svipan.is. Viðtalið má lesa hér að neðan. Númer Njáls: 2952" />
Senda inn efni
3. nóvember kl.10:57 | eyjar.net

Stjórnlagaþing:

Spjall við Njál Ragnarsson frambjóðanda

Eyjar.net ætlar að halda áfram að kynna frambjóðendur til stjórnlagaþings sem eru frá Vestmannaeyjum. Í þessu viðtali er rætt við Njál Ragnarsson á svipan.is. Viðtalið má lesa hér að neðan. Númer Njáls: 2952

Nafn: Njáll Ragnarsson
Fæðingarár: 1984
Starf og/eða menntun: Stjórnmálafræðingur, stunda meistaranám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.
Hagmunatengsl: Engin hagsmunatengsl, sit ekki í nefndum, stjórnum eða öðrum trúnaðarstöðum fyrir nokkur hagsmunasamtök.
Tengsl við flokka eða hagsmunasamtök: Er óflokksbundinn og er ekki í neinum hagsmunasamtökum.
Ertu í einhverjum nefndum, ráðum eða stjórnum? Engum.
Maki: Í sambandi með Matthildi Halldórsdóttur.
Starf maka: Þjónustufulltrúi í Sparisjóði Vestmannaeyja.
Hagsmunatengsl maka: Engin.
Hvers vegna viltu á stjórnlagaþing? Ég býð mig fram til stjórnlagaþings vegna þess að ég hef mikinn áhuga á íslenska stjórnkerfinu og íslenskri stjórnskipan. Mér finnst eitt og annað í stjórnarskránni sem mætti færa til betri vegar. Ég tel mig hafa þá grundvallarþekkingu á viðfangsefninu sem þarf til og hef trú á því að ég geti tekið virkan þátt í stjórnlagaþingi. Ég tel það enn fremur skyldu mína sem íbúa þessa lands að taka þátt í því að leggja nýjan grunn að nýrri stjórnskipan landsins.
Hverjar eru helstu hugmyndir þínar um breytingar á stjórnarskránni? Það sem mér finnst mestu máli skipta er það sem snýr að þrískiptingu ríkisvaldsins og þá fyrst og fremst skilin milli löggjafavalds og framkvæmdavalds. Styrkja verður stöðu alþingis í stjórnarskránni til þess að tryggja sjálfstæði þess. Í því sambandi hef ég talað um að þingmenn sem verða ráðherrar missi atkvæðarétt sinn í þinginu, segðu af sér þingmennsku og sætu ekki í þingsalnum.
Hefur þú lesið stjórnarskrá Íslands? Já.
Hefur þú lesið stjórnarskrár annara ríkja? Já, m.a. stjórnarskrár Norðurlandanna sem ég las í BA náminu í stjórnmálafræði.
Hefur þú lesið skýrslu rannsóknarnefndar alþingis? Ég hef lesið hluta hennar.
 
Birt með leifi frá svipan.is

Eldri viðtöl

Sölu- og markaðstorg

Tilboð á Oolong- og Pu-erh tei

22. febrúar kl. 12:19 | Annað
Oolong- og Pu-erh er 100% hreint te, án auka- og rotvarnarefna. Ef þú kaupir 1 pakka af hvorri te...

Veglegur kaupauki með Herbalife, greiði burðarg...

22. febrúar kl. 12:16 | Annað
Ég greiði burðargjaldið innanlands. Nú er kaupaukinn ENN veglegri en áður. Brennslupakki 1 ko...

óska eftir vinnu

21. febrúar kl. 12:40 | Til leigu
óska eftir 10-30% vinnu. simi 6998652

Íbúðarhúsnæði óskast

21. febrúar kl. 10:42 | Til leigu
Við erum hjón með 3 börn sem óskum eftir 4-5 herbergja íbúðarhúsnæði á leigu þar sem m...

Íbúð á þjóðhátíð 2012

20. febrúar kl. 23:11 | Til leigu
Erum 10 stelpur og hugsanlega 2-3 kærastar, fædd á árunum 1992 og 1993, sem erum að leita okkur...

Óska eftir íbúð yfir Shell-mótið

20. febrúar kl. 20:08 | Húsnæði
Óska eftir íbúð á leigu yfir Shell-mótið í júní. Erum 2 fullorðnir og 2 börn, reyklaus ...

vinna óskast

18. febrúar kl. 19:23 | Atvinna
óska eftir vinnu eftir kl.14 á daginn til dæmis ræstingar. sími 8699637

Íbúð til leigu yfir , shell/pæjumót og þjó...

15. febrúar kl. 19:49 | Til leigu
Íbúð til leigu yfir shell/pææjumót og þjóðhátið . Íbúðin er c. 70 fm með einu svefn...