3. september kl.06:00 | eyjar.net
Hérna er flottrollið á leið í hafið á Jökuldýpinu rúma 16 tíma frá heimahöfn í Vestmannaeyjum. Vandlega þarf að fylgjast með hvort trollið fari rétt út.
Hérna er makrílinn að streyma úr móttökunni. Full móttaka er rúmlega 25 kör af fisk og fengum við nokkur þannig höl.
Hérna er hann Jens Kristinn Elíasson 1. velstjóri á Dala-Rafni og vinur minn að fylgjast með aflanum koma í vinnslu.
Hérna eru hásetarnir Kjartan Arnar Hauksson og Daníel Rafn Eyþórsson í vinnu að fylgjast með aflanum fara sína leið í krapakarið áður en hann fer ofan í lestina.
Hérna er Einar Jóhann Jónsson háseti að krapa yfir makrílinn. Makrílinn kemur á færibandi frá krapakarinu ofan á millidekkinu. Þarna er fyrsta karið að fyllast í lestinni í túrnum.
Við fáum ekki aðeins fisk um borð hjá okkur, en hérna yfirstýrimaðurinn Elías Jensson með Ritu sem viltist um borð. Henni var veitt frelsi eftir að hafa verið mynduð fyrir eyjar.net.
Hérna erum við að láta trollið fara í hafið. En togað var upp í 4 tíma á nóttinni þegar fiskaðist meira en á daginn var togað upp í 8 tíma. Fengum við höl frá 7 fiskum upp í 10 tonn í pokann.
Ritstjórinn skellti sér á sjóinn
Myndir fylgja grein
Síðustu tvær vikurnar var ég á makrílveiðum á trollbátnum Dala-Rafni VE-508. Þar fékk ég að kynnast veiðum með flottroll en áður hafði ég verið á bolfiskveiðum á sama bát. Þetta var skemmtileg reynsla og upplifun þessa daga. Veður var misjafnt þá daga sem við vorum á sjó og afli einnig. Meira fiskaðist á nóttinni heldur en á daginn. Landkrabbinn tók nokkrar myndir í þessum túrum og fylgja þær með í frétt.
Hérna er netamaðurinn og yfirstýrimaðurinn að laga flottrollið sem flæktist í einu af hölunum. Þarna má sjá svo kallaðan flugdreka sem heldur trollinu á floti.
Hérna er ritstjórinn Ólafur Björgvin að stytta sér stundir að lesa bókina Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness. Frítíminn á makrílveiðunum gat oft verið mikill og því nýttur meðal annars í lærdóm.
Eldri fréttir
- 6. febrúar kl.08:19 | ibvsport.isElísa æfir með Posdam
- 4. febrúar kl.08:50 | eyjar.netÁn ökuréttinda og með fíkniefni í bílnum
- 3. febrúar kl.09:52 | MorgunblaðiðVinnslustöðin í Eyjum hefur fjölgað starfsmönnum í fiskvinnslu í landi um 100 frá því fyrir hrun
- 3. febrúar kl.07:28 | ruv.isUppfinningamaðurinn Sigmúnd
- 2. febrúar kl.14:59 | eyjar.netAllt að 40 manns sagt upp hjá Herjólfi
- 2. febrúar kl.09:48 | eyjar.netGrímur kokkur vill auka hollustu sjávarafurða enn frekar
- 2. febrúar kl.08:21 | eyjar.netÆfingarhúsnæði hljómsveita, rekstur leikskóla og samræmdpróf meðal verkefna Fræðslu- og menningarráðs
- 1. febrúar kl.08:14 | ruv.isVestmannaeyjabær íhugar að flytja út sorp
- 1. febrúar kl.07:45 | eyjar.netEyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju
- 31. janúar kl.16:57 | visir.isÉg held að Hemmi berji nokkra leikmenn til eins og hann er vanur
Sölu- og markaðstorg
Íbúð óskast til leigu yfir Shellmót
06. febrúar kl. 13:55 | Til leiguÓska eftir íbúð til leigu yfir Shellmótið, 26.júní til 30.júní/1.júlí.
Erum tvenn hjó...
Herbergi óskast - 4 nætur í sumar
05. febrúar kl. 20:50 | Til leiguMig vantar herbergi til leigu dagana 27. júní til 1. júli 2012. Fyrstu þrjár næturnar væri é...
Vantar íbúð á Þjóðhátíð 2012 :)
31. janúar kl. 01:13 | Til leiguErum 6-9 manns sem erum að leita okkur að íbúð til að leigja yfir verslunarmannahelgina. Við ...
Verslunarmannhelgin hva get ég gert fyrir þig
30. janúar kl. 23:45 | Til leiguhva get ég gert fyrir þig spyrðu eflaust ef þú villt lána okkur st´rakum sem eru 5-7 talsins ...
Óska Eftir LeiguHúsnæði í Eyjum
30. janúar kl. 11:43 | HúsnæðiVið erum Par með eina að verða 4 ára og eitt á leiðinni hund og kisur. Erum að leita okkur a...
fallegur bíll til sölu
29. janúar kl. 03:17 | FarartækiSubaru Legacy
nýskráning: 7/2004
2,5 L vél ( ekki algengt á íslandi )
Aflgjafi: Bensín
S...
Vantar húsnæði/íbúð helgina 20 - 22júlí 20...
26. janúar kl. 23:41 | HúsnæðiVegna fjölskyldumóts/útilegu í Eyjum þessa helgi (20-22. júlí) vantar ungu pari, þá væntan...
Íbúð/herbergi til leigu í sumar?
26. janúar kl. 18:35 | Til leiguVið erum sem sagt þrjár 18 ára gamlar stelpur frá Reykjavík sem ætlum að vinna í Vestmannae...


