Senda inn efni
5. ágúst kl.06:00 | eyjar.net

Meirihlutakúgunin á Íslandi

Fimmtudagsþruman frá Tryggva Hjaltasyni

Ó þú viðkvæmi meirihluti
 
Eftir að ég flutti aftur heim til Íslands frá Ameríku fór ég að upplifa eitthvað sem ég hafði aldrei áttað mig á áður. Það er töluverð skoðanakúgun í gangi á Íslandi. Í Bandaríkjunum sem er mikið fjölmenningarríki er ekkert sjálfsagðar en að ræða um hitamál nútímans á opinskáan hátt án þess að verða fyrir aðkasti eða úthúðað (amk var það mín upplifun mín, 3 ár í landinu) en á Íslandi er þessu ekki þannig farið.

Þannig er nefnilega mál með vexti að á Íslandi er töluverð meirihlutakúgun í gangi af hálfu minnihlutahópa. Það eru fáir hópar sem fá að tjá sig minna um hlutina frjálst heldur en meirihlutahóparnir. Tökum nokkur dæmi:
 
 
Ef að þú ert hvítur íslendingur (sem er stór meirihlutahópur) þá máttu ekki tjá þig neitt málefnalega um innflytjendamál nema að vera algjörlega fylgjandi frjálslyndri innflytjendastefnu, annars ertu rasisti. Ef þú ert gagnkynhneigður þá máttu ekkert tjá þig um samkynhneigð öðru vísi en að fylgja þeirri línu sem samkynhneigðir halda á lofti annars ertu stimplaður hommahatari eða þröngsýnn. Ef að þú ert Kristinn (sem er annar stór meirihluti amk skv. opinberum skráningum) þá máttu ekkert ræða það opinberlega né málefnalega öðru vísi en að vera stimplaður öfgatrúarmaður. Ef þú ert karlmaður þá máttu ekki ræða jafnréttismál öðru vísi en að samþykja femínisma, annars ertu karlremba (hér á reyndar ekki meiri/minni hlutahópar í hlut, frekar helmingarhópar). Svona mætti áfram telja.
 
Núna er ég ekki að taka neina afstöðu í neinum af ofangreindum málaflokkum, etv hafa allir þessir hópar rangt fyrir sér eða allir rétt fyrir sér. En það sem er lykilatriði í opnu og frjálsu nútímasamfélagi er að fólk fái að viðra skoðanir sínar. Ég hef oft velt þessu fyrir mér og reynt að komast að niðurstöðu af hverju það sé svona mikill munur t.d. á Ameríku og Evrópu með þetta. Eftirfarandi er lauslega mótuð tilgáta sem höfundur telur engan vegin vera sönnun né heilagan sannleik:
 
Í Seinni Heimsstyrjöldinni kom fram einn svartasti bletturinn í sögu Evrópu þegar Nasistar komust til valda í Þýskalandi og hófu svo skipulega að útrýma ákveðnum þjóðfélagshópum með aðstoð hluta þjóðarinnar. Þýskaland nasismans var ekki eina ríkið þar sem slík ódæði voru stunduð á þessu tímabili heldur var nær ekkert Evrópuríki sem ekki stundaði einhverskonar útrýmingar, grimmilegar frelsissviptingar eða kúganir og má þar helst einnig nefna Sovétríkin. Ég reikna með að flestir þekki söguna nóg til að vita hvernig endaleikurinn varð, en Nasistarnir töpuðu stríðinu og Evrópa skammaðist sín hrikalega fyrir þá voveiflegu atburði sem höfðu átt sér stað undanfarin ár. Þjóðarsál Evrópu var merkt djúpu öri og vaxandi kynslóð sór þess eið að slík voðaverk myndu aldrei aftur sjást í Evrópu. Í kjölfarið kom tímabil mikillar jákvæðrar lýðræðisþróunar og frelsisþróunar þar sem m.a. staða konunnar batnaði og einnig innflytjenda og minnihlutahópa. Hinsvegar virðist samviskubitið frá Seinni Heimsstyrjöldinni hafa í dag þróast út í einskonar öfga pólitíska rétttrúnaðarhyggju þar sem blátt bann er lagt við því að meta hugmyndir minnihlutahópa að eigin verðleikum, meirihlutahópar eiga nær undantekningarlaust að gefa eftir og mikil eftirlátssemi hefur ríkt í skjóli óbeinnar skoðanakúgunar sem vex og dafnar.
 
Núna er ég kominn að erfiðasta hlutanum í þessum pistli, en það er að gefa eitthvað gott dæmi til að styðja mál mitt. Ég upplifi nefnilega næga skoðanakúgun til að ég finni fyrir erfiðleikum með að koma með eitthvað dæmi þar sem égtel að ég verði ekki úthrópaður illum nöfnum með ómálefnalegum rökum. En ég ætla mér samt að reyna.
 
Fyrir ekki svo löngu var áætlað að koma með nokkra tugi palestínskra kvenna og barna til landsins. Höfundur hefur alls ekkert á móti þessu framtaki og sýnist að til þessa hafi það bara gengið vel. En það voru kringumstæðurnar í ákvarðanatökunni sem hræddu höfund um hversu heft málfrelsið væru á Íslandi. Út frá öryggisfræðilegum sjónarmiðum er ekkert eðlilegra en að gera umfangsmikla bakgrunnskoðun á svona hóp, þarna er fremur stór hópur að koma frá svæði sem hefur verið átakasvæði í tugi ára og þar sem hryðjuverkahópar fyrirfinnast (sem nær öll vestræn ríki hafa staðfest). Þá hefði verið eðlilegt að kanna t.d. hugsanleg tengsl þessa kvenna og barna við slíka hópa og hverjar líkurnar væru á því að þegar þessar konur og börn fengju íslenskan ríkisborgararétt myndu þau fara fram á að fá eiginmenn sína eða bræður til landsins og hverjir það væru þá. Í raun bara grunn öryggis vinna sem á alltaf að fara fram í svona málum til að tryggja innlent öryggi Íslendinga og Íslands. Þeir voru ekki margir sem þorðu að viðra skoðanir sínar í þessu máli en þeir fáu sem gerðu það eins og þingmaðurinn sem sagði að líklegast væri réttast að skoða þetta mál örlítið betur í stað þess að drífa það í gegn, fékk að finna fyrir, þá voru svona málefnaleg rök laminn niður með þeirri röksemdarfærslu að þetta væri rasismi! Nær allir fjölmiðlar hraunuðu yfir manninn. Þetta er virkilega hættuleg og ógnvekjandi þróun.
 
Ég hætti mér ekki út í frekari dæmi.
 
Að lokum vil ég taka fram að ég er ekki að viðra skoðanir mínar á þeim málaflokkum sem ég nefni hér að ofan, heldur að benda á það að ég hef ekki rétt á að misþyrma mannorði einhvers, úthrópa hann illum nöfnum eða beita hann skoðunarkúgun bara vegna þess að ég er ekki sammála.
 
Ef að þú hefur upplifað það að þig langi til að segja málefnalega skoðun þína opinberlega (og hún er ekki hatursfull eða mannorðsmeiðandi) en þér finnst þú ekki geta það, þá ertu að vissu leyti að upplifa skoðanakúgun. Höfund grunar að alltof margir upplifi þetta reglulega.
 
Lengi lifi Ísland, málfrelsið og okkar fögru gildi
 
Kappakveðja
 
Tryggvi
 
e.s. höfundur er alls ekki á móti minnihlutahópum og er eins og allir hluti af einhverjum minnihlutahóp.
Eins og svo oft áður þá er búið að orða hlutina betur en ég geri og gef ég einum af stofnfeðrum Bandaríkjanna síðustu línurnar hér. Tel ég kjarnann í mínu máli koma fram í þessari frábæru tilvitnun:
 
All, too, will bear in mind this sacred principle, that though the will of the majority is in all cases to prevail, that will to be rightful must be reasonable; that the minority possess their equal rights, which equal law must protect, and to violate would be oppression.
 
Ísl. Þýð.
 
Þá verða allir einnig að viðhalda þessu heilaga lögmáli, að þrátt fyrir að vilji meirihlutans eigi í öllum málum að hafa betur, verður sá vilji til að vera réttlátur að vera skynsamlegur; að minnihlutinn viðhaldi sínum jöfnu réttindum, sem jafnréttindalög skulu verja, og brot á væri kúgun.
 
Thomas Jefferson
 
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...