Senda inn efni
7. mars kl.07:25 | mbl.is

Vanar mikilvægum leikjum

segir Margrét Lára

„Þetta er bara spennandi. Við höfum aldrei verið í akkúrat svona stöðu áður með landsliðinu svo þetta er góð reynsla fyrir okkur,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Ísland hefur sem kunnugt er komið mjög á óvart á hinu geysisterka Algarve-móti í Portúgal og unnið báða leiki sína til þessa, gegn Svíþjóð og Kína.

Því er svo komið að leikurinn við Danmörku í dag kl. 15 snýst um það hvort Ísland kemst í sjálfan úrslitaleik mótsins þar sem andstæðingurinn yrði Bandaríkin. Jafntefli gegn Danmörku myndi duga til þess en tapi íslenska liðið á það á hættu að spila jafnvel um 5. sætið í mótinu.
 
„Við höfum ekki riðið feitum hesti frá leikjunum við Danmörku síðustu ár, tapað þeim öllum, þannig að þetta verður erfitt. Við höfum ekkert verið að tapa þessum leikjum illa en lendum oft í miklum eltingaleik við þær því eins og Danir eru frægir fyrir þá halda þær boltanum mjög vel. En við ættum að vera farnar að þekkja þær vel núna og höfum fulla trú á að geta unnið þær,“ sagði Margrét Lára.
 
Nánar er rætt við Margréti Láru í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...