Senda inn efni
14. júní kl.20:01 | eyjar.net

Eflum íþróttaanda þjóðarinnar á erfiðum tímum

Hannes Kristinn Eiríksson skrifar

Ísland landið okkar fagra má muna sinn fífil fegurri og flest horfum við til baka og viljum fá Ísland eins og það var þegar Davíð var við völd. Það var góður tími og allt lék í lindi og Ísland blómstraði sem aldrei fyrr.
Síðan fór að bera á slæmum fréttum af fjármálamarkaðinum og dökk ský færðust yfir Íslensku þjóðina og neikvæðar fréttir voru aðalfréttirnar kvöld eftir kvöld. Ástandið fór að setjast á sálina á þjóðinni og skeifa fór að færast yfir áður glöð andlit fólksins í landinu. Við hættum að brosa og urðum tortryggileg út í náungann og góður árangur var stimplaður sem hugsanlegt svik eða undanskot. Allir þeir sem
sköruðu fram úr eftir 2007 hafa verið litnir hornauga og meðalmennskan er rétta normið í dag. Þessi verðum við að breyta!!
 

Snúum vörn í sókn!!
Nú er svo komið að við getum ekki boðið sjálfum okkur upp á núverandi ástand mikið lengur. Við erum komin niður á botn og nú skulum við sem þjóð spyrna í botninn og koma okkur upp á yfirborðið á ný. Þetta getum við auðveldlega og ég tel að með samstilltu áttaki þá stoppar ekkert Íslensku þjóðina. Þjóðin sem þekkt er fyrir baráttu og að gefast aldrei upp þó að á móti blási. Þjóðin hefur áður staðið í öldukantinum og barist við náttúruöflin og ekkert endilega haft sigur en samt aldrei gefist upp.
 
Jákvæð íhugun í stað neikvæðni
Ég tel að við eigum að nota sálfræði Ólafs Stefánssonar fyrirliða Íslenska landsliðsins í handbolta og sjá fyrir okkur góðan árangur. Lokum augunum og sjáum hið jákvæða og fallega í nágrannanum, vinnufélaganum og já jafnvel pólitískum andstæðingum. Ef að við setjum okkur öll það markmið að árið 2012 verði Íslandi gott þá náum við því með því að stilla saman hugi þjóðarinn og setja þjóðinni sameiginlegt markmið. Mitt markmið fyrir 2012 er að ég ætla að leggja landinu lið eins mikið og ég mögulega get með því að hugleiða og sjá fyrir gott ár og góðan árangur.

Nú skora ég á þig að gera slíkt hið sama því saman náum við árangri sem aldrei fyrr!!
 
Hannes Kristinn Eiríksson
Körfuboltaþjálfari
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...