9. júní kl.19:23 | eyjar.net

Ferðasaga
Fimmtudagsþruman frá Tryggva Hjalta
Ljósastaurinn fellur, sprengjulaust herbergi, lýðbrun, kapphlaupinu tapað…
Í ljósi þess að nú er sumar og margir sem eflaust huga að ferðalögum á næstunni verður fimmtudagsþruman að þessu sinni ferðsaga frá sumrinu 2004.
Árið 2004 ákváðum við félagarnir að fara í mikla kappaferð til Bandaríkjanna. 5 saman, þá á aldrinum 17-20 ára, leigðum við glænýjan Pontiac í New York og keyrðum svo inn í landið. Förinni var heitið í eina/n stærsta/u skemmtigarð, verslunarmiðstöð og þungarokkshátíð í heimi og að sjálfsögðu eina rosalegustu ferð í heimi.
Einn daginn var hópurinn staddur í búð sem seldi fatnað í rokkaðari kantinum og var einn úr hópnum mjög heillaður af ljóshærðu dreddlokkapíunni sem afgreiddi okkur. Einhvern vegin tókst honum að fá hana til að bjóða okkur í partý um kvöldið. Partýið var í einu mesta gettói sem ég hef á ævinni komið í, það fyrsta sem gerðist þegar ég fór út úr bílnum var að frekar ræfilslegur blökkumaður kom að mér með DVD diska í misgóðu ástandi og reyndi að selja mér þá. Ég neitaði þessu frábæra tilboði og þá bauð hann mér eiturlyf, mjög góður vísir að þessu partýi. Lítið fréttnæmt gerðist í þó þessu partýi og var haldið aftur upp á hótel.
Þegar þangað var komið lagði ég glænýja Pontiac-inum okkar á glænýju og tómu bílastæði sem hafði ekkert á nema ljósastaur. Ég var sá eini sem var skráður fyrir bílnum og var þess vegna óskráð regla að ég myndi einn keyra hann. Þarna bað þó sá aðili í hópnum sem á hvað skrautlegasta ökuferilinn um að fá að taka einn hring á bílastæðinu. Ég leit yfir galtómt bílastæðið, tók þá ákvörðun að hér væri ekki hægt að koma sér í voða og henti til hans lyklunum og labbaði upp á herbergi. Um mínútu síðar: „Tryggvi, þú verður að koma niður“. Þegar ég kom niður á bílastæðið blasti við mér ljósastaur sem lá ofan á fallega Pontiac-inum og risa skransför í malbikinu.
Innan skamms komu 8 lögreglubílar og lokuðu öllu svæðinu. Við drógum þá ályktun að þessi ljósastaur hefði verið þjóðargersemi og í kjölfarið vorum við allir gómaðir. Okkur var bannað að tala saman á íslensku og vildu þeir fara upp í herbergi til okkar að leita af einhverju, væntanlega sprengjum og eiturlyfjum. Það var hinsvegar lítið um sprengjur og eiturlyf í herberginu, aðallega bara drasl, svo mikið drasl að lögreglumönnunum blöskraði illilega og spurðu: „how long have you guys stayed here“ sem myndi útleggjast: „hversu lengi hafið þið verið hér“ (sjá mynd af herberginu).

Herbergið okkar eins og löggurnar komu að því
Við tilkynntum þeim að við hefðum komið daginn áður. Haldið var aftur niður á bílastæði eftir að engar sprengjur eða eiturlyf fundust og þar var eini litaði maðurinn í hópnum settur í handjárn og leitað á honum, ég var spurður af hverju ég hefði verið að keyra á 80km/klst hraða á bílastæði, en þá höfðu þeir mælt bremsuförin. Einhvern vegin var sú útskýring tekin gild að á Íslandi væri ekki hámarkshraði á bílastæðum.

Einn af átta lögreglubílum sem mættu á svæðið
Seinna um kvöldið tapaði ég einu af fáum spretthlaupum sem ég hef tapað á ævinni á hótelaganginum, en slysabílstjórinn okkar veðjaði 20 dollurum að hann gæti unnið mig í spretthlaupi á hótelaganginum að lyftunni. Ég er enn með tvö stærstu ör sem ég hef fengið á sitthvorri ristinni eftir að ég rann eftir teppinu á ganginum, en ég var „rúbbítæklaður“, hann klifraði svo yfir mig, vann spretthlaupið og rukkaði mig um 20 dollara.
Ég var svo ekkert alltof sáttur daginn eftir þegar ég komst að því að megnið af hópnum hafði ákveðið að hjálpa mjög skuggalegum Mexíkana að fara með einhverskonar varning frá bílnum hans og hélt ég fyrirlestur um að þeir voru örugglega að taka þátt í hryðjuverkaaðgerð, enginn hlustaði.
Þjónustustúlkan tók á öðrum degi þá ákvörðun að hætta að þrífa herbergið okkar og vorum við eina herbergið sem fékk engin þrif, ekki skánaði ástandið enda átti einn úr hópnum það til að borða alltaf snakk í rúminu og vakna á næturnar og fá sér mat og skilja svo matinn eftir út um allt. Þá var öllum umbúðum hent miskunnarlaust á gólfið.
Ozzfest tónleikarnir voru heldur betur magnaðir, en þar fékk ég að upplifa eitthvað sem ég vona að verði vinsælla á tónleikum á Íslandi bráðlega, eða „crowdsurfing“ sem myndi útleggjast lýðbrun, en það virkar þannig að maður fer aftast í þvöguna og finnur einhverja stóra menn til að henda sér upp á þvöguna, maður brunar svo um á þvögunni. Hrikalega hressandi, nema það að einhver tók skóinn minn á meðan ég var að lýðbruna þegar Slipknot var að spila. Þá blasti við opið sár á ristinni eftir spretthlaupið. Því næst var „circle pit“ eða hringa pyttur á Hatesphere og þar fór ég inn í regnjakka með hettu og kom út bara með hettu, ég veit ekki enn hvað varð um sjálfan jakkan. Tveir úr hópnum týndust og fundust svo við bás þar sem ung stúlka með stórar mjólkurframleiðslur bauð upp á einhverskonar körfuboltaleik. Þar hefðu þeir eytt öllum gjaldeyrinum sínum ef við hefðum ekki neytt þá með okkur á næstu tónleika.
Til að koma bílnum aftur til New York varð að finna nýtt dekk, teipa bílinn svo hann héldist saman og ekki var hægt að nota farþegahurðina vinstra megin. Í 10 klst. akstri til New York urðum við auk 400kg af farangri að halda á varahlutum eins s.s. felgu. Það sem bjargaði okkur þó frá reikning upp á um hálfa milljón var að við höfðum á síðustu stundu tekið þá ákvörðun að bæta við auka 9 dollurum á dag í tryggingu sem tryggði bílin gegn öllu tjóni.
Á leiðinni heim í flugvélinni, hallar svo félagi minn sem hafði klesst bílinn sér að mér og hvíslar „þú ferð ekkert að taka heiðurinn af því að hafa keyrt á ljósastaurinn þegar við segjum þessa sögu heima!“
Þessi saga er þess vegna hluti af því að efna það loforð að taka ekki heiðurinn frá honum.
Boðskapur sögunnar: þú tryggir ekki eftir á (hringja í Sigga Braga) og ef einhver er tilbúinn að leggja pening undir í keppni við þig sem þú ættir auðveldlega að vinna, skaltu velta fyrir þér hvað liggur að baki.
Hér má sjá frekari myndir úr ferðinni, ég leyfi fólki að fylla í eyðurnar um hver gegndi hvaða hlutverki í ferðinni http://www.svartilistinn.com/myndir/thumbnails.php?album=3
Eldri fréttir
- 30. desember kl.18:53 | eyjar.netAnnáll 2010 og spá fyrir 2011, örvænting vegna heimsenda en mikil gleði
- 9. desember kl.10:34 | eyjar.netLeiðarvísir að kappajólum
- 2. desember kl.06:00 | eyjar.netDesember í Vestmannaeyjum
- 25. nóvember kl.10:38 | eyjar.netEndalausa pælingin
- 18. nóvember kl.06:00 | eyjar.netVængbrot Íslendingsins
- 11. nóvember kl.06:00 | eyjar.netFramtíð Vestmannaeyja
- 4. nóvember kl.06:00 | eyjar.netÖryggis- og varnarmál
- 21. október kl.06:00 | eyjar.netHægri, vinstri: Veistu hvort þú ert?
- 7. október kl.06:00 | eyjar.netHugleiðingar um þingið
- 30. september kl.06:00 | eyjar.netÞað er of mikil hreyfing að þurfa að hreyfa sig
Sölu- og markaðstorg
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
20. maí kl. 15:52 | RaftækiRococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, handlaugar...
óska eftir að kaupa sófasett og svefnsófa
19. maí kl. 23:03 | Til leiguóska eftir að kaupa bæði sófasett og svefnsófa
upplýsingar í sima 8958582
Bergvin
sumarhús í súðavík
19. maí kl. 23:02 | Til leigusumarhús í Súðavík til leigu dagana 29 mai-7 júni á aðeins 40þ krónur.Allt til alls í í...
Óska eftir íbúð/húsi til leigu frá 12-15 Jú...
19. maí kl. 22:23 | Til leiguVantar íbúð eða hús til leigu í kringum Pæjumótið, eða frá 12-15 júní.
Vonast til a...
Þjóðhátíð
19. maí kl. 21:45 | Til leiguíbúð til leigu yfir þjóðhátíð, frá fimmtudegi til mánudags. Er á góðum stað. uppl sí...
Ungt par leitar að íbúð
18. maí kl. 18:09 | Til leiguA ungt par með tvö börn að leita brýn að íbúð til leigu. engin slæmur venja og dýra uppl...
ÓE Íbúð til leigu!
17. maí kl. 21:08 | Til leiguReglusamt par að leita eftir íbúð eða herbergi til leigu í eyjum.
erum reyklaus og eigum eng...
Íbúð á Pæjumótinu
15. maí kl. 18:30 | Til leiguEr með hús til leigu á Pæjumótinu, tekur 6+ í gistingu. Upplýsingar í síma 6975560


