Senda inn efni
4. nóvember kl.06:00 | eyjar.net

Öryggis- og varnarmál

Fimmtudagsþruman frá Tryggva Hjaltasyni

Heimurinn og Ísland
Varnar- og öryggismál eru hvort sem fólki líkar betur eða verr mikilvægur þáttur af nútíma vestrænu samfélagi. Þó að Íslandi sé ekki vegið í beinum hernaðarlegum skilningi þessi árin þá eru margvíslegar ógnir sem herja á okkar friðsæla samfélagi s.s. skipulögð glæpastarfsemi bæði erlend sem innlend, tölvuárásir, fjármálamisferli, ofbeldisglæpir, innbrot og svona mætti áfram telja.
 
 

Ég held reyndar að flestir geri sér alveg fyllilega grein fyrir að það verður alltaf ákveðin glæpaógn til staðar en ég held líka, og þessa ályktun dreg ég frá ýmsum samtölum og samfélagsumræðunni almennt, að flestir reikni einnig með því að glæpaógn á Íslandi muni ekki aukast og að hér munum við t.d. aldrei þurfa að hafa áhyggjur af fjarlægum ógnum eins og hryðjuverkum eða vopnuðum gengjum sem herja á samfélögin. Mér þykir þess vegna miður að benda á að síðari ógnin er t.d. þegar orðin að raunveruleika á Íslandi í nokkrum mæli og fyrri ógnin þ.e. hryðjuverkaógnin er að vaxa að líkindum og hefur verið að gera það undanfarin ár.
 
Þessi pistill er alls ekki gerður til að vera einhverskonar hræðsluáróður og það er ekkert sem ég vil frekar heldur en að fólk geti lifað áhyggjulausu lífi og þurfi ekki að lenda í því að haugar og illræmdir pappakassar sem brjóta lögin og réttindi annarra verði hluti af raunveruleika meðal mannsins. En til þess að slíkt sé gerlegt þurfa akkurat öryggis- og varnarmál að vera í lagi. Núna hugsa kannski einhverjir lesendur: „vill Tryggvi bara gera einhverskonar stóra bróðurs samfélag þar sem öryggismyndavélar eru á hverju horni og það er lögreglumaður í hverri götu?“ Fátt gæti verið lengra frá því að vera rétt, ég er akkurat mikill aðdáandi manna eins og Benjamín Franklín sem sagði að „hver sem er tilbúinn að gefa upp eilítið af frelsi sínu til að öðlast meiri öryggi á hvorugt skilið“ og ég er einnig virkilega á móti myndavélasamfélaginu, enda ötull stuðningsmaður frelsi einstaklingsins og rétt hans til að vera ekki í sífelldu eftirliti. En það breytir því ekki að ef Ísland leyfir sér að verða vanmáttugt öryggisfræðilega séð hvort sem það er í gegnum veikt regluverk eða lélega löggæslu þá munu aðilar nýta sér það og lækka þar með í leiðinni öryggisstuðul okkar hinna sem viljum bara lifa lífinu. Það er t.d. þekkt að skipulögð glæpasamtök í Austur Evrópu hafa lögfræðinga í fullri vinnu sem eru sendir til landa að leita af glufum í lagakerfinu sem auðvelda t.d. peningaþvott, eða uppsetningu svokallaðra shell companies (skelja fyrirtækja) sem er ætlað fela ýmsan óskundann. Það eru meira að segja uppi kenningar um það að í hruninu hafi ákveðin fyrirtæki á Íslandi verið keypt á spottprís af slíkum samtökum, þó ég selji þessar upplýsingar ekki dýrari en ég keypti þær.
 
Allt þetta varpar ljósi á mikilvægi þess að vel sé staðið að þessum málaflokk og þá sérstaklega fyrir lítið land eins og Ísland vegna þess að það myndi ekkert þurfa neitt gríðarlega öflugt net af glæpa- eða hryðjuverka samtökum til að hrista vel upp í samfélaginu hér.
 
Grínarinn íhugar hvar hann geti stundað glæpastarfsemi næst.
 
 
Ef við reynum svo að setja t.d. hernaðarmál í svipað samhengi...
Hér ætla ég enn og aftur að byrja á smá bakvörn handa sjálfum mér. Ég er ekki hernaðarsinni né stríðssinni, ég reyni ekki að afsaka kúganir eða annað misrétti sem fer fram í skjóli hernaðar aðgerða. Ég bendi hinsvegar á að það er því miður mikið af öflum sem vilja eða eru reiðubúinn að valda samfélögum eins og okkar skaða ef þau fá tækifæri til, hvort sem það er til að græða og eflast eða af hugsjónarástæðum. Mig langar í þessu samhengi að benda á nokkur gríðarlega mikilvæg hlutverk sem
Bandaríkjaher gegnir fyrir heiminn í dag sem flestir velta lítið fyrir sér.
 
Bandaríkjaher er öflugasta hernaðarvél sem er uppi í dag og hefur nokkur tíman verið uppi og hefur öflugt net af herstöðvum útum allan heim. Bandaríkjaher tekur til sín um 4% af vergri landsframleiðslu Bandaríkjanna ár hvert og vegna yfirburðarstærðar bandaríska hagkerfisins þýðir það að ríflega helmingur allra útgjalda til varnarmála í heiminum fara til Bandaríkjahers. Þrátt fyrir það og þessa gífurlega háu tölu sem svo oft er nefnd sem dæmi um „geðveiki“ Bandaríkjanna í þessu máli er þessi útgjaldaliður ekkert hærri hlutfallslega séð en hjá mörgum öðrum löndum og má einnig til samanburðar nefna að útgjöld til heilbrigðismála í Bandaríkjunum eru um 17% af vergri landsframleiðslu eða meira en 4x hærri en til hernaðarmála. En ekki ætla ég að fara að afsaka útgjöldin til Bandaríkjahers heldur benda á nokkur mikilvæg hlutverk sem hann sinnir fyrir okkur hin:
 
 
• Bandaríski flotinn, sem er sá allra öflugasti í heiminum, verndar allar helstu siglingaleiðir í heiminum og er það mat margra hernaðar- og alþjóðasamskipta sérfræðinga að án Bandaríska flotans væri ekki hægt að stunda verslun og sjóflutninga í þeirri mynd sem nú er stundað.
• Bandaríski herinn verndar og er grunnstoð í vörnum Evrópu. Bandaríski herinn veitti t.d. öryggisskjöld fyrir Evrópu í kjölfar Seinni Heimsstyrjaldarinnar sem gaf löndum Evrópu öryggi og rými til að byggja sig aftur upp. Þá var Bandaríkjaher mikilvægur liður í því sameiningarferli sem átti sér stað í Evrópu á seinni hluta síðustu aldar.
• Kenning sem nýtur almennrar hylli meðal fræðimanna er að vegna þess hve öflugur Bandaríkjaher hafi verið síðustu 60 árin eða svo að þá hafi það viðhaldið friði í heiminum. Ekkert ríki sé reiðubúið að fara út í ævintýraleg hernaðarátök sbr. þeim sem Þjóðverjar tóku sér fyrir hendur í síðustu tveim heimsstyrjöldum eða herir Napóleons á undan því á meðan her eins og Bandaríkjaher er til staðar. Þetta hefur einmitt verið ein ástæða þess að há útgjöld til varnarmála hafa verið réttlætt í Bandaríkjunum, en Bandaríkin er stærsta viðskiptaþjóð í heimi og reiðir sig að miklu leyti á stöðugleika og öruggar siglinga- og viðskiptaleiðir og þess vegna sé það í þeirra þágu að geta tryggt stöðugleika og öryggi í heiminum og var þá sú stefna valin að engin þjóð sæi það sem möguleika að ná Bandaríkjamönnum að burðum hernaðarlega svo langt fram úr væru þeir komnir. Þetta er t.d. eitt af því sem hefur valdið fólki hugarangri með sívaxandi útgjöld Kína til varnarmála, en höfundur hefur hinsvegar ekki miklar áhyggjur af því að Kína ógni yfirburðum Bandaríkjahers á næstunni og eru margar ástæður fyrir því sem er ekki teknar mikið fyrir í deiglunni eins og innanríkisvandamál Kínverja. Að lokum má svo benda á að aldrei hefur lýðræðisþjóð stjórnað eins öflugum her en æðsti yfirmaður hersins er einmitt forsetinn sem kosinn er af fólkinu, það eru fá önnur lönd sem hafa slíkt fyrirkomulag.
• Bandaríkjaher eru stærsti tækniþróunaraðili í heiminum og fara gríðarleg útgjöld til tækni rannsókna þar sem hafa gefið okkur hinum margar merkar uppfinningar og nýst vel. Þar má helst nefna internetið, gervihnetti, GPS, hina ýmsu flugtækni, sýklalyf og tölvuna.
Vissulega er Bandaríkjaher umdeildur enda verður öflugasti her veraldar alltaf umdeildur og það má að sjálfsögðu draga í efa ágæti hinna ýmsu aðgerðir sem herinn hefur staðið í eins og Víetnam stríðið og Írak stríðið (ekki gleyma því þó að þetta er að sjálfsögðu utanríkisstefna hjá lýðræðisþjóð en ekki stefna sjálfs hersins). En það breytir því ekki að öryggishlutverk hans í heiminum er gríðarlega mikilvægt og ekki bara fyrir Bandaríkjamenn. Að sama skapi er mikilvægt fyrir lítið lands eins og Ísland að hafa öryggismál sín í lagi. Ísland er einfaldlega of lítið til að geta rekið sinn eigin her og á utanríkisöryggi okkar að sjálfsögðu alltaf fyrst og fremst að byggja á öflugu og góðu samstarfi við ríki sem bæði geta og hafa hagsmuni af því að verja okkur. En innanríkisöryggi er það sem við þurfum að sinna sjálf og með sofandahætti í slíkum málum þyrfti ekki mikið meira en svona fimm ár til að hér yrði ástandið mjög slæmt.
 
Öryggiskveðja
 
Tryggvi
 
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...