Eldri fréttir
3. mars kl.21:23 | mbl.is
Missti stjórn á hjólinu og féll af því
Karlmaður á sextugsaldri féll af mótorhjóli á Strandvegi í Vestmannaeyjum skömmu fyrir klukkan fimm í dag eftir að hafa misst stjórn á hjólinu. Rann hann 33 metra leið á hjólinu áður en hann féll af því samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.
1. mars kl.13:03 | eyjar.net
Eldur og aska eftir Pál Steingrímsson sýnd í Háskólabíó í dag
Í dag klukkan 16:15 býður Páll Steingrímsson, öllum Vestmannaeyingum og öðrum áhugasömum á sýningu myndar sinnar; "Eldur og aska" í Háskólabíó.
1. mars kl.08:59 | ibvsport.is
Eyjablikk og ÍBV gera með sér samstarfssamning til þriggja ára
Á mánudaginn skrifaði ÍBV - íþróttafélag undir samstarfssamning við Eyjablikk ehf.
Við undirskrift samnings varð Eyjablikk stór samstarfsaðili að yngri flokka starfi félagsins. Á nýju keppnistreyjunum okkar verða 3 auglýsingar frá Eyjablikk ehf.
Veiðigjald mun áfram hafa margvísleg neikvæð áhrif á sjávarútveginn
Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum ályktum til umsagnar til laga um stjórn fiskveið. Vestmannaeyjabær harmar að enn og aftur skuli riðið á vaðið við að stokka upp fiskveiðistjórnunarkerfi sem reynst hefur þjóðinni hagkvæmt. Svo mikil er asinn í þetta skipti að Vestmanneyjabæ og öðrum hagsmunaiðlum hefur verið gert nánast ókleift að viðhafa þau vönduðu vinnubrögð sem umfang málsins kallar á.
27. febrúar kl.13:56 | eyjar.net
Hagkvæmast að flytja Vestmannaeyjar að Landeyjahöfn
Fullreynt þykir að gera núverandi Vestmannaeyjaferju út frá Landeyjahöfn.
Hafa sérfræðingar reiknað út að mun hagkvæmara sé að flytja Vestmannaeyjar í heilu lagi upp á meginlandið í stað þess að „púkka upp á þessa guðsvoluðu sandgryfju [Landeyjahöfn]“
27. febrúar kl.10:43 | eyjar.net
Loðnuveiðar ganga vel rétt fyrir utan Vestmannaeyjar
Loðnuvertíðin gengur vel og er stór hluti flotans að veiða loðnu núna rétt við Vestmannaeyjar. Í gær fyllti Álsey VE 2 sig eða um 1850 tonn og gáfu þeir áhöfn Júpiters 250 tonn.
Lagt til að Markarfljótið verði flutt fjær Landeyjahöfn
Fullreynt þykir að gera núverandi Vestmannaeyjaferju út frá Landeyjahöfn. Bjóða á út smíði nýrrar ferju á næstunni. Danska straumfræðistofnunin leggur til að ós Markarfljóts verði færður 2,5 kílómetra til austurs.
26. febrúar kl.12:42 | ibvsport.is
Elísa í A-landsliðinu, Sísí Lára í U-19 og þrír til æfinga með U-19 karla
Kristinn R. Jónsson landsliðsþjálfari hefur valið þrjá leikmenn ÍBV á æfingar með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Þetta eru þeir Jón Ingason, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Sigurður Grétar Benónýsson. Æfingarnar fara fram á Reykjavíkursvæðinu um næstu helgi.
25. febrúar kl.13:55 | fotbolti.net
Benjani búinn að týna símanum
Ekki á leið til ÍBV
Benjani fyrrum framherji Manchester City mun ekki koma til Íslands og skoða aðstæður hjá ÍBV eins og vonir stóðu um.
Þessi fyrrum samherja Hermanns Hreiðarssonar hjá Portsmouth er hættur að svara síma sínum.
25. febrúar kl.09:15 | vestmannaeyjar.is
Viðurkenningar fyrir Eldvarnagetraunina
Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna efndi til árlegs Eldvarnaátaks í nóvember 2012.Öll átta ára börn hér í Eyjum komu á slökkvistöðina og voru frædd um eldvarnir og öryggismál og þeim síðan gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2012.
22. febrúar kl.07:23 | eyjar.net
Mikið flogið til eyja um helgina
Mikil eftirspurn er eftir flugi til og frá Eyjum um helgina og hefur Flugfélagið Ernir bætt við aukaflugum föstudag, laugardag og sunnudag. Föstudaginn 22. Feb fer aukavél úr Reykjavík 14:30 og frá Eyjum 15:15, laugardaginn 23. feb fer vél úr Reykjavík um hádegið og frá Eyjum síðdegis. Aukavél sunnudagsins fer úr Reykjavík 17:30 og til baka frá Eyjum 18:15.
21. febrúar kl.09:05 | eyjar.net
David James á leiðinni til eyja til æfinga með ÍBV
Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnuráðs var fyrir nokkrum mínutum að pósta inn á spjall stuðningsmanna ÍBV á facebook að David James fyrrverandi landsliðsmarkmaður Englands og ýmisa stórliða í enska boltanum væri á leiðinni til eyja að æfa með ÍBV.
Umræður Bæjarstjórnar Vestmannaeyja aðgengilegar á netinu
Vestmannaeyjabær hefur í vaxandi mæli leitað leiða til að miðla til íbúa upplýsingum um innri mál sveitarfélagsins. Útgáfa á Fréttabréfi Vestmannaeyjabæjar hefur mælst vel fyrir og vefsíða sveitarfélagsins er vel sótt.
19. febrúar kl.12:38 | mbl.is
Ófært á fund um samgöngur
„Hér sitjum við heimamenn mættir á fund um samgöngur á sjó og bíðum eftir fólki úr Reykjavík. Við höfum ekki getað fundað því það er ófært með flugi,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í morgun.
19. febrúar kl.07:56 | eyjar.net
Fyrirtækjamótið í Boccia haldið næstkomandi laugardag
Hið árlega fyrirtækjamót Íþróttafélagsins Ægis verður haldið næstkomandi laugardag og byrjar mótið klukkan. Á síðasta ári tóku þátt lið og má búast við því að þáttakan í ár verði svipuð enda fátt skemmtilegra að spila boccia í góða vina hópi.
18. febrúar kl.13:16 | eyjar.net
Eyjamenn eru eins og tálgaður spítukall, bara það besta eftir hjá honum
segir Baltasar Kormákur leikstjóri ársins
Eddu hátíðin fór fram síðastliðið laugardagskvöld og var hún sýnd í beinni á Stöð 2. Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks fékk flest verðlaun og var hún m.a. valin kvikmynd ársins og Baltasar valinn leiksstjóri ársins.
18. febrúar kl.07:54 | eyjar.net
Bæjarráð skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að skurðstofunni verði haldið opinni allt ári
Bæjarráð fjallaði í síðustu viku um minnisblað sem Trausti Hjaltason varabæjarfulltrúi vann að beiðni bæjarstjóra. Í minnisblaðinu er fjallað um lokun á skurðstofu Heilbrigðisstofnunar.
17. febrúar kl.09:44 | eyjar.net
Elvis messa í kvöld klukkan 20:00 í Landakirkju
Í kvöld stendur Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM&K í Vestmannaeyjum fyrir Elvis messu í Landakirkju og hefst hún kl. 20:00. Fram að þessu hefur Æskulýðsfélagið staðið fyrir messum þar sem lög U2 og Johnny Cash hafa verið leikin við góðar undirtektir, en nú stendur til að flytja lög úr smiðju Elvis Presley.
15. febrúar kl.09:46 | eyjar.net
Einn af sjómönnunum hefur leitað til lögmanns
Skoðar réttarstöðu sína vegna uppsagnarinnar hjá Vinnslustöðinni
Einn af sjómönnunum ellefu sem sagt var upp störfum hjá útgerðarfélaginu Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, eftir að ummerki um fíkniefni fundust í líkömum þeirra, hefur leitað til lögmanns vegna uppsagnarinnar. Maðurinn kannar nú réttarstöðu sína vegna þess að honum var sagt upp störfum.
Sölu- og markaðstorg
Til leigu á Pæjumotinu
24. maí kl. 12:19 | Til leiguEr með hús til leigu yfir Pæjumótið, tekur 6+ manns í gistingu.
Upplýsingar í síma 697556...
Óska eftir gistingu
22. maí kl. 20:22 | Til leiguEyjakona úr Reykjavík óskar eftir gistingu 5 til 7 júlí 2013 fyrir tvo
uppls. í síma: 698-84...
Íbúð til leigu yfir pæjumót.
23. maí kl. 18:09 | Til leiguEr með íbúð til leigu yfir pæjumót fyrir 5+.í hjarta bæjarins,,upplýsingar í síma.8439901...
óska eftir húsi/íbúð á þjóðhátið
22. maí kl. 02:06 | HúsnæðiEr að óska eftir húsi eða íbúð yfir þjóðhátíð ef þú ert að leigja út máttu endileg...
Óska efir húsnæði
21. maí kl. 19:42 | Til leiguóska eftir íbúð/húsi til leigu ?
Kæru eyjamenn við erum 5 manna fjölskylda og erum að leit...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
20. maí kl. 15:52 | RaftækiRococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...
óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa
19. maí kl. 23:03 | Til leiguóska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa
upplýsingar í sima 8958582
Bergvin
sumarhús í súðavík
19. maí kl. 23:02 | Til leigusumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...


