19. april kl.07:30 | ruv.is
Tvö ný hótel í Vestmannaeyjum
Fosshótel vilja breyta gömlu húsnæði Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum í þriggja stjörnu hótel. Þá eru framkvæmdir á öðru hóteli við Hásteinsvöll í undirbúningi, en þar hafa veður og hugsanlegt grjóthrun sett strik í reikninginn.
Fiskiðjan sameinaðist Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum fyrir rúmum tuttugu árum. Síðan hefur hluti Fiskiðjuhússins gengið kaupum og sölum. Nú hefur bærinn tekið tilboði Fosshótela um kaup á þremur af fjórum hæðum gömlu Fiskiðjunnar. Ráðgert er að nýta neðstu hæðina fyrir fiskasafn bæjarins.
Framkvæmdastjóri Fosshótela segir að unnið sé að fjármögnun. Það sé spennandi verkefni að tengja hótel á þessum stað við landslagið, sögu eyjanna og sjávarútveginn.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segist finna fyrir miklum áhuga hjá einkaaðilum varðandi hótelrekstur og annars konar ferðaþjónustu í Eyjum, þrátt fyrir erfiðleika sem hafa verið við nýjar samgöngur um Landeyjahöfn. „Við og aðrir trúum því að samgöngurnar verði látnar virka,“ segir Elliði.
Tvö hótel eru í Eyjum. Annað þeirra hefur verið lokað eftir bruna í vetur. Vonir standa til að viðgerð þess ljúki í sumar.
Fréttastofa RÚV hefur áður sagt frá áformum um nýtt hótel við Hásteinsvöll. Í ljósi upplýsinga um veðurfar á svæðinu og mats á hættu á hugsanlegu grjóthruni hefur hönnun þess hótels verið breytt lítillega. Nú er gert ráð fyrir inngangi vestanmegin, grjótvörn í fjallshlíðinni og lengri vegalengd á milli hótelsins og fjallsins.
Eldri fréttir
- 19. júní kl.07:57 | eyjar.netLeiðin heim
- 18. júní kl.16:03 | eyjar.netFerð Herjólfs klukkan 17:30 fellur niður
- 18. júní kl.12:21 | fotbolti.netStemning og kraftur í Eyjamönnum
- 18. júní kl.08:21 | visir.isGunnar Heiðar sem fyrr á skotskónum
- 18. júní kl.08:16 | eyjar.netFyrsta ferð Herjólfs fer 08:30
- 14. júní kl.09:41 | eyjar.netEitt stærsta golfmót sumarsins á morgun
- 13. júní kl.08:26 | eyjar.netÓsk um niðurfellingu á reikningi fyrir sorphirðugjöld vegna hreinsunar eftir þjóðhátíð 2012
- 12. júní kl.13:39 | visir.isBjartmar á Þjóðhátíð
- 12. júní kl.08:56 | eyjar.netTM-Pæjumótið hefst á morgun
- 11. júní kl.15:07 | eyjar.netMakrílveiðin fer rólega af stað
Sölu- og markaðstorg
Mjög veglegur kaupauki með Herbalife, gr. burða...
19. júní kl. 12:51 | AnnaðEr með 3 pakka með MJÖG veglegum kaupauka. Startpakka á 13.800 kr., í honum er F1 næringardryk...
Íbúð til leigu Pollamót 2013
19. júní kl. 09:22 | Til leigu5 herb. íbúð með rúmstæði fyrir 6 manns til leigu á Pollamótinu í Eyjum 26-29 jún. Fimm m...
www.philandteds.is
18. júní kl. 22:40 | Annaðwww.philandteds.is
s.776-0000
skjaldbaka@skjaldbaka.is
Stórhöfði 15
Phil and Teds
Mount...
Íbúð til leigu Goslok/Þjóðatíð 2013
17. júní kl. 22:18 | Til leiguHef til leigu íbuð 2-3 herbergja á besta stað í bænum.Pláss fyrir 4-6 vinsamlegast sendið em...
Íbúð til Leigu!!
15. júní kl. 17:20 | Til leiguEr með 3 herbergja íbúð til leigu frá 20-27 Júní á Boðaslóð.
Nánari upplýsingar í s...
Falleg 100 fm endaíbúð til leigu
15. júní kl. 12:52 | Til leiguFalleg 4ra herbergja 100fm endaíbúð í Foldahrauni 40. Íbúðin getur verið laus frá laus fr...
Vantar herbergi til leigu
14. júní kl. 07:18 | Til leigu19 ára stúlku vantar herbergi til leigu í sumar
Hafið samband í síma : 857-4667
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
11. júní kl. 01:07 | RaftækiRococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...


