Senda inn efni
12. april kl.14:57 | eyjar.net

Við verðum að fá kosningar strax

Helgi Ólafsson skrifar

Ef einhvern lærdóm má draga af niðurstöðu þjóðaratkvæðisgreiðslunnar um nýliðan helgi er það að þingið gengur ekki í takt við þjóðina.
 
 

Hin von- og verklausa vinstristjórn hefur nú í þrígang verið gerð afturreka með samninga um að íslenskir skattgreiðendur taki á sig fall einkabanka á erlendri grund. Fyrsta samningnum, hinni glæsilegu niðurstöðu Svavars Gestssonar eins og fjármálaráðherra kallaði hann, var hafnað af Alþingi þegar þingmenn úr flestum flokkum tóku sig saman um að setja fyrirvara við hann til að reyna að lágmarka skaðann af honum fyrir fjárhag ríkissjóðs. Seinni samningunum tveimur var svo hafnað með afgerandi hætti í þjóðaratkvæðisgreiðslum, þrátt fyrir stuðning meirihluta þingmanna.
 
Af þessu er greinilegt að vinstristjórnin er ekki í sambandi við þjóðina, enda skoðanakannanir að undanförnu sýnt að meirihluti þjóðarinnar styður hana ekki. Svo það eru svo sem engin ný sannindi og koma vísast fáum á óvart.
 
En alvarlegri eru þau tíðindi að lögum sem samþykkt höfðu verið af nærri 3/4 hluta þingmanna hafi verið hafnað af 60% þeirra sem þátt tóku í kosningunum um helgina. Þó taktleysi vinstristjórnarinnar ætti ekki að koma neinum á óvart er það mikið áhyggjuefni að þingið skuli ekki endurspegla vilja almennra borgar með skýrari hætti.
 
Eftir þetta er vart hægt að segja að þingið starfi í umboði þjóðarinnar. Því er aðeins eitt til ráða. Þingið verður að endurnýja umboð sitt – við verðum að fá kosningar strax.
 
Helgi Ólafsson
Umsjónamaður innra starfs SUS

www.eyverjar.is

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...