7. september kl.19:20 | eyjar.net
Þjóðin þolir ekki mistök
Ragnar Óskarsson skrifar
Nú á dögunum birtust í fjölmiðlum fjölmargar og áberandi áskoranir frá hagmunasamtökum í sjávarútvegi, fiskvinnslu, ýmsum sveitarfélögum, stjórn Alþýðusambands Íslands og fleirum. Áskoranirnar voru allar samhljóða og í þeim var skorað á þingmenn að íhuga vel hvort rétt væri að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu. Bent var sérstaklega á að þjóðin þyldi ekki mistök í því sambandi.
Ég held að það sé rétt að þjóðin þoli ekki mistök í nýrri lagasetningu um fiskveiðistjórnunarkerfið. Kerfi það sem nú er við lýði hefur skapað svo mikið ranglæti að nauðsynlegt er að ráðast í grundvallarbreytingar á því. Og þá þarf sannarlega að varast mistök.
En hvernig skal varast mistök? Hvað þarf að varast? Eða öllu heldur, hvað þarf nauðsynlega að vera í nýrri fiskveiðistjórnunarlöggjöf til þess að hún sé sanngjörn og réttlát? Mig langar að nefna hér nokkur atriði sem mér finnast skipta afar miklu máli.
Með skýrum hætti þarf að tryggja varanlegt eignarhald og forræði þjóðarinnar yfir auðlindum hafsins. Þjóðin á auðlindirnar og hún á í sameiningu að njóta arðsins af þeim. Auðlindirnar mega aldrei aftur vera á fárra manna höndum.
Uppræta þarf þá spillingu sem viðgengist hefur þegar menn geta tekið milljarða út úr sjávarútveginum og notað í alls konar gæluverkefni á sama tíma og sjávarbyggðunum blæðir.
Tryggja þarf nýliðun í sjávarútvegi, hleypa að greininni nýjum og áhugasömum aðilum, uppræta það leiguliðakerfi sem tíðkast hefur og komið hefur m.a. í veg fyrir sanngjarna og réttláta nýtingu auðlindarinnar.
Hér hef ég aðeins nefnt þrjú atriði en mun fleiri væri hægt að nefna því af nógu er að taka. Meginatriðið er að ný löggjöf taki mið af heildinni en sé ekki sniðin fyrir fáeina útvalda eins og því miður hefur verið raunin á allt of lengi þjóðinni til skaða. Það ranglæti og þau mistök þolir þjóðin ekki lengur.
Ragnar Óskarsson
Eldri fréttir
- 5. desember kl.03:56 | eyjar.netGetur verið?
- 23. september kl.11:23 | eyjar.netSvar við Nafnlausu bréfi
- 14. september kl.12:55 | eyjar.netEr ástæða til að óttast?
- 9. september kl.09:06 | eyjar.netÆfingagjöld lægst hjá ÍBV!
- 5. ágúst kl.12:28 | eyjar.netHásteinsvöllur – öflugur heimavöllur, okkar vígi
- 12. júlí kl.07:54 | eyjar.netÞað er ekki sama þjóðvegur og þjóðvegur eitt
- 8. júlí kl.11:04 | eyjar.netLandeyjahöfn eitt mesta flopp Íslandssögunar
- 1. júlí kl.19:19 | eyjar.netMinningarorð um fallinn félaga
- 16. júní kl.09:21 | eyjar.netLundi og lundaveiði
- 14. júní kl.20:01 | eyjar.netEflum íþróttaanda þjóðarinnar á erfiðum tímum
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


