Senda inn efni
3. febrúar kl.13:37 | eyjar.net

Óumflýjanlegt framhald Pabbans

Hvernig eru afar í dag? Þeir eru á besta aldri, í góðri stöðu, búnir að ala upp börnin og geta loksins notið lífsins eftir brauðstritið. Hipparnir eru orðnir afar, þeir eiga Harley Davidson í bílskúrnum og hlusta á Bítlana. En það blasa önnur, ný og erfiðari verkefni við: Gleraugu, flóknar fjarstýringar, Viagra töflur og síðast en ekki síst – barnabörnin.

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson birtist hér í glænýju íslensku gamanleikriti og skiptir nú um sæti við Bjarna Hauk Þórsson. Sigurður leikstýrði Bjarna í Hellisbúanum sem sló rækilega í gegn og er einn vinsælasti einleikur á Íslandi fyrr og síðar. Árið 2007 flutti Bjarni Haukur svo einleikinn Pabb­ann, einnig í leikstjórn Sigga Sigurjóns. Eins og Pabbinn er Afinn hlýlegt gaman- verk með stórt hjarta.
 
„Barnabörnin eru eins og bílaleigubílar, maður fær þau tandurhrein og full af bensíni en skilar þeim grút­ skítugum með tóman tank.“
„Allt í einu er fólk sem þú þekkir bara farið að deyja, og minningargreinarnar orðnar spennandi.“
 
 
 
Miðasala er hafin í Axel Ó verslun
 
forsöluverð 3600 kr en almennt verð er kr 4000 við hurð.
 
Einleikurinn verður sýndur í Höllinni og hefst hann kl 20:00
 
 
 
Það er "Andersen viðburðir" sem stendur fyrir koma Afans til Eyja.

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...