Senda inn efni
Hleð
Hleð
5. júní kl.11:23 | mbl.is

Vill að stjórnvöld innkalli kvótann

Séu útvegsmenn ekki að nýta þær aflaheimildir sem þeim hefur verið úthlutað af ríkinu um þessar mundir þá ætti ríkisstjórnin þegar að hefjast handa við að innkalla þær heimildir og úthluta til annarra. Samhliða því ætti að skoða hvort ekki ætti að efla mjög strandveiðar við landið.

Þetta sagði Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag og vísaði þar til ákvörðunar útgerðarmanna um að halda skipum sínum í höfn í mótmælaskyni við fyrirætlanir stjórnvalda um breytta stjórn fiskveiða.
 
Samflokksmaður Róberts, Ólína Þorvarðardóttir, fór hörðum orðum um aðgerðir útgerðarmanna og sakaði þá um að að berjast gegn ríkisstjórninni og fyrir að níðast á landverkafólki og sjómönnum og ala á ótta í þeirra röðum um hagsmuni sína.
 
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hafnaði málflutningi þingmanna Samfylkingarinnar og benti meðal annars á að bæði landverkafólk og sjómenn styddu aðgerðir útgerðarmanna.
 
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokskins, minnti meðal annars á að Evrópusambandið, sem Samfylkingin vildi ganga inn í, horfði til fiskveiðistjórnunarkerfis Íslands sem fyrirmyndar.

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Mjög veglegur kaupauki með Herbalife, gr. burða...

19. júní kl. 12:51 | Annað
Er með 3 pakka með MJÖG veglegum kaupauka. Startpakka á 13.800 kr., í honum er F1 næringardryk...

Íbúð til leigu Pollamót 2013

19. júní kl. 09:22 | Til leigu
5 herb. íbúð með rúmstæði fyrir 6 manns til leigu á Pollamótinu í Eyjum 26-29 jún. Fimm m...

www.philandteds.is

18. júní kl. 22:40 | Annað
www.philandteds.is s.776-0000 skjaldbaka@skjaldbaka.is Stórhöfði 15 Phil and Teds Mount...

Íbúð til leigu Goslok/Þjóðatíð 2013

17. júní kl. 22:18 | Til leigu
Hef til leigu íbuð 2-3 herbergja á besta stað í bænum.Pláss fyrir 4-6 vinsamlegast sendið em...

Íbúð til Leigu!!

15. júní kl. 17:20 | Til leigu
Er með 3 herbergja íbúð til leigu frá 20-27 Júní á Boðaslóð. Nánari upplýsingar í s...

Falleg 100 fm endaíbúð til leigu

15. júní kl. 12:52 | Til leigu
Falleg 4ra herbergja 100fm endaíbúð í Foldahrauni 40. Íbúðin getur verið laus frá laus fr...

Vantar herbergi til leigu

14. júní kl. 07:18 | Til leigu
19 ára stúlku vantar herbergi til leigu í sumar Hafið samband í síma : 857-4667

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

11. júní kl. 01:07 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...