18. nóvember kl.13:40 | mbl.is
Loðnukvótinn verður 200 þúsund tonn
Hafrannsóknastofnunin leggur til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2010/2011 verði samtals 200 þúsund tonn. Jafnframt leggur stofnunin til að ekki verði gerðar breytingar á núgildandi reglum um takmörkun á notkun flotvörpu við veiðarnar. Þetta er lagt til á grundvelli niðurstöðu haustmælinga á loðnu.
Haustmælingar á loðnu fóru fram á tímabilinu 24. september til 8. nóvember 2010. Að þessu sinni voru mælingarnar gerðar á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni samhliða stofnmælingum með botnvörpu að hausti og sjórannsóknum, samkvæmt frétt á vef Hafró.
Marktækari mælingar en áður
Loðnumælingarnar fóru því fram fyrr og náðu yfir lengri tíma en á undanförnum árum þegar þær voru gerðar á tímabilinu frá því um miðjan nóvember og fram í desember. Þetta leiddi aftur á móti til þess að unnt var að fara miklu víðar en undanfarin ár þar sem enginn lagnaðarís var til trafala líkt og oft hefur verið í nóvember og desember. Því telur Hafrannsóknastofnunin að mælingar á stærð stofnsins nú séu að líkum marktækari en mælingar undanfarinna ára.
Loðna fannst mjög víða, bæði ungloðna (eins árs) og fullorðin loðna (tveggja og þriggja ára) sem mun hrygna í mars 2011. Svæðið sem eins árs loðnan fannst á var einkum í Grænlandssundi og við Grænland, þ.e. vestan 30°V og sunnan 67°N. Annars staðar var hún blönduð eldri loðnu, einkum á kafla norður af Kögri og með austur grænlenska landgrunnskantinum að 68°N. Norðan 68°N með kantinum norður fyrir Scoresbysund var að mestu um eldri loðnu að ræða.
Meira af ungloðnu en áður hefur mælst
Um 100 milljarðar mældist af eins árs loðnu og er það meiri fjöldi en mælst hefur frá því um aldamót, en mjög lítið hefur fundist af eins árs loðnu á undanförnum árum. Ástand hennar var mjög gott bæði meðallengd og meðalþyngd voru yfir meðallagi.
Sýni sem tekin voru í leiðangrinum benda til þess að tæp 10% eins árs gömlu loðnunnar muni hrygna næsta vor. Það er hærra hlutfall en sést hefur í fyrri mælingum sem gerðar hafa verið á þessum árstíma.
Alls mældust um 36 milljarðar af loðnu sem gert er ráð fyrir að hrygni á komandi vertíð. Þar af var fjöldi tveggja ára loðnu um 26 milljarðar, sem samsvarar um 490 þúsund tonnum.
Einungis mældust tæp 20 þúsund tonn af þriggja ára og eldri loðnu. Samkvæmt mælingunum er því stærð hrygningarstofnsins rúm 630 þúsund tonn. Þar af er ársgamla loðnan 120 þúsund tonn og tveggja ára og eldri loðna um 510 þúsund tonn.
Önnur mæling í janúar/febrúar
Miðað við framangreindar mælingar, að teknu tilliti til náttúrlegra affalla, þyngdaraukningar fram að hrygningu og að skilin verði eftir 400 þús. tonn til hrygningar, reiknast veiðistofn loðnu 198 þúsund tonn.
Hafrannsóknastofnunin leggur því til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2010/2011 verði samtals 200 þúsund tonn. Jafnframt leggur stofnunin til að ekki verði gerðar breytingar á núgildandi reglum um takmörkun á notkun flotvörpu við veiðarnar. Hafrannsóknastofnunin mun að nýju mæla stærð loðnustofnsins í janúar/febrúar 2011 og mun endurskoða tillögur um heildaraflamark gefi niðurstöður þeirra mælinga tilefni til þess, segir í frétt á vef Hafró.
Eldri fréttir
- 4. nóvember kl.10:54 | mbl.isLoðnukvótinn gæti orðið 200 til 400 þúsund lestir
- 3. nóvember kl.17:11 | eyjar.netLeggja til 40 þúsund tonna upphafskvóta
- 16. júlí kl.15:49 | ruv.isÞorskkvótinn aukinn
- 8. april kl.11:46 | MorgunblaðiðHuginsmenn fá mest af makrílkvótanum í sumar
- 24. mars kl.06:00 | mbl.isSegir að rætt hafi verið um skötuselinn
- 18. mars kl.06:00 | eyjar.netRáðstefna á hótel Loftleiðum. Vistkerfi Íslandshafs og afkoma loðnustofnins.
- 10. mars kl.09:22 | eyjar.netStuttri loðnuvertíð að ljúka
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


