Ein líkamsárás kærð eftir helgina
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en um var að ræða árás á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt sl. laugardags. Þarna hafði maður sem var að reyna að stilla til friðar verið skallaður í andlitið með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Sá sem grunaður var um árásina var handtekinn og færður í fangageymslu lögreglu. Hann neitaði ásökunum við yfirheyrslu. Málið er í rannsókn.
Tvö eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Í öðru tilvikinu var brotist inn í húsnæði sem veitingastaðurinn Landterna var í og þar unnar skemmdir auk þess sem ýmsu smálegu var stolið Talið er að innbrotið hafi átt sér stað að kvöldi 21. febrúar sl. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki, en þeir sem einhverjar upplýsingar hafa varðandi málið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu. Í hinu tilvikinu var um að ræða rúðubrot í húsi við Hásteinsveg en þar liggur fyrir játning og er það mál upplýst.
Fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið án þess þó að um slys á fólki hafi verið að ræða. Tjón á ökutækjum í þessum óhöppum var minniháttar.
Aðfaranótt 7. mars sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í Vinnslustöð Vestmannaeyja en þarna hafi kona sem var að vinna við loðnufrystingu dottið í stiga með þeim afleiðingum að hún ökklabrotnaði. Konan var flutt á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja til aðhlynningar.
Fjögur umferðarlagabrot liggja fyrir eftir sl. viku og var í tveimur tilvikum um hraðakstur að ræða, en í hinum tilvikunum var um stöðvunarskyldubrot að ræða og akstur án þess að hafa ökuskírteini meðferðis.
Eldri fréttir
- 6. febrúar kl.08:19 | ibvsport.isElísa æfir með Posdam
- 4. febrúar kl.08:50 | eyjar.netÁn ökuréttinda og með fíkniefni í bílnum
- 3. febrúar kl.09:52 | MorgunblaðiðVinnslustöðin í Eyjum hefur fjölgað starfsmönnum í fiskvinnslu í landi um 100 frá því fyrir hrun
- 3. febrúar kl.07:28 | ruv.isUppfinningamaðurinn Sigmúnd
- 2. febrúar kl.14:59 | eyjar.netAllt að 40 manns sagt upp hjá Herjólfi
- 2. febrúar kl.09:48 | eyjar.netGrímur kokkur vill auka hollustu sjávarafurða enn frekar
- 2. febrúar kl.08:21 | eyjar.netÆfingarhúsnæði hljómsveita, rekstur leikskóla og samræmdpróf meðal verkefna Fræðslu- og menningarráðs
- 1. febrúar kl.08:14 | ruv.isVestmannaeyjabær íhugar að flytja út sorp
- 1. febrúar kl.07:45 | eyjar.netEyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju
- 31. janúar kl.16:57 | visir.isÉg held að Hemmi berji nokkra leikmenn til eins og hann er vanur


