Senda inn efni
Hleð
19. mars kl.12:06 | eyjar.net

Dagbók lögreglunnar

Tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um að þeir væru að aka undir áhrifum áfengis

Helstu verkefni frá 12. til 19. mars 2012

Vikan fór ágætlega fram og engin alvarleg mál sem upp komu hjá lögreglu. Skemmtanahald helgarinnar gekk vel fyrir sig og rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins.

Lögreglu var tilkynnt um vinnuslys í Vinnslustöð Vestmannaeyja miðvikudaginn 14. mars sl. en þarna hafði starfsmaður stigið niður um gat á rist í gólfi með þeim afleiðingum að hann fékk áverka á fót. Ekki er um alvarlega áverka að ræða.
 
Tveir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu um sl. helgi vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis við aksturinn. Hafa þá fjórir ökumenn verið stöðvaðir það sem af er árinu vegna gruns um að vera undir áhrifum áfengis við akstur en á sama tíma í fyrra voru þeir tveir. Þá hafa tveir ökumenn verið stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna það sem af er árinu á móti einum á sama tíma í fyrra.
 
Átta ökumenn voru sektaðir vegna brota á umferðarlögum í vikunni og má þar m.a. nefna ólöglega lagningu ökutækis, akstur án þess að vera með öryggisbeltið spennt í akstri og notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.
 
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt í vikunni en um var að ræða árekstur lyftara og bifreiðar á Strandvegi. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin um hafa skemmst í árekstrinum.
 

Sölu- og markaðstorg

Íbúð til leigu Goslok/Þjóðatíð 2013

17. júní kl. 22:18 | Til leigu
Hef til leigu íbuð 2-3 herbergja á besta stað í bænum.Pláss fyrir 4-6 vinsamlegast sendið em...

Íbúð til Leigu!!

15. júní kl. 17:20 | Til leigu
Er með 3 herbergja íbúð til leigu frá 20-27 Júní á Boðaslóð. Nánari upplýsingar í s...

Falleg 100 fm endaíbúð til leigu

15. júní kl. 12:52 | Til leigu
Falleg 4ra herbergja 100fm endaíbúð í Foldahrauni 40. Íbúðin getur verið laus frá laus fr...

Vantar herbergi til leigu

14. júní kl. 07:18 | Til leigu
19 ára stúlku vantar herbergi til leigu í sumar Hafið samband í síma : 857-4667

HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA

11. júní kl. 01:07 | Raftæki
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...

Íbúð til leigu Pæjumót og Shellmót

11. júní kl. 00:12 | Til leigu
Er með íbúð til leigu pæjumót og Shellmót fyrir 6 eða fleiri upplýsingar í síma 694-1897....

ÓE íbúð yfir Þjóðhátíð

10. júní kl. 21:13 | Til leigu
Við erum hópur af einstaklingum á aldrinum 23-30 ára í leit að gistaaðstöðu yfir Þjóðhá...

HERRA PEYSA FRÁ PERÚ

10. júní kl. 14:24 | Fatnaður
Þessi fallega og hlýja peysa er til sölu í stærð M