Senda inn efni
14. júní kl.12:24 | eyjar.net

Loftið hefur verið einkavætt

Haraldur Pálsson skrifar

Þann 10.júní rétt fyrir klukkan níu var lagt fyrir lagafrumvarp þess efnis að kvótakerfi skyldi tekið upp í losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Frumvarpið var samþykkt með 38 atkvæðum, en enginn þingmaður greiddi atkvæði gegn því. Kvótana munu þau fyrirtæki öðlast sem mengað hafa undanfarin ár, án aukins tilkostnaðar því hér er um svokallaðan „gjafakvóta“ að ræða eins og vinstrimenn hafa komist að orði. Þó það hafi vissulega ekkert verið gefins að standa í þeim rekstri sem hvert mengandi fyrirtæki stundar.

Kvótarnir munu verða framseljanlegir – og það sem meira er – þeir munu verða framseljanlegir um alla Evrópu. Því má búast við því að mengunarkvótar muni innan fárra ára verða margfalt verðmætari en t.d. fiskveiðikvóti. Eftir nokkur ár munu einhverjir einstaklingar selja þessa kvóta hér landi og eflaust hagnast gríðarlega. Væntanlega munu þeir þá vera kallaðir „loftgreifar“. En þeir munu þá væntanlega hafa hagnast vel á einni af „þjóðareign“ okkar íslendinga – loftinu –án þess að hafa nokkuð þurft að greiða fyrir það árið 2011.
 
Það er nokkuð merkilegt að fylgjast með þeirri hræsni sem í þessu er fólgin. Að völdum situr ríkisstjórn, sem er undir forystu sama fólksins og setti á kvótakerf í sjávarútvegi, fyrir um 27 árum síðan.
 
Þessi sama ríkisstjórn, sem sífellt stagast á því að hún hafi vilja fólksins á bak við sig til að koma auðlindum landsins í „eigu þjóðarinnar“, hefur núna búið til framseljanlega kvóta úr ekki ómerkilegri auðlind en loftinu. Loftið er því komið í hendur einkaaðila á Íslandi. Þannig að hver sá sem hyggst stofna fyrirtæki sem mengar andrúmsloftið þarf að byrja á að kaupa mengunarkvóta af einhverju þeirra fyrirtækja sem fyrir eru. (Nema viðkomandi sé við strönd, þá gæti hann hugsanlega fengið „strandmengunarkvóta“ eftir nokkur ár).
 
Núna í dag stefnir sama ríkisstjórn og ákvað að einkavæða loftið í gær, að því að gera stórtækar breytingar á algjörlega sambærilegu kerfi í sjávarútvegi. Er þetta ekki hámark hræsninar?
 
Haraldur Pálsson
 
Hagfræðinemi við Háskóla Íslands

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...