16. júlí kl.07:54 | eyjar.net
Olsen-Olsen í sigri ÍBV á Fram
Eyjamenn eru komnir upp í fjórða sæti Pepsi deildarinnar eftir sigur á Fram á heimavelli sínum í dag 3-2 en mikið fjör var í góðu veðri á Hásteinsvelli í gær.
Tryggvi Guðmundsson var annan leikinn í röð á bekknum vegna meiðsla í baki og þá er Andri Ólafsson að stimpla sig inn í deildina en hann spilaði sinn fyrsta deildarleik í sumar í gær.
Daninn, Christian Steen Olsen tók verðskuldað forystuna fyrir heimamenn þegar hann skoraði á 26. mínútu leiksins, Þórarinn Ingi Valdimarsson gaf á hann og Olsen skoraði framhjá Ögmundi í markinu.
Olsen skoraði aftur á 60. mínútu leiksins þegar Gunnar Már Guðmundsson gaf á hann og Olsen skoraði laglega framhjá Ögmundi.
Adam var ekki lengi í paradís því tveimur mínútum síðar minnkaði Kristinn Ingi Halldórsson muninn fyrir Framara, Sveinbjörn skallaði boltann á Kristinn eftir horn og hann gerði ekki nein mistök þarna.
Á 82. mínútu fengu Eyjamenn vítaspyrnu þegar Ásgeir GUnnar Ásgeirsson braut á Andra Ólafssyni. Þórarinn Ingi fór á punktinn og skoraði.
Steven Lennon náði svo að laga stöðuna fyrir gestina á 86. mínútu eftir laglegan einleik en þar við sat og sigur Eyjamanna staðreynd.
Christian Olsen átti góðan dag í liði ÍBV líkt og Þórarinn Ingi en Steven Lennon bar af í liði Fram.
433.is
Eldri fréttir
- 24. maí kl.15:33 | eyjar.netSlippurinn opnar á ný
- 24. maí kl.10:51 | eyjar.netLjósmyndabók til minningar um Nonna Loga seld til styrktar Eyjarós Krabbavörn
- 24. maí kl.08:43 | eyjar.netVestmannaeyjabær kaupir aftur fasteignir sem Eignarhaldsfélagið Fasteign keypti á sínum tíma
- 24. maí kl.08:09 | visir.isLíklegt að Erlingur haldi til Vínarborgar
- 23. maí kl.11:19 | mbl.isEyjamenn hafna hóteli við Hásteinsgryfju
- 23. maí kl.09:55 | eyjar.netBæjarráð telur að eignir hafi verið fluttar frá eyjum til Reykjavíkur á leynd
- 23. maí kl.08:20 | eyjar.netEygló Harðardóttir verður félagsmálaráðherra
- 22. maí kl.13:18 | mbl.isDæmdar bætur vegna Pompei norðursins
- 22. maí kl.08:00 | eyjar.netHótel við Hástein, síðari kjördagur
- 21. maí kl.18:11 | eyjar.netHvetjum Eyjamenn til þátttöku í íbúakönnun
Sölu- og markaðstorg
Til leigu á Pæjumotinu
24. maí kl. 12:19 | Til leiguEr með hús til leigu yfir Pæjumótið, tekur 6+ manns í gistingu.
Upplýsingar í síma 697556...
Óska eftir gistingu
22. maí kl. 20:22 | Til leiguEyjakona úr Reykjavík óskar eftir gistingu 5 til 7 júlí 2013 fyrir tvo
uppls. í síma: 698-84...
Íbúð til leigu yfir pæjumót.
23. maí kl. 18:09 | Til leiguEr með íbúð til leigu yfir pæjumót fyrir 5+.í hjarta bæjarins,,upplýsingar í síma.8439901...
óska eftir húsi/íbúð á þjóðhátið
22. maí kl. 02:06 | HúsnæðiEr að óska eftir húsi eða íbúð yfir þjóðhátíð ef þú ert að leigja út máttu endileg...
Óska efir húsnæði
21. maí kl. 19:42 | Til leiguóska eftir íbúð/húsi til leigu ?
Kæru eyjamenn við erum 5 manna fjölskylda og erum að leit...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
20. maí kl. 15:52 | RaftækiRococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...
óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa
19. maí kl. 23:03 | Til leiguóska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa
upplýsingar í sima 8958582
Bergvin
sumarhús í súðavík
19. maí kl. 23:02 | Til leigusumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...


