Senda inn efni
26. ágúst kl.10:42 | eyjar.net

Strákar í skóla

Fimmtudagsþruman frá Tryggva Hjaltasyni

Menntun er skemmtun, að meta og geta, að læra og færa
 
Enn ein rannsóknin var að sýna fram á það að að strákum líður ekki eins vel í skóla og stelpum. Alltaf virðast fjölmiðlar og aðrir talsmenn menntastéttarinnar vera jafn hissa þegar svona niðurstöður koma fram þrátt fyrir það að svona sé þetta búið að vera í fleiri ár.
 

Höfundur Fimmtudagsþrumunar er núna, auk þess að hafa verið, bróðurpartinn af lífi sínu, strákur í skóla og hefur baulað yfir þessu vandamáli við þá sem nenna að hlusta af og til frá því hann var um 12 ára gamall. Höfundi finnst að strákar í skólakerfinu þurfi að aðlaga sig að kvenmiðuðu kerfi þ.e. kerfi sem ætlast til þess að nemendur sé stilltir, hljóðlátir, snyrtilegir, kyrrir, og hlýðnir. Eins og má sjá á framangreindri upptalningu eru þetta ekki beint dyggðir sem meðal orkuríkur strákur hefur í miklu magni (amk samsinnti ég mér ekki mikið með þessum takmörkum).
 
Ég er vissulega hrifinn af aga, ekki misskilja hvert ég er að fara með þetta, ein Fimmtudagsþruman hér fyrir nokkrum vikum meira að segja tileinkuð því að heiðra agan sem verkfæri til sjálfsbætingar („mikilvægi agans“. Vandamálið í skólakerfinu er ekki það að ætlast sé til of mikils aga, mikill agi er vissulega góður. Vandamálið er (mat höfundar) að ætlast er til þess að helmingur nemenda aðlagist ferli og umhverfi þar sem töluvert ósamræmi ríkir gagnvart eðli þeirra og hvötum.
 
Núna get ég vissulega ekki staðhæft fyrir alla kynbræður mína en ég hef verið áhugamaður um þetta málefni í meira en áratug og rætt þetta við marga, lesið mikið af sálfræði og hegðunar rannsóknum um málið og fylgst með og prófað ýmsar aðferðir á 8 ára þjálfunarferli (frjálsíþróttir, leikjanámskeið osfrv) og er það eindregin niðurstaða mín að strákar hafi almennt séð meiri orku og hreyfiþörf- og laðast frekar að hasar og verkmiðuðu námi og æfingum.
 
Lausn Fimmtudagsþrumunnar fyrir skólakerfið er þess vegna eftirfarandi:
• Auka mikilvægi verklegs náms
• Auka umræður þar sem allir nemendur ættu að taka þátt, skilningur kemur fram með því að gera og upplifa
• Auka rannsóknavinnu, fleiri vettvangsferðir, og prófanir utan skólastofunar (t.d. að fara og skoða sjávarföllin eða kryfja frosk)
• Ekki hafa fyrirlestra þar sem þess er krafist að sitja og hlusta, lengri en 45 mínútur, helst ættu þeir að vera styttri eða hafa þá fleiri pásur (pásurnar þurfa ekki að vera langar og gætu m.a. nýst í uppbroti með stuttum verkefnum, prófunum eða verklegri sýnikennslu úr efninu, bara einhvers konar hvíld frá þeirri athöfn að: „sitja, hlusta og einbeita sér“). Margar rannsóknir hafa sýnt fram á það að athyglisgeta meðal mannsins er að meðaltali um 45 mínútur og þá er besta getan til að taka við upplýsingum og meta þær fyrstu 15 mínúturnar. Seinni hlutin af 2 klst fyrirlestri mun t.d. skila ósköp litlu ef ekki var vel staðið að pásum og uppskiptingu.
• Þessi punktur er umdeildur en ég stend við hann: auka keppni í námi og vægi árangurs og verðlaunamiðaðs náms („þetta er sko keppnis“)
• Þessi punktur kann að vera meira persónubundinn: minnka yfirferð og auka frekar verklega úrvinnslu.
 
Þar sem Fimmtudagsþruman er dægurpistill í takmarkaðri lengd þá ætla ég mér að takmarka þessa yfirferð við þess kjarnapunkta hér að ofan. Ég hef vissulega fleiri pælingar og eru sumar af þeim töluvert róttækari og e.t.v. umdeildari. Ég tel að ofangreindar breytingartillögur myndu minnka skólaleiða stráka og ekki bara henta strákum heldur stelpum líka, þetta eru semsagt almennar úrbótatillögur á skólakerfinu.
 
Nokkrar af þessum töllögum krefjast e.t.v. meira af kennurum en ætlast er til í dag, ég er ekki viss, en ég er þeirrar skoðunnar að einungis okkar besta fólk eigi að fá að vera þess heiðurs njótandi að vera kennarar. Kennarastarfið er gríðarlega mikilvægt og byggir velferð samfélags og er framtíðargeta þess að miklu leyti byggð á gæðum og metnaði menntakerfisins og kjarninn í menntakerfinu er að sjálfsögðu menntararnir/kennararnir.
 
Ekki má hinsvegar miskilja þessar athugasemdir mínar á þann veg að ég tel að kennararnir í landinu séu ekki að standa sig, þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Fimmtudagsþruman telur að með kerfislegri breytingu væri hægt að auka velferð allra nemenda í skólakerfinu, minnka skólaleiða og þá sérstaklega í þessu langleiða og landlæga vandamáli með strákana okkar.
 
 
Við endum þetta á tilvitnun eins og svo oft áður:
 
“Sá sem þorir að kenna má aldrei hætta að læra”
-- John Cotton Dana
 
“Það sem við viljum er að sjá barnið sækjast eftir þekkingu, en ekki þekkingin að sækjast eftir barninu.”
--George Bernard Shaw
 
“Kennari hefur áhrif á eilífðina, hann getur aldrei séð hvar áhrif hans hætta.”
-- Henry Brooks Adams
 
 
“Ef við stígum jafnt og þétt verður stærðfræðin svo létt
 
bæði móðurmál og saga verður æði alla daga
 
Ef við klöppum saman höndum, og á höfðinu við stöndum
 
Við verðum töffarar í framan við að taka sporið saman.”
--Skólarapp
 
Takk
 
Tryggvi
 
 
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...