7. april kl.13:38 | eyjar.net
Vöndum málflutning okkar
Ragnar Óskarsson skrifar
Sjósamgöngur okkar Vestmannaeyinga hafa meira og minna verið í miklum ólestri í vetur. Við höfum því eðlilega verið pirruð og svekkt, sérstaklega þar sem svo miklar væntingar voru bundnar við opnun Landeyjahafnar síðastliðið sumar. Ég ætla ekki að kenna einum frekar en öðrum um hvernig ástandið hefur verið í vetur en ef fyllstu sanngirni er gætt leika náttúruöflin langstærsta hlutverkið. Bilanir og líklega einhver mannleg mistök koma án efa eitthvað einnig við sögu eins og gengur. Af þessu þurfum við að læra.
Þegar við gagnrýnum ástandið er mikilvægt að það sé gert með málefnalegum og vel ígrunduðum hugmyndum en ekki upphrópunum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það skilar okkur Vestmannaeyingum mestu þegar upp er staðið.
Mér brá þess vegna nokkuð þegar ég hlustaði á viðtal við bæjarstjórann í Vestmannaeyjum í Kastljósi nú á dögunum. Þar lýsti hann þeirri skoðun sinni að einfaldlega ætti að opna Landeyjahöfn fyrir siglingu minni báta með farþega milli Lands og Eyja. Ég held og vona að þessu hafi verið slegið fram í fljótfærni því kjarni málsins, nefnilega öryggiskröfurnar sem gerðar eru til farþegasiglinga, gleymdust. Fjölmörum Eyjamönnum fannst þetta útspil bæjarstjórans afleitt og ekki okkar samgöngumálum til framdráttar.
Bæjarstjórinn hefur reyndar í yfirlýsingu og sem betur fer dregið í land og er það nokkur huggun harmi gegn.
Ég held að í öllum framfaramálum vinnist sigrar með rökfestu og eftirfylgni en upphrópanir eru alltaf skammgóður vermir.
Við eigum að sjálfsögðu að berjast fyrir nýju skipi sem hæfir Landeyjahöfn og þrátt fyrir erfitt efnahagsástand í samfélaginu sem eigum viðekki að leggja árar í bát. En umfram allt. Vöndum málflutning okkar, það er drýgst.
Ragnar Óskarsson
Eldri fréttir
- 5. desember kl.03:56 | eyjar.netGetur verið?
- 23. september kl.11:23 | eyjar.netSvar við Nafnlausu bréfi
- 14. september kl.12:55 | eyjar.netEr ástæða til að óttast?
- 9. september kl.09:06 | eyjar.netÆfingagjöld lægst hjá ÍBV!
- 7. september kl.19:20 | eyjar.netÞjóðin þolir ekki mistök
- 5. ágúst kl.12:28 | eyjar.netHásteinsvöllur – öflugur heimavöllur, okkar vígi
- 12. júlí kl.07:54 | eyjar.netÞað er ekki sama þjóðvegur og þjóðvegur eitt
- 8. júlí kl.11:04 | eyjar.netLandeyjahöfn eitt mesta flopp Íslandssögunar
- 1. júlí kl.19:19 | eyjar.netMinningarorð um fallinn félaga
- 16. júní kl.09:21 | eyjar.netLundi og lundaveiði
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


