31. janúar kl.08:24 | eyjar.net
Björgvin Halldórsson, ásamt stórsveit með tónleika og dansleik í Höllinni
Vinsælasti söngvari og poppari Íslands undanfarin rúm 40 ár, sjálfur Björgvin Halldórsson, er á leið til Eyja og skemmtir Eyjamönnum og gestum þeirra í Höllinni þann 17.mars. Björgvin mætir ásamt 6 manna hljómsveit og heldur svipaða tónleika og hann hélt í tilefni sextugs afmælisins á liðnu ári.
Ekki nóg með að hann spili rjómann af sínum bestu lögum á tónleikum, heldur ætlar hann síðan að halda ball í anda Björgvins og Brimklóar, enda á hljómsveitin 40 ára afmæli á þessu ári, eins og önnur flott og fræg sveit, hljómsveitin Eagles.
Björgvin hefur hljóðritað hundruðir laga sem mörg hver hafa orðið mjög vinsæl og fest rætur í þjóðarsál landsmanna.
Hann er án nokkurs vafa og án þess að hallað sé á aðra, kóngurinn í íslenskri popptónlist síðustu rúm 40 ár.
Í tengslum við þessa miklu hátíð, mun Einsi kaldi bjóða upp á hátíðarmatseðil í Höllinni, sem samanstendur af:
Forréttur
Skötuselsþynnur með basil-pestóhjúp bornar fram á humar-rissottói ásamt stökku parmesankexi
Aðalréttur
Innbakað lambafille í rösti-kartöfluköku með kornsinnepsfyllingu ásamt steinseljurótarmauki spínatbeði og kornsinnepssósu
Eftirréttur
Lakkrís Creme brulée ásamt ávaxtasalsa með lakkrís-sýrópi og lakkrís-ís
Hægt verður að kaupa miða á tónleika og ball, eða á allan pakkann. Verð á matinn, tónleika og ball er 9.500,- kr., en á tónleika og ball 4.500,- kr. Verð eingöngu ball er 2.500,- kr.
Frekari upplýsingar veitir Bjarni Ólafur, Daddi, í síma 896-6818.
Eldri fréttir
- 17. maí kl.16:23 | mbl.isErlingur ráðinn þjálfari hjá ÍBV
- 16. maí kl.13:06 | fotbolti.netKallast rasismi á vinnumarkaði
- 16. maí kl.08:25 | eyjar.netHel-víti fyrir Eyjamenn
- 16. maí kl.07:39 | mbl.isNýjasta skipið selt úr landi?
- 15. maí kl.12:10 | eyjar.netHeimaey komin upp að Vestmannaeyjum
- 15. maí kl.08:25 | mbl.isÁlfar flytja til Eyja
- 14. maí kl.16:06 | eyjar.netEin kæra liggur fyrir vegna brota á umferðarlögum
- 14. maí kl.08:38 | mbl.isMargrét aftur til Kristianstad?
- 14. maí kl.07:42 | eyjar.netHerjólfur siglir samkvæmt áætlun í dag mánudag
- 13. maí kl.18:06 | eyjar.netHerjólfi snúið við vegna veðurs
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


