15. október kl.19:14 | eyjar.net
Stjórnlagaþing 2010:
Viðtal við frambjóðandann Svein Ágúst Kristinsson
Ungur Vestmannaeyingur, Sveinn Ágúst býðir sig fram til Stjórnlagaþings 2010. Hann skilaði í dag umsókn sinni en umsóknarfrestur er til mánudags 18. okt. Eyjar.net heyrði í Sveini og spurðum hann út í hann sjálfan og afhverju hann væri af þessu. Viðtalið má sjá nánar í viðtali.
Áhrifavaldar / fyrirmyndir í lífinu? Foreldrar mínir hafa að sjálfsögðu haft mikil áhrif á mig og tel ég þeim bara hafa tekist ágætlega til. En fyrirmyndir myndi segja að væru menn eins og Ásbjörn Óttarsson þ.e.a.s að þora meðan aðrir þegja!
Afhverju Stjórnlagaþing?
Þetta stjórnlagaþing gæti orðið vendipunktur í sögu Íslands eftir hrun, en til þess þarf að halda rétt á spilunum. Mikið verk er fyrir höndum og er ég meira en tilbúinn að vinna baki brotnu Íslandi og þjóð til framdráttar.
Afhverju ætti fólk að kjósa þig?
Fólk ætti að kjósa mig því að ég er þessi týpíski landsbyggðar íbúi. Er stútfullur af góðum hugmyndum og tel ég mikilvægt að það séu allavega fólk á stjórnlagaþingi ekki bara prófessorar og hagfræðingar, það þarf eitthvern til að útskýra fyrir fólki að á landsbyggðinni skapast verðmætin! Og hana þarf að vernda með stjórnarskráarbreytingum, ekki dauðadæma hana með misgóðum hugmyndum eins og að breyta landinu í eitt kjördæmi og að ganga í Evrópusambandið, það bara má ekki ské!
Hvaða breytingar viltu þú sjá í Stjórnaskránni?
Nái ég kjöri mun ég beita mér fyrir niðurlagningu embætti forseta Íslands, aðskilnaði ríkis og kirkju og óbreyttu fyrirkomulagi kjördæmaskiptinga.
Og ég vill sjá þessa ESB aðildarumsókn ríkisstjórnarinnar hent útá hafsauga! (já þetta er umsókn ríkistjórnarinnar ekki þjóðarinnar, bendi á gallup kannanir í því samhengi.) Einnig breytingu laga um þjóðaratkv. að þýskri fyrirmynd það er að segja að það er engar eiginlegar þjóðaratkvæðagreiðslur sem að auðvelt er að misnota og lama þingið en almenningur getur þó kallað eftir atkvæðagreiðslum um einstök mál.
Eitthvað að lokum?
Ég vona að það sjái sem flestir sér fært að mæta á kjörstað 27 nóv. Guð blessi Ísland.
Eldri viðtöl
- 7. desember kl.11:07 | eyjar.netSá sjötti Rottusleikir
- 12. september kl.16:49 | eyjar.netVangaveltur um áætlun og verðskrá Herjólfs
- 20. nóvember kl.13:54 | eyjar.netRætt við Gísla Hjartarson frambjóðanda
- 14. nóvember kl.20:23 | eyjar.netRætt við Tryggva Hjaltasson frambjóðanda
- 3. nóvember kl.10:57 | eyjar.netSpjall við Njál Ragnarsson frambjóðanda
- 21. september kl.09:35 | eyjar.netHannes Kristinn Sigurðsson umboðsmaður Ernirs í Vestmannaeyjum í spjalli við eyjar.net
- 20. júlí kl.12:13 | eyjar.netViðtal við Rasmus Christiansen sem nýverið skrifaði undir hjá ÍBV
- 12. júlí kl.10:00 | eyjar.netViðtal við Harald A. Karlsson
- 25. júní kl.18:00 | eyjar.netViðtal við James Hurst
- 25. júní kl.06:00 | eyjar.netSpjall við Elínu Sólborgu nýkrýnda sumarstúlku
Sölu- og markaðstorg
Tilboð á Oolong- og Pu-erh tei
22. febrúar kl. 12:19 | AnnaðOolong- og Pu-erh er 100% hreint te, án auka- og rotvarnarefna. Ef þú kaupir 1 pakka af hvorri te...
Veglegur kaupauki með Herbalife, greiði burðarg...
22. febrúar kl. 12:16 | AnnaðÉg greiði burðargjaldið innanlands. Nú er kaupaukinn ENN veglegri en áður. Brennslupakki 1 ko...
Íbúðarhúsnæði óskast
21. febrúar kl. 10:42 | Til leiguVið erum hjón með 3 börn sem óskum eftir 4-5 herbergja íbúðarhúsnæði á leigu þar sem m...
Íbúð á þjóðhátíð 2012
20. febrúar kl. 23:11 | Til leiguErum 10 stelpur og hugsanlega 2-3 kærastar, fædd á árunum 1992 og 1993, sem erum að leita okkur...
Óska eftir íbúð yfir Shell-mótið
20. febrúar kl. 20:08 | HúsnæðiÓska eftir íbúð á leigu yfir Shell-mótið í júní. Erum 2 fullorðnir og 2 börn, reyklaus ...
vinna óskast
18. febrúar kl. 19:23 | Atvinnaóska eftir vinnu eftir kl.14 á daginn til dæmis ræstingar. sími 8699637
Íbúð til leigu yfir , shell/pæjumót og þjó...
15. febrúar kl. 19:49 | Til leiguÍbúð til leigu yfir shell/pææjumót og þjóðhátið .
Íbúðin er c. 70 fm með einu svefn...


