6. september kl.10:29 | visir.is
Mér finnst þetta bara klassískt dæmi um að ekki er hlustað á fólk með reynslu,
Landeyjahöfn „eitt stórt klúður“
segir Grétar Mar Jónsson
„Þetta er bara eitt stórt klúður," segir Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, sem varaði mjög við byggingu Landeyjahafnar fyrir Herjólf. Grétar á að baki þrjátíu ára reynslu sem sjómaður og þegar hann sat á þingi talaði hann gegn því að Landeyjahöfn yrði byggð á þann hátt sem gert var.
„Ég taldi að þetta yrði aldrei nothæft. Núna er að koma í ljós a sandburðurinn er miklu meiri en reiknað var með," segir Grétar. Hann lagði einnig til að fyrst farið var út í þetta verkefni að gamla höfn Herjólfs við Þorlákshöfn yrði varahöfn í minnst ár eftir að Landeyjahöfn væri tekin í notkun.
Utan sanburðar segir Grétar að veður og vindar hafi meiri áhrif á siglingar í Landeyjahöfn en reiknað hefur verið með. „Veðrið hefur verið tiltölulega gott hingað til. Við eigum eftir að sjá þarna miklu meiri vind. Þegar það kemur sunnan- eða suðvestanátt má búast við að þarna verði allt ófært jafnvel þó enginn sandur væri í höfninni," segir hann.
Grétar og aðrir þeir sem gagnrýndu Landeyjahöfn voru útmálaðir sem úrtölumenn og sagðir ala á neikvæðni. Hann telur þó að Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og aðrir þeir sem tóku illa í gagnrýnina hafi í einlægni sinni trúað því að verkefnið yrði farsælt. „Þetta leit ákaflega vel út á teikninborðinu. Þeir trúðu bara verkfræðingunum sem unnu þetta. Mér finnst þetta bara klassískt dæmi um að ekki er hlustað á fólk með reynslu," segir Grétar.
Ástandið er mjög alvarlegt nú að mati Grétars. Eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun var hætt að niðurgreiða flug Flugfélags Íslands til Vestmannaeyja og þess í stað þess fer Ernir færri ferðir á minni vélum. Sjóleiðin er því sú leið sem reiknað er með að fólk nýti sér í mestum mæli. „Vestmannaeyingar eru komnir afturábak í samgöngumálum um tuttugu þrjátíu ár," segir Grétar.
Sú leið sem Grétar vildi upphaflega fara var að kaupa nýjan Herjólf sem væri hraðskreiðariþannig að ferðin tæki um níutíu mínútur.
Hann leggur nú til að gerður verði þjónustusamningur sem allra fyrst við Þorlákshöfn þannig að hægt verði að nýta hana þar til endanleg lausn finnst á málinu.
Eldri fréttir
- 6. febrúar kl.08:19 | ibvsport.isElísa æfir með Posdam
- 4. febrúar kl.08:50 | eyjar.netÁn ökuréttinda og með fíkniefni í bílnum
- 3. febrúar kl.09:52 | MorgunblaðiðVinnslustöðin í Eyjum hefur fjölgað starfsmönnum í fiskvinnslu í landi um 100 frá því fyrir hrun
- 3. febrúar kl.07:28 | ruv.isUppfinningamaðurinn Sigmúnd
- 2. febrúar kl.14:59 | eyjar.netAllt að 40 manns sagt upp hjá Herjólfi
- 2. febrúar kl.09:48 | eyjar.netGrímur kokkur vill auka hollustu sjávarafurða enn frekar
- 2. febrúar kl.08:21 | eyjar.netÆfingarhúsnæði hljómsveita, rekstur leikskóla og samræmdpróf meðal verkefna Fræðslu- og menningarráðs
- 1. febrúar kl.08:14 | ruv.isVestmannaeyjabær íhugar að flytja út sorp
- 1. febrúar kl.07:45 | eyjar.netEyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju
- 31. janúar kl.16:57 | visir.isÉg held að Hemmi berji nokkra leikmenn til eins og hann er vanur
Sölu- og markaðstorg
Íbúð óskast til leigu yfir Shellmót
06. febrúar kl. 13:55 | Til leiguÓska eftir íbúð til leigu yfir Shellmótið, 26.júní til 30.júní/1.júlí.
Erum tvenn hjó...
Herbergi óskast - 4 nætur í sumar
05. febrúar kl. 20:50 | Til leiguMig vantar herbergi til leigu dagana 27. júní til 1. júli 2012. Fyrstu þrjár næturnar væri é...
Vantar íbúð á Þjóðhátíð 2012 :)
31. janúar kl. 01:13 | Til leiguErum 6-9 manns sem erum að leita okkur að íbúð til að leigja yfir verslunarmannahelgina. Við ...
Verslunarmannhelgin hva get ég gert fyrir þig
30. janúar kl. 23:45 | Til leiguhva get ég gert fyrir þig spyrðu eflaust ef þú villt lána okkur st´rakum sem eru 5-7 talsins ...
Óska Eftir LeiguHúsnæði í Eyjum
30. janúar kl. 11:43 | HúsnæðiVið erum Par með eina að verða 4 ára og eitt á leiðinni hund og kisur. Erum að leita okkur a...
fallegur bíll til sölu
29. janúar kl. 03:17 | FarartækiSubaru Legacy
nýskráning: 7/2004
2,5 L vél ( ekki algengt á íslandi )
Aflgjafi: Bensín
S...
Vantar húsnæði/íbúð helgina 20 - 22júlí 20...
26. janúar kl. 23:41 | HúsnæðiVegna fjölskyldumóts/útilegu í Eyjum þessa helgi (20-22. júlí) vantar ungu pari, þá væntan...
Íbúð/herbergi til leigu í sumar?
26. janúar kl. 18:35 | Til leiguVið erum sem sagt þrjár 18 ára gamlar stelpur frá Reykjavík sem ætlum að vinna í Vestmannae...


