Eldri fréttir
27. júlí kl.19:30 | eyjar.net
Nova á Þjóðhátíð
Við erum að sjálfsögðu mætt á Þjóðhátíð og búin að koma okkur fyrir í Eyjabúð. Við bjóðum Eyjamenn sérstaklega velkomna til Nova og hvetjum alla til að koma við hjá okkur og fá kók í gleri.
27. júlí kl.12:15 | eyjar.net
Samfélagsverkefni þjóðhátíðarnefndar og fjölmiðla í Eyjum:
Tjöldum saman á miðvikudaginn klukkan 18
Virðum rétt sjálfboðaliða til tjaldstæða
Þjóðhátíðarnefnd hefur ákveðið að tjöldun hvítra hústjalda í Herjólfsdal verði leyfð á miðvikudaginn klukkan 18, degi fyrr en vanalega. Er þetta liður í samfélagsverkefni nefndarinnar og fjölmiðla í Vestmannaeyjum með það að markmiði að færa tjöldunina í betra horf. Er sérstaklega horft til þess að varðveita þá áralöngu hefð sem hefur skapast fyrir því að sjálfboðaliðar sem vinna að undirbúningi hátíðarinnar fái tækifæri til að velja sér fyrstir tjaldstæði.
29. júní kl.09:00 | eyjar.net
Dúndurfréttir í Höllinni á fimmtudaginn
Dúndurfréttir verða á fimmtudagskvöldið 1 júlí í Höllinni Vestmannaeyjum..
Led Zeppelin 40 ára afmælistónleikar til heiðurs þessari þessari mögnuðu sveit...þetta verða blóðnasir og algjör geggjun....
húsið opnar kl 21:00 og TÓNLEIKARNIR HEFJAST 21:30
29. júní kl.05:43 | eyjar.net
Eyjan okkar 2010
Ákveðið hefur verið að setja vöru/þjónustu og fyrirtækjasýninguna "Eyjan okkar" á helgina 23-24 júlí en þetta er fyrsta helgin sem Herjólfur mun sigla úr Bakkafjöru.
2. júní kl.18:00 | eyjar.net
Segway hjólaleiga í sumar í Vestmannaeyjum
www.segwaytours.is
Léttitækni ehf afhenti í síðustu viku 10 stk Segway hjól til SegVeyja ehf sem verða með leigu á Segway hjólum í sumar í Vestmannaeyjum. Þetta er fyrsta Segway hjólaleigan á Íslandi. SegVeyjar verða í samstarfi við Kanann, Símann og Skjá einn og því verða hjólin eitthvað á ferð um landið í sumar (sjá nánar um Sumarhvell Kanans inn á kaninn.is). Aðstandendur Sumarhvellsins þjófstörtuðu í Smáralind um liðna helgi, svona rétt til að prufukeyra hjólin og koma sér í gírinn. Fyrsti Sumarhvellurinn verður hinsvegar í Grindavík á laugardag, á Sjóaranum síkáta.
2. júní kl.10:42 | eyjar.net
Rokkeyjan 2010
Fréttatilkynning frá Höllinni
Það verður hin bráðefnlegi Svanur Páll Vilhjálmsson sem mun hita upp fyrir stjörnunar á risatónleikunum sem haldnir verða í Höllinni á föstudaginn kemur..
Svanur er aðeins 14 ára gamal en hann mun taka öll flottustu lögin til að koma liðinu í rétta gírinn fyrir stjörnur á borð við Pál Rósinkranz og Andreu Gylfa..
27. maí kl.18:00 | eyjar.net
VÍS og ÍBV semja um Tryggingar á leikmönnum ÍBV
Undirritaður hefur verið samningur milli ÍBV og VÍS þess efnis að VÍS mun sjá um að tryggja alla leikmenn meistaraflokks ÍBV og í leiðinni gerist VÍS styrktaraðili ÍBV. Samningurinn er til tveggja ára. Markmið VÍS er að leggja sitt af mörkum til að styðja íBV til góðra verka í efstu deild því þar á ÍBV heima og hvergi annarsstaðar.
Fréttatilkynning frá Sundlaug Vestmannaeyja
Opið á morgun milli 10-14
Ákveðið hefur verið að opna sundlaugina á morgun hvítasunnudag frá kl. 10-14. Sundlaugin var vígð í dag laugardag og mikið fjör á svæðinu. Við vonumst til þess að fólk nýti tækifærið á morgun og sóli sig í góða veðrinu á meðan börnin eru við leik. Þess ber að geta að gufubaðið er lokað tímabundið vegna bilunnar.
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja
6. maí kl.18:00 | eyjar.net
Tilkynning frá Sundlaug Vestmannaeyja
Vinna við útisvæðið gengur vel
Vinna við útisvæðið gengur vel og stutt í að allt verði klárt. Enn er verið að prufukeyra laugar og tæki og munu hlutar af svæðinu opna af og til miðað við framgang verksins. Sundlaugin verður lokuð miðvikudaginn 12. maí vegna framkvæmda, viðhalds og námskeiða starfsfólks.
Sumaropnunartími tekur gildi frá og með 2. júní til 31. ágúst og verður eftirfarandi:
6. maí kl.17:08 | eyjar.net
Fréttatilkynning frá Höllinni
Rekstaraðillar Hallarinnar hafa ákveðið að breyta opnunatímanum í Höllinni og munu böllin nú standa frá 23:30 til 03 en ekki 04 eins verið hefur undan farin ár!
Ný Dönsk mun leika á Risaballi annað kvöld en þeir hafa ekki leikið fyrir dansi í Höllinni í mörg ár og munu þeir félagar mæta í miklu stuði með Daníel Ágúst í broddi fylkingar, breyting á opnunartíma mun taka í gildi á morgun (föstudagskvöld)
5. maí kl.15:25 | eyjar.net
Kynningarfundurinn um Landeyjahöfn
Kynningarfundurinn um Landeyjahöfn verður haldinn á auglýstum tíma kl. 17.30 í Höllinni í dag.
Framsögumenn frá Herjólfi, Vegagerðinni, Eimskip, Hótel Rangá og Siglingastofnun eri á leiðinni til Eyja
Allir hvattir til að mæta !!
Vestmannaeyjabær
5. maí kl.12:00 | eyjar.net
Sýningin Eyjan okkar 2010 hefur verið færð á goslokahelgina
Stórsýningin "Eyjan okkar 2010" sem halda átti dagana 21-22 maí næstkoamndi hefur verið færð á goslokahelgina og verður hún haldin dagana 2-4 júlí.
Þetta er gert til að gefa fleirum kost á að sjá og upplifa það sem Eyjar og sveitafélögin hér í kringum eyjaklasann hafa uppá að bjóða.
Gert er ráð fyrir gríðlalegum fjölda gesta á hátíðina og munu gestir fá að sjá og upplifa allt það sem Eyjar hafa uppá að bjóða fyrir íbúa og gesti þeirra bæði í þjónustu og innviðum samfélagsins Eyjanna
4. maí kl.06:00 | eyjar.net
Frjálslyndir bjóða ekki fram lista til bæjarstjórnarkosninga
Eins og fram hefur komið hafa Frjálslyndir skoðað möguleika á framboði til bæjastjórnarkosninga í Ve. 29.mai nk.
Það kom strax fram hjá okkar fólki að æskilegast væri að Frjálslyndir byðu fram sér , við höfum átt í viðræðum við fólk og flokka og skoðað þá ýmsu möguleika sem upp hafa komið.
En það er mat okkar að þær þreyfingar hafi ekki skilað því sem við Frjálslynd getum sætt okkur við. Því hefur stjórn bæjarmálafélasins tekið þá áhvörðun að bjóða ekki fram nú.
28. april kl.12:45 | eyjar.net
Hjálpum nágrönnum okkar undir Eyjafjöllunum við hreinsunarstörf
Skráning í síma 488-2000
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hvetur alla Eyjamenn, sem tök hafa á til þess að taka þátt í hreinsunarátaki undir Eyjafjöllunum nk. laugardag 1. maí. Farið verður frá Eyjum í boði Herjólfs með fyrri ferð kl. 8.15 á laugardaginn 1. maí, og til baka aftur með seinni ferð 19.30 þann sama dag. Rútur flytja fólkið til og frá Þorlákshöfn á hamfarasvæðin.
26. april kl.14:00 | eyjar.net
Diskóvika í Eyjum
Höllin Vestmannaeyjum
Nú er hafin diskovika Eyjanna 2010 sem endar með risadiskóballi uppí Höll á Laugardaginn.
Forsala er hafin á Volcano Café og kostar miðinn þar 1500 kr en Hallarmenn hafa ákveðið að frá og með 1 maí mun miðaverð lækka á dansleiki í Höllinni niður í 2000 kr í hurðinni, þetta viljum við gera til að koma til móts við viðskiptavini okkar sem hafa verið tryggir Höllinni öll þessi ár sem við höfum verið hér.
23. april kl.15:16 | eyjar.net
Tríkot og Lúðró 15. Maí
-í þriðja og síðasta sinn
Þann 15. maí næstkomandi munu Tríkot liðar ásamt Lúðrasveit Vestmannaeyja blása til stórtónleika eins og þeir gert hafa undan farin tvö ár í Höllinni í Vestmannaeyjum. Þetta munu vera þriðju og síðustu tónleikarnir í bili. Síðustu tveir tónleikar hafa heppnast vonum framar og var uppselt á þá báða. Tónleikarnir verða með sama sniðu og verið hefur, flutt verða vinsæl popp- og rokklög undanfarinna áratuga til að mynda lög eftir Queen, Wings, Commitments, Robbie Williams, Björgvin Halldórs, Pál Óskar, Johnny Cash, Creedence Clearwater revival, U2 og fleiri góða.
20. april kl.10:35 | eyjar.net
Diskóhátíð í Höllinni 2010
Sjáið dagskrána
Í miðju gosi og skýrslu útkomu er undirbúningur Diskóhátíðar Hallarinnar í fullum gangi en þetta er í annað skipti sem Hallarhjónin Bó og Margrét standa fyrir þessari hátíð en þetta var haldið í fyrsta skipti í fyrra en hún mun fara fram Laugardagskvöldið 1 maí í ár.. Hátíðin í ár verður sú síðast í bili en skipt verður um þema fyrir næsta ár Hátíðin er vegleg að vanda en glæsileg dagskrá er í boði.
16. april kl.14:35 | eyjar.net
Tilkynning frá Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja
Dreifing á rykgrímum til bæjarbúa í dag.
Þar sem spáð er norðlægum áttum í kvöld og um helgina eru líkur á öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Eyjafjallajökli næstu daga.
Af þessu tilefni ákvað Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja á fundi sínum eftir hádegið í dag að hefja dreifingu á rykgrímum til íbúa í bænum. Grímunum er dreift í dag kl. 17-19 í húsnæði Björgunarfélagsins og einnig á morgun og sunnudag kl. 13-15.
16. april kl.11:50 | eyjar.net
Eyjan okkar 2010
Dagana 21-22 maí (hvítasunnan)
Nú er skráning hafin að fullum þunga og gengur vel að fylla plássinn á sýningarsvæðinu og eru undirtektir fyrirtækja og einstaklinga góð og hvetjum við alla þá sem áhuga hafa á að koma vöru sinni eða framleiðslu á framfæri á ódýrann og skilvirkann hátt að hafa samband við okkur sem fyrst.
Öllum er frjálst að vera með en þetta er einnig hugsað sem sölusýning þannig að þátttakendur geta náð uppí kostnað við helgina.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


