29. júlí kl.06:00 | eyjar.net
Fimmtudagsþruman frá Tryggva Hjaltasyni
Hagkerfi Vestmannaeyja sjóðheitt
Stanslaust stuð
Ég hef eins og aðrir vestmannaeyingar undanfarna daga lent í hringiðu óðra ferðamanna og mikillar innspýtingar í Vestmanneyskt hagkerfi sem hófst um leið og Herjólfur byrjaði að sigla í Bakkafjöru. Ég hef verið að taka púlsinn á fólki og að undanskildum bróður mínum þá áttaði fólk sig ekki alveg á því hversu hrikaleg umferð yrði frá innlendum ferðamönnum.
Vissulega má vera að þetta sé einskonar tískufyrirbrigði núna og má reikna með að ákveðið „nýjabrum“ sé að skila inn x fjölda. Hinsvegar er staðreyndin sú að síðan að siglingar hófust frá Landeyjarhöfn þá hefur nær hver einasta ferð með herjólfi verið með fullt bílaþilfar og allir veitingar og þjónustustaðir bæjarins hafa verið vel fylltir. Tökum dæmi: í gær fór ég og konan mín fagra og ætluðum að fá okkur að borða eftir vinnu og kíktum niður á einn af nýju stöðunum í bænum. Þar var okkur sagt að ekki væri hægt að fá borð fyrr en eftir 1-2 klst. Þá fórum við á einn af eldri stöðunum og þar var líka allt troðfullt þó hægt væri að troða okkur að, enda bara tvær manneskjur á ferð. Afgreiðslustúlkan sagði okkur að síðan að siglingar hófust hafi verið stanslaust að gera allan daginn, alla daga. Þá finn ég sjálfur fyrir þessu verandi rútubílstjóri. Að keyra rútu á daginn í Vestmannaeyjum síðan að siglingar hófust er um helmingi erfiðara vegna umferðarþunga, tala nú ekki um þegar farið er upp á Stórhöfða eða upp í „hollywood“ hjá eldfellinu. Á miðvikudaginn fór ég svo með móður minni í Krónuna og ákváðum við að mæta 15 mínútum fyrir opnun til að tryggja okkur gott bílastæði, en þegar við komum var bara hægt að leggja að baka til og röð hafði myndast út á götu. Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel við að fara í krónuna og var eins konar stríðsfílingur í gangi þar sem fólk fór á taugum að brauðið væri ekki komið og ég sá votta fyrir miklu stressi hjá húsmæðrum bæjarins.

Það er því skýrt að tilkoma Landeyjarhafnar og siglingar þar á milli hafa verið og koma til með að verða gríðarleg innspýting fyrir hagkerfi Vestmannaeyja og enn og aftur skera Vestmannaeyjar sig úr öðrum stöðum á landinu með athafnasemi, bjartsýni, hagskilyrði og snilld. Ég kann alveg ótrúlega vel að meta það að búa á þessum einstaka stað og ég er ekkert hissa að samlandar okkar séu spenntir að koma hingað þegar það er orðin svona lítil fyrirhöfn.

Fimmtudagsþruman óskar Vestmannaeyingum til hamingju með bættar samgöngur og óskar öllum gleðilegrar þjóðhátíðar með þeim fyrirvara að hún verði ekki of gleðileg og að það taki um 6 mánuði að lappa upp á fjölskylduböndin eftir hátíðina vegna of mikillar gleði þessa fyrstu helgi ágústmánaðar. Já og svo er máfurinn vondi kallinn. Við sáum máf fara inn í lundaholu um daginn og taka lundapysju þaðan út.
Lifi Vestmannaeyjar, ekki máfurinn.
Kappakveðja
Tryggvi
Eldri fréttir
- 30. desember kl.18:53 | eyjar.netAnnáll 2010 og spá fyrir 2011, örvænting vegna heimsenda en mikil gleði
- 9. desember kl.10:34 | eyjar.netLeiðarvísir að kappajólum
- 2. desember kl.06:00 | eyjar.netDesember í Vestmannaeyjum
- 25. nóvember kl.10:38 | eyjar.netEndalausa pælingin
- 18. nóvember kl.06:00 | eyjar.netVængbrot Íslendingsins
- 11. nóvember kl.06:00 | eyjar.netFramtíð Vestmannaeyja
- 4. nóvember kl.06:00 | eyjar.netÖryggis- og varnarmál
- 21. október kl.06:00 | eyjar.netHægri, vinstri: Veistu hvort þú ert?
- 7. október kl.06:00 | eyjar.netHugleiðingar um þingið
- 30. september kl.06:00 | eyjar.netÞað er of mikil hreyfing að þurfa að hreyfa sig
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


