Senda inn efni
29. mars kl.08:05 | eyjar.net

Lambahryggur að hætti franskra

Hitið olíuna fyrir sósuna í víðum potti. Setjið beinin í og látið þau krauma í u.þ.b. 10 mín. eða þar til þau fara að brúnast. Bætið lauk, gulrót og selleríi í og látið grænmetið brúnast. Hellið víninu yfir og skafið vel í botninn, látið sjóða niður þar til það fer að þykkna. Bætið soði, grænmetisbúnti og hvítlauk út í og látið sjóða við vægan hita í 45 mín. Sigtið og þrýstið eins miklum vökva úr og hægt er, setjið soðið aftur í pottinn. Hitið ofninn í 220°C. Hitið olíu og helminginn af smjörinu í víðri pönnu eða lágum víðum potti.

Kryddið kjötið, snöggsteikið það við háan hita á báðum hliðum. Lækkið hitann og steikið áfram í 4 mín. Setjið pönnuna í ofninn og steikið áfram í 15-20 mín, eða lengur ef kjötið á að vera vel steikt. Takið kjötið upp og breiðið álpappír yfir það. Hellið soðinu í steikingarílátið og látið sjóða niður þar til sósan fer að þykkna. Smakkið sósuna til. Hitið olíuna og snöggsteikið basillaufin í u.þ.b. 1 mín. Skerið kjötið í sneiðar. Setjið sósu á hvern disk, raðið kjötsneiðum ofan á ásamt grænmeti. Ef kjötið er skorið í sneiðar og sett á eitt fat er sósan sett yfir kjötið, en á diskinn ef kjötið er sett á disk fyrir hvern og einn. Lambahryggurinn sagaður eftir endilöngu. Áætlið 2-3 rif á mann. Látið saga hryggjarbeinið í sundur á milli rifjanna.
 
Hráefni fyrir 4
 
Lambahryggur að hætti franskra
0 g sósa:
1 msk ólífuolía
1 kg lambabein söguð niður kg
1 stk laukur saxaður
1 stk gulrætur söxuð
1 stk sellerístilkar saxaðir
1,5 dl hvítvín dl
5 dl kjötsoð dl
1 stk grænmetisbúnt
3 stk hvítlauksgeirar
0 g kjöt:
1 kg lambahryggur kg
1 tsk salt
0,5 tsk pipar
1 msk ólífuolía
100 g smjör
 

Eldri uppskriftir

Sölu- og markaðstorg

Íbúð óskast til leigu yfir Shellmót

06. febrúar kl. 13:55 | Til leigu
Óska eftir íbúð til leigu yfir Shellmótið, 26.júní til 30.júní/1.júlí. Erum tvenn hjó...

Herbergi óskast - 4 nætur í sumar

05. febrúar kl. 20:50 | Til leigu
Mig vantar herbergi til leigu dagana 27. júní til 1. júli 2012. Fyrstu þrjár næturnar væri é...

Vantar íbúð á Þjóðhátíð 2012 :)

31. janúar kl. 01:13 | Til leigu
Erum 6-9 manns sem erum að leita okkur að íbúð til að leigja yfir verslunarmannahelgina. Við ...

Verslunarmannhelgin hva get ég gert fyrir þig

30. janúar kl. 23:45 | Til leigu
hva get ég gert fyrir þig spyrðu eflaust ef þú villt lána okkur st´rakum sem eru 5-7 talsins ...

Óska Eftir LeiguHúsnæði í Eyjum

30. janúar kl. 11:43 | Húsnæði
Við erum Par með eina að verða 4 ára og eitt á leiðinni hund og kisur. Erum að leita okkur a...

fallegur bíll til sölu

29. janúar kl. 03:17 | Farartæki
Subaru Legacy nýskráning: 7/2004 2,5 L vél ( ekki algengt á íslandi ) Aflgjafi: Bensín S...

Vantar húsnæði/íbúð helgina 20 - 22júlí 20...

26. janúar kl. 23:41 | Húsnæði
Vegna fjölskyldumóts/útilegu í Eyjum þessa helgi (20-22. júlí) vantar ungu pari, þá væntan...

Íbúð/herbergi til leigu í sumar?

26. janúar kl. 18:35 | Til leigu
Við erum sem sagt þrjár 18 ára gamlar stelpur frá Reykjavík sem ætlum að vinna í Vestmannae...