30. desember kl.08:10 | eyjar.net
Áramót 2011/12
Georg Eiður Arnarsson bloggar
Mjög óvenjulegt ár er á enda, fyrir margar sakir, margt neikvætt en sem betur fer líka jákvætt. Það neikvæðasta á árinu, að mínu mati, er ákvörðun bæjarstjórnar að banna alfarið lundaveiðar, enda skaðaði sú ákvörðun töluvert orðspor Eyjamanna út á við, og þó svo að það hafi verið auðvelt að verja þá ákvörðun, þá kom lundinn enn einu sinni á óvart með því að mæta í miklu magni og sýndi það þar með og sannaði að ekki er hægt að fylgjast með breytingum í stofninum með því að fara eingöngu í holur. Jákvæðasta við lundann í sumar er, að mér var boðið norður í land og átti þar góða stund með félögum mínum.
Annað neikvætt eru ákvarðanir Ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. Ég veit það að margir sem kosið hafa minn flokk s.l. áratug (FF) gerðu sér í alvöru vonir um það að með því að styðja við núverandi Ríkisstjórnarflokka, sem fyrir síðustu kosningar áttu samkv. skoðanakönnunum raunverulegan möguleika á að mynda meirihluta og þar með myndi opnast sá möguleiki á alvöru breytingum á kvótakerfinu, standa nú frammi fyrir miklum vonbrigðum og ekki bara vonbrigðum, heldur sorglega litlum breytingum á núverandi kvótakerfi sem því miður hafa nánast allar fyrst og fremst skaðað þá sem eru að reyna að starfa í núverandi kvótakerfi og án þess að taka raunverulega á nokkrum af hinum gríðarlegum göllum í kerfinu.
Jákvæðasta er kannski fyrst og fremst það að hafa komist nokkuð heill frá árinu og tilbúinn í næsta ár. Náði mér líka í haust í þá skemmtilegu nafnbót "afi" í fyrsta skipti og er bara nokkuð bjartsýnn á næsta ár og hver veit, kannski leggst hann bara í norðanátt eftir áramót og Landeyjahöfn opnast allt árið (smá djók).
Eins og um síðustu áramót, þá er ætlunin að vera með opið hús í Blíðukró eftir kl. 1 á nýársnótt. Boðið verður upp á þægilega stemmningu með kassagítar glamri og víníl þeyting ásamt því að við verðum með opinn mæk fyrir þá sem vilja fá að leggja orð í belg. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, bara að mæta með góða skapið.
Óska öllum Eyjamönnum sem og öðrum gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla .
Georg Eiður Arnarsson
Eldra blogg
- 16. maí kl.16:31 | eyjar.netÞrífst rasismi á Stöð 2 sport?
- 26. april kl.09:20 | eyjar.netGleðilegt sumar!
- 23. april kl.11:49 | eyjar.netMiðað við mælistiku RÚV þá leggst byggð af í Vestmannaeyjum á þessari öld
- 5. mars kl.07:54 | eyjar.netÞakkir
- 3. mars kl.11:26 | eyjar.netGeir Jón
- 2. mars kl.07:51 | eyjar.netFélagsleg einangrun = einelti?
- 27. febrúar kl.08:35 | eyjar.netAf fréttum og ekki fréttum og kannski smá jákvæðni, eða þannig
- 21. febrúar kl.10:02 | eyjar.netKomnir,farnir, komnir aftur og erum að landa í Eyjum
- 10. febrúar kl.13:57 | eyjar.netEyjarnar að eignast óvæntan vin í boði bæjarstjórnar?
- 3. febrúar kl.07:26 | eyjar.netLandeyjarhöfn, staðan
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


