Senda inn efni
19. febrúar kl.08:26 | fotbolti.net

Leiknir skellti ÍBV

Leiknir byrjar Lengjubikar karla vel þetta árið því liðið var rétt í þessu að vinna 3-1 sigur á ÍBV í Egilshöll.
 
Leiknismenn náðu forystunni á 22. mínútu leiksins. Hilmar Árni Halldórsson kom þá upp hægra megin og sendi inn í teiginn á Pape Mamadou Faye sem átti ekkert gott skot en boltinn stefndi þó á markið. Rasmus Christiansen virtist vera að bjarga á marklínu og boltinn barst út aftur þar sem Leiknismenn sóttu áfram en Pape fagnaði marki.

Dómarateymið staðfesti svo að boltinn hafi farið inn og staðan orðin 1-0 fyrir Leiknismenn en nokkrum mínútum fyrir markið hafði Pape legið í nokkrar mínútur á vellinum vegna meiðsla sem hann náði að hrista af sér.
 
Eyjamenn jöfnuðu svo metin seint í fyrri hálfleiknum eftir hraða sókn. Denis Sytnik sendi boltan þá út til hægri á Ian Jeffs sem sendi fyrir markið á Þórarinn Inga Valdimarsson sem kom boltanum á Tryggva Guðmundsson. Tryggvi skaut á markið en Eyjólfur markvörður Leiknis varði. Tryggvi náði hinsvegar frákastinu og þá skoraði hann.
 
Leiknismenn komust svo aftur yfir um miðjan síðari hálfleikinn. Rasmus Christiansen var þá að láta boltann fara til Abel Dhaira markmanns ÍBV út við vítateigs endann og rétt áðuren hann náði til boltans stakk Pape sér inní og stal boltanuim og skoraði í autt markið
 
Skömmu síðar slapp Kristján Páll Jónsson framherji Leiknis einn í gegn og Eiður Aron Sgurbjörnsson braut á honum. Þar sem Eiður Aron var aftasti varnarmaður gat Kristinn Jakobsson ekki annað en lyft rauðu spjaldi og dæmt aukaspyrnu á vítateigslínunni. Pepe tók spyrnuna en ekkert varð úr henni.
 
Óli Hrannar Kristjánsson bætti svo við þriðja marki Leiknis með skalla eftir undirbúning Kristjáns Páls þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum og þó svo bæði lið hafi fengið fullt af ákjósanlegum færum urðu mörkin ekki fleiri svo Leiknir vann með þremur mörkum gegn einu.
 
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=104418#ixzz1EOKsMFal
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...