Senda inn efni
20. september kl.20:00 | eyjar.net

SPOT og Grímur Kokkur kynna:

Hið eina sanna Eyjakvöld

Hið eina sanna Eyjakvöld verður á skemmti og veitingastaðnum SPOT í Kópavogi laugardaginn 2. október.
Það er komin rík hefð á að Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu komi saman og geri sér glaðan dag á haustmánuðum og nú er komið að því.
 
 

Meðal skemmtikrafta sem fram koma eru;
 
Hljómsveitina Loga þarf vart að kynna sem og er hljómsveitin án efa þekktasta hljómsveit Eyjamanna fyrr og síðar og ein sú lífsseigasta á landinu.
 
Hljómsveitina Dans á Rósum frá Vestmanaeyjum þekkja allir, enda verið allra sveita duglegust sl. misseri við spilerí með rakarann geðþekka Viktor Ragnarsson fremstan meða jafningja. Hljómsveitin hefur haldið uppistuðinu á "litla" pallinum á þjóðhátíð sl. ár.
 
Hermann Ingi Hermannson jr. sér svo um að hita mannskapinn og raddböndin upp.
 
Hin geðþekki ljósmyndari Óskar Pétur Friðriksson verður svo með rafræna ljósmyndasýningu á risaskjám staðarins, enda verið manna duglegastur með myndavélina á lofti og hver veit nema þú lesandi góður sért meðal þeirra sem Óskar hefur fest á filmu.
 
Það má með sanni segja að þarna brúist bil kynslóða í skemmtanalífinu svo allir Eyjamenn, ungir sem eldri ættu að getað sameinast um að gera þetta kvöld eftirminnilegt og fagna um leið frábærum árangri ÍBV í fótboltanum.
 
Skemmtistaðurinn SPOT er án efa glæsilegasti staðurinn í dag, svo vel rúmt er um gesti sem og er aðbúnaður staðarins og öll umgjörð hin glæsilegasta.
 
Vonumst til að sjá ykkur sem flest og bjóðum ykkur öll velkomin og hvetjum ykkur til að mæta snemma.
 
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...