Senda inn efni
Hleð
Hleð
Hleð
26. april kl.09:20 | eyjar.net

Gleðilegt sumar!

Georg Eiður Arnarsson bloggar

Lundinn settist upp á sumardaginn fyrsta í Heimakletti, þannig að hann var óvenju jákvæmur í ár. Í gærkvöldi var síðan gríðarlegt lundaflug í öllum fjöllum og ljóst að lundinn er mættur í milljónatali að venju.

Varðandi lunda sumarið þá reikna ég frekar með því að umhverfisráðherra verði búinn að banna allar veiðar áður en veiðitíminn hefst og í samræmi við ákvörðun hennar við að stytta veiðitímabil svartfugls, án þess að ræða við nokkurn mann. Það sorglega við þetta allt saman er, að allt er þetta byggt á útreikningum Erps, sem hefur sagt að hann viti nákvæmlega um fjölda lunda á Íslandi, fjölda lundahola og nýtingu á holunum síðusta sumar. Þetta veit hann allt með því að hafa skoðað í 0,0013% af öllum lundaholum á Íslandi, en ég ætla að leyfa mér að halda því fram að það séu 0,0013% líkur á því að þetta sé rétt. Varðandi vinnubrögð hans síðasta sumar, þar sem hann reyndi að draga nafn Eyjamanna niður í svaðið með kjaftasögum norðuri í landi, þá hefur hann enn ekki beðist afsökunar, sem gerir það aftur að verkum að trúverðugleiki Náttúrufræðistofu Suðurlands er engin. Ef hins vegar umhverfisráðherra grípur ekki inn í þá segi ég það enn og aftur, að frjálsar veiðar væru jafn heimskulegar og bann við öllum veiðum, en að leyfa veiðar nokkra daga, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að í ágúst s.l. reyndist 70% lundans sem háfaður var í tilraunaskyni, vera ungfugl.
 
Landeyjahöfn er aftur komin í gagnið og það mánuði fyrr en í fyrra, sem er bara ánægjulegt. Enn er þó ekkert að sjá í spilunum um að það eigi að laga höfnina þ.e.a.s. ef það er hægt, annað en að smíða skip sem sérstaklega er hannað fyrir höfnina, en að mínu mati er það langur vegur frá því að leysa vandamál hafnarinnar. Við munum áfram þurfa að treysta á Þorlákshöfn yfir vetrarmánuðina og ítreka það enn og aftur, það er svona hálf galið að ætla að smíða skip sem ekki getur siglt til Þorlákshafnar yfir vetrarmánuðina.
 
Heitasta umræðuefnið þessa dagana er sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Aðallega er fjallað um skatta frumvarpið, sem hefur lítil eða engin áhrif á mína útgerð, hins vegar en enn gert ráð fyrir því að bannað verði að flytja aflaheimildir á milli kerfa, sem þýðir einfaldlega það að mín útgerð, ásamt sennilega a.m.k. 100 sambærilegum útgerðum, mun ekki lifa þessar breytingar af, en í mínu tilviki þá hef ég verið að veiða ca. 150 tonn á ári en þar af koma tæp 100 tonn úr aflamarkskerfinu, sem verður bannað með frumvarpinu. Nær hefði verið að taka tegundir eins og keilu og löngu úr kvóta, enda vita það allir sem vilja vita að kvótasetningin á þeim tegundum var fyrst og fremst ákveðin vegna óska eins fyrirtækis, sem hafði undirbúið sig fyrir þá kvótasetningu á viðmiðunar árunum með stórfelldu svindli og fékk í sinn hlut um helminginn af kvóta Íslendinga í þessum tegundum, en á viðmiðunarárunum komu skip þessa fyrirtækis aldrei til Vestmannaeyja, en sendir nú reglulega skip sin til þess að ryksuga upp þessar tegundir kringum eyjar. Þeir ná því reyndar aldrei vegna þess hversu magnið er mikið og sem dæmi um þetta, þá voru tvö skip frá fyrirtækinu sunnan og austan við Eyjar í gær. Engir aðrir geta legið í veiðum á þessum tegundum, enda á þetta fyrirtæki í dag og stjórnar algjörlega, veiðum og vinnslum á þessum tegundum og eiga í raun og veru miðin líka.
 
Þeir flokkar sem stóðu að þessari kvótasetningu fyrir 12 árum síðan eiga mikla skömm skilið fyrir, en þeir sem hins vegar stjórna núna og taka ekki á þessu, bera að sjálfsögðu jafn mikla ábyrgð.
 
Meira seinna.
 

Eldra blogg

Sölu- og markaðstorg

Óska eftir gistingu

22. maí kl. 20:22 | Til leigu
Eyjakona úr Reykjavík óskar eftir gistingu 5 til 7 júlí 2013 fyrir tvo uppls. í síma: 698-84...

Íbúð til leigu yfir pæjumót.

22. maí kl. 09:15 | Til leigu
Er með íbúð til leigu yfir pæjumót fyrir 5+.í hjarta bæjarins,,vinsamlegast sendið mér pó...

óska eftir húsi/íbúð á þjóðhátið

22. maí kl. 02:06 | Húsnæði
Er að óska eftir húsi eða íbúð yfir þjóðhátíð ef þú ert að leigja út máttu endileg...

Óska efir húsnæði

21. maí kl. 19:42 | Til leigu
óska eftir íbúð/húsi til leigu ? Kæru eyjamenn við erum 5 manna fjölskylda og erum að leit...

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

20. maí kl. 15:52 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...

óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa

19. maí kl. 23:03 | Til leigu
óska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa upplýsingar í sima 8958582 Bergvin

sumarhús í súðavík

19. maí kl. 23:02 | Til leigu
sumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...

Óska eftir íbúð/húsi til leigu frá 12-15 Jú...

19. maí kl. 22:23 | Til leigu
Vantar íbúð eða hús til leigu í kringum Pæjumótið, eða frá 12-15 júní. Vonast til a...