Senda inn efni
30. janúar kl.16:03 | eyjar.net

Dagbók lögreglunnar

6 umferðaróhöpp í vikunni

Helstu verkefni frá 23. til 30. janúar 2012

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu en þó var nóg að gera í tengslum við það leiðindarveður sem gengið hefur yfir eyjarnar að undanförnu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin alvarleg mál sem upp komu.

Að morgni 27. janúar sl. var lögreglu tilkynnt um að farið hafi verið inn í Íþróttamiðstöðina án þess þó að einhverjar skemmdir hafi orðið eða einhverju hafi verið stolið. Á eftirlitsmyndavélum má sjá dökkklæddann mann þarna inni um kl. 04:30 en greinilegt er að styggð hefur komið að honum þegar viðvörunarkerfi fór í gang og lét hann sig hverfa. Ekki er vitað hver þarna var á ferð en líklegt er að hægt verði að bera kennsl á hann á upptökum úr eftirlitsmyndavélunum.
 
Að kvöldi 29. janúar sl. var lögreglu tilkynnt um að rúða hafi verið brotin í stýrishúsi Bergs VE-44 og að greinilegt að sá eða þeir sem þarna voru á ferð hafi farið um skipið. Ekki gátu skipverjar séð að einhverju hafi verið stolið en eitthvað var rótað í skápum í brúnni. Talið er að farið hafi verið inn í skipið aðfaranótt sama dags en ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru á ferð. Lögreglan óskar eftir upplýsingum um hvort einhver hafi orðið var við grunsamlegar mannaferðir á bryggjum bæjarins aðfaranótt sl. sunnudags.
 
Lögreglu var tilkynnt um 6 umferðaróhöpp í vikunni og má rekja flest þeirra til hálku og ófærðar sem er búin að vera á götum bæjarins að undanförnu. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en nokkuð tjón varð á ökutækjum.
 
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...