Senda inn efni
25. janúar kl.11:29 | mbl.is

Ný ferja árið 2015 og rekstur Herjólfs boðinn út

Miðað er nú við að ný Vestmannaeyjaferja geti hafið siglingar í síðasta lagi árið 2015. Áhersla hefur verið lögð á það sem snýr að nýju skipi enda er talið einsýnt að siglingar í Landeyjahöfn verði verulegum takmörkunum háðar meðan siglt er á núverandi skipi.

Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem innanríkisráðuneytið hélt í dag. Þar kom fram að ýmsar leiðir hafi verið ræddar varðandi fjármögnun og smíði nýrrar ferju. Efst á blaði nú sé að vinna áfram með þá hugmynd að stofna hlutafélag um verkefnið. Mögulegir eignaraðilar yrðu ríkið, Vestmannaeyjabær og lífeyrissjóðir.
 
Ákveðið hefur verið að hefja könnunarviðræður um þetta fyrirkomulag enda hafa allir þessir aðilar lýst áhuga sínum á að kanna þessa leið frekar.
Rekstur Herjólfs boðinn út
 
Vegagerðin bauð síðast út rekstur siglinga Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar árið 2005. Samið var við Eimskip hf. sem hefur síðan 1. janúar 2006 sinnt þessu verkefni.
 
Upphaflegir samningar hafa verið framlengdir síðustu ár meðan safnað hefur verið reynslu við siglingar til Landeyjahafnar og núverandi samningur rennur út 1. maí næstkomandi. Vegagerðin hefur nú ákveðið að bjóða þennan rekstur út að nýju og mun nýr samningur gilda frá 1. maí 2012 þar til ný ferja hefur verið smíðuð og verður tilbúin til að taka við af núverandi ferju.

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...