3. júlí kl.19:43 | fotbolti.net
ÍBV áfram í 8 liða úrslitum bikarsins
Meistaraflokkur karla áfram í bikarnum
Eyjamenn eru komnir áfram í Valitor-bikarnum eftir 2-1 sigur á Fjölni en aðstæður til knattspyrnu iðkunnar voru erfiðar. Mikið ringdi og blés þá hraustlega á köflum.
Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur en Eyjamenn náðu ekki að sýna sitt rétta andlit þar. Fjölnismenn lokuðu vel á þá en Gunnar Valur Gunnarsson og Bergsveinn Ólafsson áttu góðan leik í miðverðinum.
Það var síðasta korterið sem gerði leikinn skemmtilegan en á 76. mínútu skoraði Bryan Hughes úr vítaspyrnu. Dennis Sytnik sem hafði komið inná féll í teignum eftir viðskipti við Gunnar Val en vítaspyrnudómur var afar harður dómur. Hughes steig á punktinn og gerði enginn mistök þegar hann setti boltann framhjá Hrafni Davíðssyni markverði Fjölnis.
Adam var ekki lengi í paradís því Gunnar Valur náði að jafna fyrir Fjölni með laglegu skallamarki eftir hornspyrnu fimm mínútum síðar.
Mikið fjör var í leiknum þarna en Brynjar Gauti Guðjónsson var hetja Eyjamenna er hann skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Brynjar hefur lítið fengið að spila í sumar en hann var afar góður í leiknum.
Eyjamenn eru komnir áfram í undanúrslit og gæti liðið fengið heimaleik fimmtudeginum fyrir þjóðhátíð.
Fjölnir 1 - 2 ÍBV:
0-1 Bryan Hughes (76) (Vítaspyrna)
1-1 Gunnar Valur Gunnarsson (81)
1-2 Brynjar Gauti Guðjónsson (85)
Maður leiksins: Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV)
Eldri fréttir
- 26. mars kl.11:36 | ibvsport.isLengjubikarinn farinn af stað hjá stúlkunum
- 24. mars kl.16:30 | fotbolti.netÍBV rúllaði yfir Tindastól
- 14. júlí kl.16:31 | fotbolti.netBesti varnarmaður Pepsí deildarinnar er Eiður Aron
- 4. júlí kl.13:46 | eyjar.netEyjamenn fengu Þór á Akureyri
- 3. júlí kl.16:17 | fotbolti.netÍBV stelpurnar dottnar úr bikarnum
- 3. júlí kl.16:00 | fotbolti.netKFS vann á útivelli
- 30. júní kl.23:27 | eyjar.netEyjamenn sigruðu Íra 1-0
- 12. april kl.07:18 | ibvsport.isSvava Tara og Sigríður Lára komnar í undanúrslit landsliða
- 24. mars kl.19:11 | eyjar.netÍBV sigraði Víking frá Reykjavík 2-1
- 10. mars kl.08:41 | fotbolti.netElías Fannar Stefnisson í KFS
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


