27. maí kl.13:02 | eyjar.net
Þetta er sýning sem enginn má láta framhjá sér fara. Alan er einn af hæfileikaríkustu söngvurum landsins. Einhverjir muna kannski eftir honum úr íslenska Idonþáttunum fyrir nokkrum árum þar sem Einar Bárðason dómari felldi tár þegar Alan datt úr keppninni alltof snemma að hans mati.
MJ tribute show í Eyjum föstudaginn 28.maí
Nú er næstum liðið ár síðan Poppkóngurinn Michael Jackson féll frá. Nú er að fara af stað frábærir “tribute” tónleikar til heiðurs goðinu. Alan Jones og föruneyti mun fara um landið í sumar og verða fyrstu tónleikarnir í Höllinni í Vestmannaeyjum föstudaginn 28.maí.
Þetta er sýning sem enginn má láta framhjá sér fara. Alan er einn af hæfileikaríkustu söngvurum landsins. Einhverjir muna kannski eftir honum úr íslenska Idonþáttunum fyrir nokkrum árum þar sem Einar Bárðason dómari felldi tár þegar Alan datt úr keppninni alltof snemma að hans mati.
Alan Jones hefur verið aðdáandi Michael Jackson síðan hann var 5 ára og hefur farið um landið síðustu ár og tekið lögin hans, en eftir andlát poppkóngsins síðasta sumar ákvað hann að gera enn meira úr þessu og hefur nú ásamt Stefáni Henrýsyni sett saman frábæra tribute tónleika til heiðurs goðinu. Frábær söngvari og hörkudansari þar á ferð. Bakraddir eru þær Kristín Ósk Wiium, Ina Valgerður (Idol Ina) og Fríða Björk Teitsdóttir.
Eyjakonan Selma Ragnarsdóttir klæðskeri hannar alla búninga aðalsöngvarans auk þess að stílisera sýninguna. Hún gerði einnig búninga fyrir Michael Jackson Broadwayshowið sem var í vetur og gekk mjög vel.
Vonandi sjáum við sem flesta. Húsið opnar kl.21:30 og tónleikarnir byrja kl.22:00.
Aðgangseyrir er aðeins 1500kr sem er algjört lágmarksverð.
800kr fyrir börn 6-16 ára sem eru í fylgd með foreldrum.
Eldri fréttir
- 10. janúar kl.17:03 | eyjar.netStórtónleikar Eivarar Páls í Eyjum
- 29. nóvember kl.06:01 | eyjar.netUppistand með Ara Eldjárn í Eyjum
- 26. nóvember kl.09:00 | eyjar.netLaugardagsbíó
- 25. nóvember kl.17:00 | eyjar.netKósí konukvöld í Geisla í kvöld
- 22. nóvember kl.09:00 | eyjar.netHádegisfundur um efnahagsumhverfi fyrirtækja
- 10. nóvember kl.10:30 | eyjar.netChild in time live í Vestmaneyjum
- 3. nóvember kl.06:00 | eyjar.netHláturinn lengir lífið 2010 á laugardaginn
- 28. september kl.06:00 | ibvsport.isLokahóf ÍBV á laugardaginn
- 20. september kl.20:00 | eyjar.netHið eina sanna Eyjakvöld
- 17. september kl.10:15 | eyjar.netRisaball Buff og Kidda Bigfoot á morgun
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


