Senda inn efni
31. janúar kl.16:57 | visir.is

Ég held að Hemmi berji nokkra leikmenn til eins og hann er vanur

segir Aron Einar um Hermann Hreiðarsson

Hermann Hreiðarsson mun spila sinn annan leik með Coventry í kvöld þegar liðið fer í heimsókn til Blackpool. Coventry vann 3-1 sigur á Middlesbrough í fyrsta leiknum eftir komu íslenska víkingsins og þarf fleiri slíka sigri á næstunni ætli félagið að halda sæti sínu í deildinni.

Aron Einar Gunnarsson verður líka í sviðsljósinu í kvöld með liði sínu Cardiff City en hann kom þangað frá Coventry í sumar. Aron Einar er viss um að Coventry verði áfram í deildinni á næsta tímabili þrátt fyrir að það sitji nú í neðsta sæti deildarinnar.
 
„Maður finnur til með þeim í Coventry-liðinu því ég á fína félaga þarna og þekki starfsmennina. Þetta hefur ekki smollið hjá þeim en ég hef fulla trú á því að þeir haldi sæti sínu í deildinni af því að þeir eru með sterka leikmenn," segir Aron Einar Gunnarsson og honum lýst vel á það að liðsfélagi hans úr landsliðinu, Hermann Hreiðarsson, sé kominn til hans gamla félags.
 
„Ég held að Hemmi berji nokkra leikmenn til eins og hann er vanur. Það er bara gott fyrir Coventry að fá karakter eins og hann inn í liðið. Þetta er toppeintak af fótboltamanni og mikill atvinnumaður," sagði Aron Einar og bætir við:
 
„Hann er sterkur leikmaður og karakter sem vantaði í Coventry-liðið. Ég held að hann muni rífa þetta upp og hjálpa þeim að ná oftar í þrjú stig," segir Aron Einar.

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...