Eldra blogg
24. júlí kl.08:24 | eyjar.net
Komnir aftur á miðin, veiði hafin! og Sibbi Álseyjar meistari í Badminton!
Það var búið að landa úr báðum skipunum um tíuleitið í gærkvöldi. Þetta voru 1.644 tonn sem komu upp hjá okkur og tæp 1.000 tonn hjá Júpíter eftir því sem ég best veit. Því saman tæp 2.700 tonn aðeins minna en við vorum að reikna með.
21. júlí kl.08:00 | eyjar.net
Róðrar og lundinn, hver græðir mest?
Mikið búið að róa í þessari viku og mikið búið að fiska, eða upp undir 10 tonn svo fram undan er að fara aftur niður á fjórar fætur fyrir kvótaeigendum í von um að fá að veiða eitthvað meira.
15. júlí kl.08:04 | eyjar.net
Þessi túr er að líða undir lok, löndun á Þórshöfn í fyrramálið
Þá er þessi túr að líða undir lok, það hefur verið frekar rólegt yfir þessu síðustu daga. Trollið hjá okkur tók uppá því flækjast og flækjubókin er týnd ;-)eða þannig!...eða nóg til þess að því verður ekki kastað meira í þessum túr.
7. júlí kl.12:11 | eyjar.net
Loksins, loksins, loksins......
Jæja öll sömul loksins kemur eitthvað nýtt inn á síðuna. Tvennt hefur verið að orsaka bloggleysi, annars vegar að ég hef verið á sjó undanfarið á Ísleifi VE 63 og þar um borð fer ekki mikið fyrir nettengingu. Hins vegar var ég í vandræðum með stjórnborðið en eins og sést glögglega er það komið í lag.
2. júlí kl.09:21 | eyjar.net
Vonbrigði og hugleiðingar
Ég var búin að ákveða það að um fótbolta skyldi ég ekki blogga en það er eins og önnur heit að þegar manni er nóg boðið þá kemur penninn upp í mér.Ég var að lesa umsögn um leik´Fylkis og ÍBV á Vísi ís og ALDREI hef ég lesið aðra umsögn um eitt lið og lið Eyjamanna í kvöld.
2. júlí kl.09:10 | eyjar.net
Goskokahátíðin er um helgina, en svona lítur þetta út í huga mér
Það er 22. janúar 1973 og ég man eftir því að ég fór frekar seint að sofa og að það var svona smá hrollur í mér, enda átti ég að mæta í leikfimi kl. 8 um morguninn og það var alltaf frekar kalt í gamla leikfimisalnum svona snemma morguns um hávetur.
30. júní kl.09:00 | eyjar.net
Komnir í samband
Góða kvöldið
Við höfum verið sambandslausir í nokkra daga og höfum við grun um að Hjalti Jóh hafi tekið netið úr sambandi vegna þess að það átti að setja smá sögu um hann er hann var yngri. En hann tók loforð hjá mér að sleppa henni og er ég maður sem stendur við mín orð, þið fáið hann bara seinna þegar Hjalti fer í frí. Badda skólasystir það er bara útaf sambandsleysi sem ekkert hefur komið á síðuna í 2 eða 3 daga.
Við höfum verið sambandslausir í nokkra daga og höfum við grun um að Hjalti Jóh hafi tekið netið úr sambandi vegna þess að það átti að setja smá sögu um hann er hann var yngri. En hann tók loforð hjá mér að sleppa henni og er ég maður sem stendur við mín orð, þið fáið hann bara seinna þegar Hjalti fer í frí. Badda skólasystir það er bara útaf sambandsleysi sem ekkert hefur komið á síðuna í 2 eða 3 daga.
25. júní kl.08:21 | eyjar.net
FURÐULEG VINNUBRÖGÐ Í VESTMANNAEYJUM
Ég er varla búinn að sleppa puttunum af lyklaborðinu og gleðjast yfir þeirri yfirlýsingu umhverfisráðs Eyjanna um bann við lundaveiði í sumar, þegar sjálfur bæjarstjórinn dregur í land með þá ákvörðun.
22. júní kl.08:35 | eyjar.net
Meira um lundann (að gefnu tilefni)
Var að horfa upp í Heimaklett núna áðan með sjónaukanum, mikið lundaflug austast í klettinum og fyrir ofan efri göngustíg, en lítið á Kleifunum. Kannski gott dæmi um þær breytingar sem orðið hafa síðustu ár, því að eftir að Eiðis svæðið fór að byggjast upp og umferðin þar að aukast með tilheyrandi hávaða og látum, þá hefur lundinn greinilega hopað undan ofar og austar í klettinum, en eins og nýlegar myndir hér á bloggsíðunni hjá mér úr suðurfjöllunum sýna, þá er engin breyting þar.
15. júní kl.11:13 | eyjar.net
Róðrar og lundinn
Ég réri þrisvar í vikunni, fiskiríið var ágætt eða liðlega 6 tonn. Tíðin hefur verið með eindæmum góð að undanförnu, en framundan eru austlægar áttir sem eru mjög óhentugar hér í Eyjum, en henta mér ágætlega, enda á ég ekki krók beittan í frystiklefanum og þarf að fara að skvera bátinn, enda komin tími á skoðun.
12. júní kl.07:13 | eyjar.net
Þá er vel heppnuð sjómannahelgi að baki og áhöfnin á Álsey er farinn út til síldveiða á ný.
Veisluhöldin hófust formlega með fótboltamóti sjómanna á föstudeginum, tókum við Álseyjarmenn þar þátt og stóðum við okkur með ágætum. Eftir tvo góða sigra á Suðurey og Berg/Hugins útgerð, var um hreinan úrslitaleik á milli okkar Álseyjarmann og Huginn VE 55 staðreynd. En það var nokkuð sem stefnt var að. Um hörkuleik var að ræða þar sem þeir Hugins menn sóttu í við meira. Við gáfum þó ekki mikið færi á okkur, nema þeim leikmönnum sem við gátum verið rólegir með að myndi aldrei ná að skora þó svo þeir stæðu einir á marklínu eða héldu í stöngina, menn eins og t.d Óskar Haralds;-)
4. júní kl.08:19 | eyjar.net
Á leið til Þórshafnar, framundan einvígi við Huginn VE 55 og sjómannahelgi
Við lögðum af stað til Þórshafnar um fimmleitið í dag, Júpíter átti því síðasta halið í þessari syrpu og uppskáru að ég held 200 tonn.( þeir Júbba menn leiðrétta mig sé það rangt) En það var ekki tími fyrir meira og stefnan var tekinn á Þórshöfn á Langanesi og ættum við að vera þar um kvöldmatarleitið á morgun(fimmtudag). Við erum með um 650 tonn og Júpíter eitthvað aðeins minna. En þetta voru aðeins tvö höl á skip og var trollið okkar í sjó samtals um 8-9 tíma fyrir þessi 650 tonn.
3. júní kl.16:44 | eyjar.net
Þetta verður.....
....gaman að heyra! Það verður gaman að sjá hvernig "konungurinn" tæklar þetta. Smellir hans í gegnum tíðina benda til þess að maður getur átt von á einhverju bitastæðu, nýju lögin með EGÓ-inu eru þrælfín og með því betra sem komið hefur út af íslensku "útvarpsvænu" það sem af er ári, og náttúrulega Ljótu Hálfvitarnir.
2. júní kl.07:39 | eyjar.net
Hér er enn þá vetur
Það er aldeilis búið að sigla um sjóinn í þessum túr. Við vorum komnir einar 100 sml. austur af Jan Mayen en það var engin síld á því svæði svo að snúið var við. Við höfum verið á suð-vestur stefnu í allan dag en ekki séð einn einasta glampa á mælunum. Við erum með stefnuna suður fyrir eyjuna en þar var síld þegar við vorum þar um helgina.
28. maí kl.11:15 | eyjar.net
Hvar eru stuðningsmenn ÍBV
Núna er það staðreynd að ÍBV er ekki búið að fá stig í fyrstu fjórum leikjum deildarinnar og allt er í rugli eins og talað er um af stuðningsmönnum ÍBV bæði við hvern annan og á spjallinu á heimasíðu félagsins en mér langar að minna stuðningsmenn á að leikmenn ÍBV eru ungir strákar sem eiga framtíðina fyrir sér förum nú ekki að falla í þessa gildru að byrja að dæma liðið og þjálfarann eftir fjóra leiki þetta er ekki eyjamönnum sæmandi.
26. maí kl.08:51 | eyjar.net
Erum lagðir af stað til Eyja með 1.100 tonn
það var tekinn kippur í nótt suður á bóginn. Fimmtíu mílum sunnar tókum við okkar síðasta hal í þessum túr, híft var fljótlega eftir hádegi tæp tvöhundruð tonn. Vorum við því lagðir af stað áleiðis til Eyja um kaffileitið í dag. Almar og félagar í FES ættu því að eiga von á okkur fyrir hádegi á miðvikudag, þá ætla þeir að vera klárir til að landa í vinnslu. Já það er reiknað með að vinna afla í frystingu. vonandi gengur það eftir og landvinnslan taki smá kipp og við upplifum vertíðastemmingu í byrjun sumars. Við erum að tala um 1.100 tonn af síld sem er stór en mögur.
20. maí kl.16:38 | eyjar.net
Ótrúlega stutt í að siglt verði í Landeyjahöfn
Það er gott að vita af því að vel gengur við að koma á mikilvægum samgöngubótum til handa Eyjamönnum. Með tilkomu Landeyjahafnar skapast gríðarlega mikil tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila í Eyjum og á landi. Verkefnið hefur gengið vel frá upphafi og allar líkur eru á því að tímaáætlanir standist sem þýðir að við siglum milli Landeyja og Eyja eftir rúmt ár.
13. maí kl.08:59 | eyjar.net
PÁFI Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM ?
Auðvitað var páfi aldrei nasisti þrátt fyrir að hafa verið skráður í flokkinn, þegar hann var að læra til prests. Þetta minnir á sögu, sem ég heyrði fyrir nokkrum árum síðan af ungri dömu, en hún kom hérna á þjóðhátíð í Eyjum, sem svo margir gera.
8. maí kl.12:30 | eyjar.net
Ætli Hörður Torfason,Hallgrímur Helgason og ungliðar Vinstri grænna mæti og hrópi Vanhæf ríkisstjórn.
Eðlilega eru margir að missa þolinmæðina því lítið hefur sést til skjaldborgarinnar um heimilin. Hafi einhvern tímann verið slegið tjaldborg um heimilin er hún fokin. Almenningur finnur það nú betur og betur að Vinstri stjórnin er ekki í neinum þeim aðgerðum sem talað var um hástöfum fyrir kosningar.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


