Senda inn efni
14. júlí kl.13:44 | eyjar.net

Upphitun fyrir verslunarmannahelgina á Spot

Þú gætir unnið miða í dalinn

Þá er komið að hinu árlega upphitunarballi fyrir verslunarmannahelgina. Nú verður sannkallað "Eyjaþema" enda margir sem ætla að bregða sér til Eyja um verslunarmannahelgina og því verða eingöngu skemmtikraftar frá Eyjum sem verða í aðalhlutverkum á Þjóðhátíð 2010 að skemmta hjá okkur!

Þú gætir dottið í lukkupottinn því snillingurinn Grímur Kokkur ætlar að gefa tveim heppnum ballgestum miða í Dalinn. Það eina sem þú þarft að gera er að gerast aðdáandi Gríms Kokks á Facebook, mæta á SPOT og um leið og þú kemur færðu númer sem fer í pott og hver veit nema þú dettir í lukkupottinn og farir í Dalinn í boði Gríms Kokks, enda er fátt Vestmannaeyskara en vörurnar frá Grími Kokk.
 
Eina skilyrðið er að þú sért staddur á ballinu á SPOT þegar úrdrátturinn fer fram eftir Brekkusönginn og setjir þennan viðburð á Facebook síðuna þína :-D
 
Hljómsveitina Dans á Rósum þarf vart að kynna enda eru þeir félagararnir búnir að halda uppi stanslausu stuði á Tjarnarsviðinu í Herjólfsdal sl. ár og verða það í aðalhlutverki í ár.
 
Árni Johnsen þarfnast ekki frekari kynningar, það segir sig sjálft...BREKKUSÖNGUR á SPOT og hver annar en Árni mætir með gítarinn og klónna og hitar mannskapinn upp fyrir komandi átök í Brekkusöngnum sem að öllu ólöstuðu er hátindur hátíðarinnar.
 
Síðan óma þjóðhátíðarlögin gömul og ný um nágrenni Kópavogs og aldrei er að vita nema óvænta gesti beri að garði.
 
Miðaverð er 1500 krónur.
 

Eldri fréttir

Sölu- og markaðstorg

Yaris 2006

17. maí kl. 13:44 | Farartæki
Er með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum Ekinn 117 þús km og vel m...

TS Skiptiborð+dýna+áklæði

16. maí kl. 09:58 | Húsgögn
Er með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...

íbúð/herbergi óskast

15. maí kl. 23:52 | Til leigu
Við erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...

Óska eftir íbúð í langtímaleigu!

15. maí kl. 11:33 | Til leigu
Þriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...

******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****

15. maí kl. 10:09 | Til leigu
Daginn Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið. sendið á eyjagisting@gmail.com ...

Dagmömmupláss..

14. maí kl. 23:45 | Til leigu
Er að byrja aftur 1 ágúst 2012 eftir barneignarfrí

Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.

14. maí kl. 23:41 | Húsgögn
Vantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...

Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!

14. maí kl. 20:24 | Húsnæði
Mig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...