þjóðhátíðarlögin eftir Guðrún Jónsdóttir þar sem hún fjallar um þau frá sínum bæjardyrum.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


