14. april kl.12:45 | eyjar.net
Bæjarstjórnarkosningar 2010
Leifur Jóhannesson skrifar
Þann 29 maí göngum við til kosninga, miklar vangaveltur eru á framboðum flokkana hér í Eyjum. Sjálfstæðismenn hafa birt sinn lista sem er frábær i einu orði. Efstu fjórir eru þeir sömu og fyrir fjórum árum, það finnst mér mjög skiljanlegt. Til hver að breyta því sem er að virka? Hér á okkar frábæru eyju er lífið ljúft, atvinnuleysi í lágmarki, efnahagur bæjarins hefur aldrei verið betri, knattspyrnuhús að rísa, vinna við endurbætur á upptökumannvirkjum hafnarinnar komnar í fullan gang og endurbætur á útisvæði við sundhöllina á loka stigi.
Þó svo að fjögur efstu séu þau sömu þá er hellings nýliðun á listanum, alls eru 8 nýir á lista sem verður nú að teljast mjög gott. Eyverjar geta líka vel við unað, eru með fjóra glæsilega fulltrúa á listanum sem er glæsilegt fyrir þetta öfluga félag.
Maður spyr sig hver baráttumálin verða í þessum kosningum, þar sem að fjármál bæjarins eru í góðu standi þá er viðbúið að baráttan komi til með að snúast um "minni" mál svo sem skipulagsmál, leikskólapláss og nýsköpun í atvinnumálum í eyjum. Hvað varðar leikskólaplássin þá lagast það vonandi með tilkomu 5 ára deildar í grunnskólana. En eins og segir í laginu ,,fólkinu fjölgar í eyjuna enn“ þá þarf að fara gera ráðstafanir til þess að stytta biðlistana inná leikskólana.
Svo er eitt sem mér finnst mikilvægt fyrir eyjamenn og það er nýsköpun í atvinnu, af hverju? Jú það er árás á okkar aðal atvinnugrein sem kallast Fyrningaleiðin sem er greinilega ákaflega mikilvægt þessari blessuðu vinstri stjórn, að breyta sjávarútveginum. Mér er það bara lífsins óskiljanlegt, atvinnugreinin er að skila gríðarlegum fjármunum í kassann fyrir ríkið, sú leið sem fyrirhuguð er er einfaldlega banabiti fyrir sjávarbæ eins og Vestmannaeyjar, fyrirtæki í þessum bransa eru bara á bremsunni og þora ekki í stórvægilegar framkvæmdir með svoleiðis vitleysisgang eins of fyrningarleiðin er. Við sjálfstæðismenn stöndum vörð um sjávarútveginn, viljum ekki ganga eins langt og frjálslyndir en allavega auka við kvótann, ekkert fyrningarleiðar bull.
Leifur Jóhannesson
Varaformaður Eyverja
Eldri fréttir
- 24. febrúar kl.16:13 | eyjar.netBjarni Benediktsson og Ólöf Nordal á opnum stjórnmálafundi í eyjum á morgun
- 9. september kl.09:00 | eyjar.netÞrjár Eyjastelpur í hópi U17 og U19 Íslands
- 25. maí kl.17:00 | eyjar.netStöndum vörð um fjarnám
- 17. maí kl.13:28 | eyjar.netÍmynd Vestmannaeyja
- 22. april kl.12:51 | eyjar.netBjarni Benediktsson með fund í Ásgarði á laugardag
- 12. april kl.22:43 | visir.isSteingrímur líkti þensluskeiðinu við Tyrkjaránið
- 9. mars kl.15:35 | eyjar.netBæjarráð lýsir yfir áhyggjum af niðurskurði á grunnþjónustu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja
- 7. desember kl.10:56 | eyjar.netSamgöngur til Vestmannaeyja og Jökulfjarða eru sambærilegar, sem sagt engar.
- 7. desember kl.10:51 | eyjar.netSamgöngumál
- 6. desember kl.12:26 | visir.isHerjólfur úr slipp í dag
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...


