Eldri fréttir
21. maí kl.17:31 | eyjar.net
Nýir starfshættir í bæjarstjórn
Gulli Grettis skrifar
Einn mesti ljóður á vinnu í bæjarstjórnum á Íslandi er samskiptaleysi og samráðsleysi milli meirihluta og minnihluta. Meirihlutinn ræður eðlilega en alltof oft gerir hann það einn og sér og minnihlutinn er settur út í horn þar sem hann þarf að híma næstu fjögur árin. Allar tillögur meirihlutans ganga í gegn í krafti meirihluta atkvæða í bæjarstjórnum og minnihlutinn er á móti þó oft sé um að ræða góð mál, bæjarfélaginu til heilla. Og að sama skapi eru flestar tillögur minnihlutans slegnar út af borðinu sama hversu góðar sem þær kunna að vera. Ástæðan er helst sú að þær koma frá röngum aðila eða flokki.
20. maí kl.06:00 | eyjar.net
Spurning til flokkanna þriggja með Skipalyftu Vestmannaeyja
Hvað væri hægt að gera til að vinna að því að fá sem mest af þessari vinnu hér í Eyjum ?
Mig langar til að varpa spurningu til flokkanna þriggja, sem eru í framboði fyrir komandi kosningar.
Allt frá því að upptökumannvirki Skipalyftunnar varð óvirkt hefur skipafloti Eyjamann þurft að kaupa þjónustu sína annarsstaðar en hér í Eyjum. Þá er átt við stærri framkvæmdir.
7. april kl.17:15 | eyjar.net
Leiðum síðasta þorskastríðið til lykta fyrir íslensku þjóðina!
Sandra Björk Jóhannsdóttir Viðskiptalögfræðingur skrifar.
Við Íslendingar stöndum í stríði. Við stöndum frammi fyrir að missa margar af okkar verðmætustu auðlindum. Sem þjóð ber okkur öllum að standa vörð um sameiginlega hagsmuni okkar. Sú vá sem við stöndum frammi fyrir er þó ekki vegna ágangs erlendra ríkja sem ásælast auðlindir okkar og verðmæti, heldur stöndum við frammi fyrir skefjalausri græðgi einstaklinga og fyrirtækja sem vilja að auðlindum okkar verði afsalað úr höndum þjóðarinnar í þeirra hendur til frambúðar. Við stöndum frammi fyrir því að allar sameiginlegar auðlindir okkar geti í framtíðinni lent í einkaeigu. Nú hafa Ungir Sjálfstæðismenn tekið af skarið og krefjast þess að íslenska þjóðin afsali sér endanlega yfirráðum yfir sameiginlegri auðlind landsmanna, nytjastofnunum á Íslandsmiðum. Í ályktun sem SUS hefur nú sent frá sér kemur fram að hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að útvegsmönnum verði afhentar auðlindir sjávar og að einstaklingseignarréttur þeirra yfir auðlindinni verði viðurkenndur sem fyrst!
17. mars kl.20:00 | eyjar.net
Ábyrgir lánveitingar
Unnur Brá Konráðsdóttir skrifar.
Fjármálakreppan sem skekið hefur fjármálakerfi heimsbyggðarinnar undanfarna mánuði á sér margar orsakir. Mikilvægt er að greina þær þannig að hægt sé að draga lærdóm af öllu saman og gera nauðsynlegar breytingar til að draga úr líkum þess að kreppa sem þessi endurtaki sig.
Almennt ríkir það viðhorf að rót kreppunnar megi rekja til mikillar útbreiðslu áhættusækinnar útlánastarfsemi fjármálafyrirtækja. Þau hafi haft sterka hvata til að lána mikið fé án þess að gæta að því að meta hvort lántaki væri borgunarmaður lánsins. Þá hafi ónægt fjármálalæsi lántaka og skortur á hlutlausri ráðgjöf þeim til handa valdið því að lántakar skuldsettu sig fram úr hófi.
17. mars kl.13:00 | eyjar.net
Góð samskipti og líðan barna. Helga Margrét Guðmundsdóttir skrifar.
Í átaksviku Rauða krossins er athylginni beint að samskiptum á erfiðum tímum og fólk hvatt til að vanda samskipti og hlúa að eigin líðan. Í því sambandi er mikilvægt að foreldrar og þeir sem vinna með börnum hugi sérstaklega að samskiptum sínumog viðmóti gagnvart börnum og láta sig varða um líðan þeirra. Samstarf heimila og skóla er samstarf um uppeldi og menntun og snýst um velferð og öryggi barna. Samstarf þessara aðila hefur sennilega aldrei verið jafn mikilvægt og nú.
Börn þurfa að hafa aðgang að fullorðnu fólki sem þau geta treyst bæði í skólanum, frístundum og í foreldrum sínum. Þau þurfa líka að hafa vissu fyrir því að ef þau treysta fullorðnu fólki fyrir vanlíðan sinni sé brugðist við því og farið með það á varfærin hátt.
17. mars kl.06:00 | eyjar.net
Enn eitt auðlindaránið yfirvofandi! Þórður Már Jónsson skrifar.
Baráttan um sameiginlegar auðlindir Íslendinga heldur áfram. Næsta auðlind til þess að verða hrægömmunum að bráð er makríllinn. Nú krefjast hagsmunaaðilar þess að þeim verði úthlutaður (lesist gefinn) kvóti í makríl upp á 130.000 tonn. Þetta skal gerast endurgjaldslaust og kvótum skal úthlutað ótímabundið eins og venja er þegar nytjastofnum Íslands er rænt af þjóðinni. Þarna er ekki um nein smá verðmæti að ræða. Makríll er mjög verðmætur nytjafiskur og hugsanlegt er að verð á varanlegum kvóta gæti verið á bilinu 500 til 1.000 krónur á kílóið.
16. mars kl.06:00 | eyjar.net
Breyttir tímar? Nemendafélag Framhaldskólans í Vestmannaeyjum svara fréttamanni fortíðarinnar
Júlíus Ingason sendi frá sér grein í síðasta tölublað frétta þar sem illa var vegið að bæði nemendaráði og nemendum skólans. Við í nemendaráðinu komum okkur saman um að svara greininni. Nemendaráðið hefur þurft að berjast við hertar reglur varðandi
félagslíf skólans í allann vetur.
13. mars kl.01:34 | eyjar.net
Samstaða um sókn?
Við Íslendingar eigum mörg sóknarfæri. Hér býr ung og vel menntuð þjóð, við eigum sterkt lífeyrissjóðakerfi og búum að traustum innviðum samfélagsins. Við eigum gríðarlegar auðlindir í formi fiskjar, orku, vatns, ræktunarlands og hreinleika. Þessa styrkleika eigum við að nýta til þess að skapa þau skilyrði að einstaklingar geti með framtaki sínu skapað sér tækifæri og aukin verðmæti.
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


