Senda inn efni
3. nóvember kl.06:00 | eyjar.net

Hláturinn lengir lífið 2010 á laugardaginn

Laddi og félagar á leið til Eyja

Laugardagskvöldið 6 nóvember mun hláturinn ráða ríkjum í Eyjum en þá mætir á svæðið landslið grínara til að skemmta okkur Eyjamönnum.
Þarna eru allir vinsælustu grínistar landsins og lofa þeir frábærri skemmtun, þetta er í annað sinn sem Björgvin Rúnars setur svona kvöld upp en í fyrra var fullt útur dyrum í Höllinni og frábær stemning þar sem sumir hreinlega pissuðu í sig úr hlátri.
 

Landsliðið skipa: Þórhallur Sigurðsson. (Laddi) Þorsteinn Guðmunds sem gerði allt vitlaust í fyrra og var frábær. Freyr Eyjólfs af Rás 2 en hann mætir með týpur eins og Jakop Frímann og fleiri ógleymanlegar persónur. Síðast en ekki síst mæta Miðnesbræður sem hafa verið að gera allt vitlaust um land allt í haust.
 
Á tímum sem þessum er ekki úr vegi að fara aðeins og gleyma sér í góðra vina hópi og hlægja saman.
 
boðið verður uppá afsláttarpakka fyrir fyrirtæki og hópa sem eru fleiri en 10 manns.
 
Ef óskað er eftir nánar upplýsingum eða pöntun á miðum þá sendið þið póst á bo@millet.is
 
 
Forsala er hafin í 66° norður Bárustíg en í forsölu kostar miðinn 2.800 kr en við hurð 3.500 en það er sama verð og í fyrra.
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...