Senda inn efni
6. september kl.08:28 | eyjar.net

Herjólfur hægði á sér í drullunni

Fyrsta ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum í morgun, sem átti að vera kl. 07:30 féll niður og óvíst er um framhaldið vegna mikils sands í Landeyjarhöfn.
 
Ívar Gunnlaugsson, skipstjóri Herjólfs, ákvað að sigla hvergi í morgun eftir að skipið tók niðri í síðustu ferðinni í gær. Hann segir að mikill sandur hafi borist inn í Landeyjarhöfn og utan við hana og hann hafi fundið vel fyrir því á leiðinni inn og út í gær.

Að sögn Ívars er málið í höndum Vegagerðarinnar, Eimskips og þeirra sem að málinu koma. „Þeir funda um málið og komast að einhverri niðurstöðu. Ég hef komist að minni niðurstöðu,“ segir hann og bætir við að hann fari síðan eftir því sem honum verði sagt að gera.
 
Landeyjarhöfn var formlega opnuð 21. júlí sl. Ferðir féllu niður á föstudag og laugardag og segir Ívar að þá hafi veðrið sett strik í reikninginn, en skipið hafi líka verið farið að haga sér einkennilega í innsiglingunni. „Ég var mjög meðvitaður um að þetta gæti verið að gerast,“ segir hann. „Hann rétt hægði á sér í drullunni.“

Sölu- og markaðstorg

Íbúð óskast til leigu yfir Shellmót

06. febrúar kl. 13:55 | Til leigu
Óska eftir íbúð til leigu yfir Shellmótið, 26.júní til 30.júní/1.júlí. Erum tvenn hjó...

Herbergi óskast - 4 nætur í sumar

05. febrúar kl. 20:50 | Til leigu
Mig vantar herbergi til leigu dagana 27. júní til 1. júli 2012. Fyrstu þrjár næturnar væri é...

Vantar íbúð á Þjóðhátíð 2012 :)

31. janúar kl. 01:13 | Til leigu
Erum 6-9 manns sem erum að leita okkur að íbúð til að leigja yfir verslunarmannahelgina. Við ...

Verslunarmannhelgin hva get ég gert fyrir þig

30. janúar kl. 23:45 | Til leigu
hva get ég gert fyrir þig spyrðu eflaust ef þú villt lána okkur st´rakum sem eru 5-7 talsins ...

Óska Eftir LeiguHúsnæði í Eyjum

30. janúar kl. 11:43 | Húsnæði
Við erum Par með eina að verða 4 ára og eitt á leiðinni hund og kisur. Erum að leita okkur a...

fallegur bíll til sölu

29. janúar kl. 03:17 | Farartæki
Subaru Legacy nýskráning: 7/2004 2,5 L vél ( ekki algengt á íslandi ) Aflgjafi: Bensín S...

Vantar húsnæði/íbúð helgina 20 - 22júlí 20...

26. janúar kl. 23:41 | Húsnæði
Vegna fjölskyldumóts/útilegu í Eyjum þessa helgi (20-22. júlí) vantar ungu pari, þá væntan...

Íbúð/herbergi til leigu í sumar?

26. janúar kl. 18:35 | Til leigu
Við erum sem sagt þrjár 18 ára gamlar stelpur frá Reykjavík sem ætlum að vinna í Vestmannae...