Senda inn efni
2. september kl.15:50 | eyjar.net

Vestmannaeyjabær fær aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitafélaga

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent 12 sveitarfélögum aðvörun vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og óskað eftir upplýsingum um hvernig sveitarstjórn hyggst bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins.
 

Samkvæmt ársreikningum sveitarfélaganna eru 22 sveitarfélög með skuldir umfram viðmiðun eftirlitsnefndar í A hluta reikningsskilanna, þ.e. 150% af heildartekjum, en 30 sveitarfélög þegar litið er á bæði A og B hluta. Peningaleg staða þessara sveitarfélaga er þó mjög misjöfn vegna peningalegra eigna sem kunna að nýtast á móti skuldum. Á árinu 2009 var rekstrartap á A hluta hjá 38 sveitarfélögum, að því er fram kemur á vef samgönguráðuneytisins.
 
Staðan verst hjá Álftanesi en Reykjanesbær er næstur í röðinni
 
Sveitarfélagið Álftanes er eins og kunnugt er í meðförum sérstakrar fjárhaldsstjórnar og því sendir Eftirlitsnefndin ekki sveitarfélaginu sérstaka aðvörun vegna fjárhagsstöðu þess. Niðurstaða ársreiknings 2009 hjá Sveitarfélaginu Álftanesi, sýndi að skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum námu 518% og framlegð sem hlutfall af heildartekjum nam -0,3%.
 
Á næstu dögum mun Eftirlitsnefndin senda um 10 öðrum sveitarfélögum aðvörun og óska eftir upplýsingum um aðgerðir til að draga úr skuldsetningu og til að bæta rekstrarafkomu. Eru það sveitarfélög þar sem skuldir og skuldbindingar sem hlutfall af heildartekjum er á bilinu 150-200%.
 
Sveitarfélögin tólf sem þegar hafa fengið aðvörun eru (raðað eftir skuldaröð) Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar, Sandgerðisbær, Fjarðabyggð, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjörður, Fljótsdalshérað, Kópavogsbær, Vestmannaeyjabær, Djúpavogshreppur, Sveitarfélagið Árborg og Stykkishólmsbær.
 

Sölu- og markaðstorg

Íbúð óskast til leigu yfir Shellmót

06. febrúar kl. 13:55 | Til leigu
Óska eftir íbúð til leigu yfir Shellmótið, 26.júní til 30.júní/1.júlí. Erum tvenn hjó...

Herbergi óskast - 4 nætur í sumar

05. febrúar kl. 20:50 | Til leigu
Mig vantar herbergi til leigu dagana 27. júní til 1. júli 2012. Fyrstu þrjár næturnar væri é...

Vantar íbúð á Þjóðhátíð 2012 :)

31. janúar kl. 01:13 | Til leigu
Erum 6-9 manns sem erum að leita okkur að íbúð til að leigja yfir verslunarmannahelgina. Við ...

Verslunarmannhelgin hva get ég gert fyrir þig

30. janúar kl. 23:45 | Til leigu
hva get ég gert fyrir þig spyrðu eflaust ef þú villt lána okkur st´rakum sem eru 5-7 talsins ...

Óska Eftir LeiguHúsnæði í Eyjum

30. janúar kl. 11:43 | Húsnæði
Við erum Par með eina að verða 4 ára og eitt á leiðinni hund og kisur. Erum að leita okkur a...

fallegur bíll til sölu

29. janúar kl. 03:17 | Farartæki
Subaru Legacy nýskráning: 7/2004 2,5 L vél ( ekki algengt á íslandi ) Aflgjafi: Bensín S...

Vantar húsnæði/íbúð helgina 20 - 22júlí 20...

26. janúar kl. 23:41 | Húsnæði
Vegna fjölskyldumóts/útilegu í Eyjum þessa helgi (20-22. júlí) vantar ungu pari, þá væntan...

Íbúð/herbergi til leigu í sumar?

26. janúar kl. 18:35 | Til leigu
Við erum sem sagt þrjár 18 ára gamlar stelpur frá Reykjavík sem ætlum að vinna í Vestmannae...