Senda inn efni
Hleð
Hleð
22. mars kl.08:33 | Fréttablaðið

Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja stofnað

Védís Vandíta Guðmundsdóttir, tónlistarkennari og meðlimur í hljómsveitinni Galaxies, er stofnandi og stjórnarmeðlimur nýstofnaðs Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja. Fyrsti fundur félagsins fór fram í byrjun vikunnar og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum.
 

Védís segir stjörnuskoðun vera hennar helsta áhugamál fyrir utan tónlistina. Ákveðið var að stofna stjörnuskoðunarfélag í Vestmannaeyjum eftir að nokkrir áhugamenn komu sér saman um að byggja upp áhugann á faginu í bænum. Alls mættu um þrjátíu einstaklingar á fyrsta fund félagsins á þriðjudag sem lýsir miklum áhuga Vestmannaeyinga á stjörnuskoðun.
 
"Ég hef haft mikinn áhuga á þessu allt frá því ég var barn, þetta lá þó í svolitlum dvala á meðan tónlistin átti hug minn allan, en hefur nú blossað aftur upp. Ég á tvo stjörnukíkja sem ég nota
 
mikið á veturna þegar maður er nógu heppinn að fá stjörnubjört kvöld," upplýsir Védís sem hyggur jafnvel á nám í greininni í nánustu framtíð.
 
Hún segir stjörnuskoðun vera hollt áhugamál og fylgist sjálf spennt með uppgötvunum Keplerssjónaukans. "Stjörnuskoðun gerir mér gott því þá átta ég mig á því hvað lítilsháttar vandamál eru í raun agnarsmá miðað við stærra samhengi. Þetta er líka bara gaman og fyrir mína parta varð ekki aftur snúið þegar ég var á annað borð byrjuð. Ég fylgist núna spennt með Keplerssjónaukanum og bíð bara eftir því að hann finni plánetu með öðru lífkerfi."
 
Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja heldur mánaðarlega fundi og stefnir einnig á samvinnu við grunn- og framhaldsskólann í bænum. "Okkur langar að byggja þetta upp af krafti," segir Védís að lokum.

Sölu- og markaðstorg

Til leigu á Pæjumotinu

24. maí kl. 12:19 | Til leigu
Er með hús til leigu yfir Pæjumótið, tekur 6+ manns í gistingu. Upplýsingar í síma 697556...

Óska eftir gistingu

22. maí kl. 20:22 | Til leigu
Eyjakona úr Reykjavík óskar eftir gistingu 5 til 7 júlí 2013 fyrir tvo uppls. í síma: 698-84...

Íbúð til leigu yfir pæjumót.

23. maí kl. 18:09 | Til leigu
Er með íbúð til leigu yfir pæjumót fyrir 5+.í hjarta bæjarins,,upplýsingar í síma.8439901...

óska eftir húsi/íbúð á þjóðhátið

22. maí kl. 02:06 | Húsnæði
Er að óska eftir húsi eða íbúð yfir þjóðhátíð ef þú ert að leigja út máttu endileg...

Óska efir húsnæði

21. maí kl. 19:42 | Til leigu
óska eftir íbúð/húsi til leigu ? Kæru eyjamenn við erum 5 manna fjölskylda og erum að leit...

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

20. maí kl. 15:52 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...

óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa

19. maí kl. 23:03 | Til leigu
óska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa upplýsingar í sima 8958582 Bergvin

sumarhús í súðavík

19. maí kl. 23:02 | Til leigu
sumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...